Síða 1 af 1
Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Fös 10. Feb 2012 22:11
af darrip
Málið er að ég var með 2x 1gb minni í vélinni, ég keypti 2x 2gb í viðbót og tölvan vill bara ekki fara inní windows nema með mestalagi 3gb.
maxið á móbóinu er 8gb og það er 64bita w7 ultimate á henni
búinn að henda inn nýjasta bios án árangurs
einhverjar hugmyndir ?
takk fyrir
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Fös 10. Feb 2012 22:47
af vesi
1. hvernig móðurborð
2.eru minnin allveg eins
3. ertu búin að ath voltin á minni,
4. sérð hvort bios lesi þau,,
5,,,google is your friend
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Fös 10. Feb 2012 23:12
af darrip
1. msi p35 platinum
2. 2x Corsair Memory — 1GB DDR2 Memory (VS1GB667D2) , 2x Super Talent DDR2-667 2GB/128x8 16-Chip Memory - T667UB2GV
3. eiga bæði að vera 1.8v
4. biosinn les þau
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Fös 10. Feb 2012 23:21
af vesi
ég er tómur,, verður flott að sjá hvað fróðari menn segja um þetta
mál,,
gangi þér vel
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Fös 10. Feb 2012 23:44
af cartman
Þó að móðurborð samþykki 8GB mest þá þýðir það því miður ekki að það samþykki öll minni
Hérna er listi yfir hvaða minni móðurborðið styður "officially"
http://www.msi.com/file/test_report/TR10_1212.pdf
Prófaðu að skella bara 2x Super Talent DDR2-667 2GB þessum minnum í og sjáðu hvort að windows sjái þá 4 GB
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Lau 11. Feb 2012 23:49
af Garri
Ef þú ert með Windows 32bita, þá munt þú ekki sjá meira en 3GB sama hversu mikið af minni þú setur í vélina.
32 bita stýrikerfi styðja ekki meir en 4GB. Af þeirri tölu dregst það minni sem notað er til að dressa skjákortið. Ef skjákortið er 1GB þá mun stýrikerfið aðeins gefa upp 3GB osfv.
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Sun 12. Feb 2012 00:11
af vesi
Garri skrifaði:Ef þú ert með Windows 32bita, þá munt þú ekki sjá meira en 3GB sama hversu mikið af minni þú setur í vélina.
32 bita stýrikerfi styðja ekki meir en 4GB. Af þeirri tölu dregst það minni sem notað er til að dressa skjákortið. Ef skjákortið er 1GB þá mun stýrikerfið aðeins gefa upp 3GB osfv.
hann tók fram að það væri 64bita win7 ulti,,
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Sun 12. Feb 2012 00:30
af Garri
Ok.. sást yfir það.
Mig grunar samt sterklega að W7 sé ekki að keyra alveg í 64bita módi.. hvers vegna er ekki gott að segja. Sjáist minnið í Bios, þá ætti Windows að sjá það.
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Sun 12. Feb 2012 00:35
af tomasjonss
Ef svo væri ætti tölvan að finna 3.25 mb af ram
Re: Vesen með vinnsluminni :/
Sent: Sun 12. Feb 2012 00:49
af Garri
tomasjonss skrifaði:Ef svo væri ætti tölvan að finna 3.25 mb af ram
3.25 ef skjákortið er 750mb ef ég skil þetta rétt.