Síða 1 af 1

nVidia FX6800 Ultra lent!

Sent: Fim 24. Jún 2004 16:21
af ErectuZ
Ég veit ekki hvort að þetta sé old news, en í 24/7 búðinni er nVidia 6800 Ultra lent!

Sent: Fim 24. Jún 2004 16:34
af Manager1
Jamm, það er lent og kostar ekki nema 13.000 kalli meira en X800 pro kortið eða 59.900 krónur :)

Ætli X800 XT fari ekki í sama verðflokk og 6800 Ultra?

Sent: Fim 24. Jún 2004 18:17
af DaRKSTaR
Manager1 skrifaði:Jamm, það er lent og kostar ekki nema 13.000 kalli meira en X800 pro kortið eða 59.900 krónur :)

Ætli X800 XT fari ekki í sama verðflokk og 6800 Ultra?


ég held að x800 xt kortið verði á verðbilinu 70-80þús hérna..
xt kortið á að vera 200 dollurum dýrara en pro, það er ca 17-18þús kr dýrara en proinn hér á landi með vaskinum.

plús álagning hjá verslunum.. 70 þús sé nærri lagi.

fint að ultrann er kominn.. sá á heimasíðunni hjá farcry að þeir eru að koma með patch sem supportar ps 3.0, þannig að sú vitleisa að engir leikir kæmu með support á næstunni er hreint bull, hugsa að flestir nýjir leikir komi með patch með support á næstunni.

allavega væri gaman að sjá hvernig farcry er í allri sinni dýrð með ps3.0 :)

Sent: Fim 24. Jún 2004 22:31
af Hlynzi
70 þúsund er raunhæft verð til að byrja með. Þegar ég keypti mér GF4 Ti4600 glænýtt frá Asus (V8460 ultra), þá kostaði það 73 þúsund hérna. En ég fékk það hingað heim á 35 þúsund ásamt sendingarkostnaði og tollum.

Sent: Fös 25. Jún 2004 00:30
af Pectorian
X800 er málið maður þarf þá ekki að fara í 600W psu alveg strax, svo er Radeon líka að skora betur

Sent: Fös 25. Jún 2004 01:19
af GuðjónR
Pectorian skrifaði:X800 er málið maður þarf þá ekki að fara í 600W psu alveg strax, svo er Radeon líka að skora betur

600w ??? :shock:

Sent: Fös 25. Jún 2004 10:54
af Pectorian
Ég tók nú bara svona til orða GuðjónR af því að 6800 tekur meiri straum en X800, mér þykir leitt ef ég hef sært einhvern.

Pectorian

Sent: Fös 25. Jún 2004 12:47
af SolidFeather
Það þarf yfir 400W ef að þú ættlar að oc-a það en annars svipað og x800

Sent: Fös 25. Jún 2004 13:43
af GuðjónR
Pectorian skrifaði:Ég tók nú bara svona til orða GuðjónR af því að 6800 tekur meiri straum en X800, mér þykir leitt ef ég hef sært einhvern.

Pectorian

Sært? ehh nei nei alls ekki... :)
Bara hissa hvað þessi nýju kort taka rosalegan straum.

Sent: Fös 25. Jún 2004 16:39
af Shroom
þá kostaði það 73 þúsund hérna. En ég fékk það hingað heim á 35 þúsund ásamt sendingarkostnaði og tollum.


Það er enginn tollur á tölvuíhlutum mar borgar því aðeins vsk.

Sent: Fös 25. Jún 2004 17:48
af Hlynzi
GuðjónR skrifaði:
Pectorian skrifaði:X800 er málið maður þarf þá ekki að fara í 600W psu alveg strax, svo er Radeon líka að skora betur

600w ??? :shock:


Ef ég man rétt tók 6800 kortið 85-100 wött. (sem er meira en orkufrekustu AMD örgjörvar, og intel.

Sent: Fös 25. Jún 2004 17:52
af Arnar
Er eitthvað að því ?

Sent: Fös 25. Jún 2004 18:18
af Hlynzi
Arnar skrifaði:Er eitthvað að því ?


Mér þykir það satt best að segja full mikið. Það hlýtur að vera hægt að spara orku og hita.

Sent: Fös 25. Jún 2004 22:20
af Stebet
Hlynzi skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Pectorian skrifaði:X800 er málið maður þarf þá ekki að fara í 600W psu alveg strax, svo er Radeon líka að skora betur

600w ??? :shock:


Ef ég man rétt tók 6800 kortið 85-100 wött. (sem er meira en orkufrekustu AMD örgjörvar, og intel.


6800 kortið er nú einu sinni flóknasti örgjörvi sem þú getur fengið (222 milljón smárar) þannig að þessi orkunotkun er vel skiljanleg. En svona til fróðleiks þá hafa nokkrar síður gert mælingar og komist að því að 6800 notar bæði minni orku og framleiðir minni hita en X800.

Sent: Lau 26. Jún 2004 04:56
af Pectorian
Ég fann þetta á tomshardware, dæmi hver fyrir sig.
Ég vel allavega X800 fyrir mig :D
http://graphics.tomshardware.com/graphi ... index.html

Sent: Lau 26. Jún 2004 18:14
af Pandemic
Nvidia eru meira að fókusera á gæði og nýjustu tækni en ATi bara í aflinu

Sent: Lau 26. Jún 2004 22:33
af DaRKSTaR
Pectorian skrifaði:Ég fann þetta á tomshardware, dæmi hver fyrir sig.
Ég vel allavega X800 fyrir mig :D
http://graphics.tomshardware.com/graphi ... index.html


já og ég fann þetta á tomshardware

http://graphics.tomshardware.com/graphi ... index.html