Síða 1 af 4

Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 14:36
af eoo
Er til eitthvað annað app sem gerir það sama en kostar ekkert?

Mér finnst dáldið ljótt að láta mann borga 129 kr. á mánuði fyrir að fletta upp í símaskrá já.is fyrir mann.
Allt í lagi að rukka mann það gjald í eitt skipti en í hverju mánuði... [-X [-X

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 14:54
af chaplin
Ef það er búið að hækka gjaldið að þá hugsa ég að ég reyni líka að finna aðra lausn, var ekki annað forrit sem ég CallerLookUp eða e-h slíkt? Og hætta Já strax að rukka mann ef maður tekur forritið út eða þarf að segja upp þjónustunni (efa það að vísu)..

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 14:59
af playman
Alveg sammála, að þurfa að borga í hverjum mánuði er einum of, eitt gjald bara, bara eins og maður kaupir forritið.
Annars hætti ég að nota já.is appið og geri bara eins og maður gerði í gamladaga, flettir upp númerinnu á já.is sjálfkrafa.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:00
af Haxdal
huh .. kostar Já í simann? hvernig er það þá rukkað, af kreditkortinu sem er tengt við gmail accountinn ?

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:02
af g0tlife
en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:04
af SteiniP
Haxdal skrifaði:huh .. kostar Já í simann? hvernig er það þá rukkað, af kreditkortinu sem er tengt við gmail accountinn ?
Held þetta sé tekið af inneigninni þinni.
g0tlife skrifaði:en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?
Appið sýnir hver er að hringja meðan síminn er að hringja, þú ferð væntanlega ekki inn á ja.is um leið og síminn hringir og svara svo.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:06
af ManiO
g0tlife skrifaði:en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?

Appið gefur þér upplýsingarnar strax og þú færð hringingu.

Að gera svona app ætti að vera frekar auðvelt fyrir forritara sem kann e-ð á android/ios forritun. Held að erfiðasti hlutinn er að intercepta símtalinu leita og skila upplýsingunum áður en að síminn hringir. Annars er restin mjög auðvelt HTML parsing.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:07
af pattzi
Ekki Vissi ég að þetta kostaði Kemur þetta þá bara á reikninginn hjá nova ?

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:10
af chaplin
g0tlife skrifaði:en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?
Maður er nú ekki alltaf ready steady við tölvuna tilbúinn að fletta öllum þeim sem hringja upp, appið sjálft er algjört möst en ég er ekki tilbúinn að borga 1.548kr fyrir appið á ári. Lítil upphæð en samt 3x dýrar en lang besta appið í símanum mínum eins og er, sérstaklega þegar hægt er að fá þetta app ókeypis.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:11
af g0tlife
Ekki er að reyna snúa mikið útúr, en er þetta app ekki þá meira fyrir yfirmenn, sölumenn og þannig gæja ? Maður fær svo sjaldan símtal frá einhverjum sem maður er þegar ekki með í símaskránni sinni .. Rétt/rangt?

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:14
af Haxdal
SteiniP skrifaði:
Haxdal skrifaði:huh .. kostar Já í simann? hvernig er það þá rukkað, af kreditkortinu sem er tengt við gmail accountinn ?
Held þetta sé tekið af inneigninni þinni.
ah k, fann þetta á síðunni hjá Já.is :
Já.is skrifaði:Það kostar ekkert að hlaða niður forritinu og prófa það. Fyrsti notkunarmánuður er án endurgjalds.
Ef þú velur að hafa forritið virkt þá kostar þjónustan 129 kr. á mánuði.
Gjaldfært verður í hverjum mánuði sem þjónustan er virk. Gjald er innheimt við fyrstu uppflettingu í hverjum mánuði að prufumánuði loknum.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:15
af eoo
pattzi skrifaði:Ekki Vissi ég að þetta kostaði Kemur þetta þá bara á reikninginn hjá nova ?
Þetta kemur inn á símareikninginn hjá mér undir "Virðisaukandi þjónusta".

Ég hafði ekki hugmynd um að þetta kostaði þegar ég setti þetta app inn í símann minn :o

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:19
af Gúrú
eoo skrifaði:
pattzi skrifaði:Ekki Vissi ég að þetta kostaði Kemur þetta þá bara á reikninginn hjá nova ?
Þetta kemur inn á símareikninginn hjá mér undir "Virðisaukandi þjónusta".
Ég hafði ekki hugmynd um að þetta kostaði þegar ég setti þetta app inn í símann minn :o
Þú hefur þá lesið núll af öllum blaðsíðunum/titlunum á appinu og install ferlinu. :lol:

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:23
af SteiniP
ManiO skrifaði:
g0tlife skrifaði:en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?

Appið gefur þér upplýsingarnar strax og þú færð hringingu.

Að gera svona app ætti að vera frekar auðvelt fyrir forritara sem kann e-ð á android/ios forritun. Held að erfiðasti hlutinn er að intercepta símtalinu leita og skila upplýsingunum áður en að síminn hringir. Annars er restin mjög auðvelt HTML parsing.
Án þess að ég hafi kynnt mér það eitthvað, þá held ég að android sendi einhvern 'incoming call' event þegar síminn hringir og væri þá hægt að hlusta eftir.
Held samt að stærsta vandamálið væri að koma upplýsingunum til skila nógu hratt, tekur smá tíma að sækja allt htmlið af ja.is og parsa það yfir 3g tengingu.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:34
af pattzi
Gúrú skrifaði:
eoo skrifaði:
pattzi skrifaði:Ekki Vissi ég að þetta kostaði Kemur þetta þá bara á reikninginn hjá nova ?
Þetta kemur inn á símareikninginn hjá mér undir "Virðisaukandi þjónusta".
Ég hafði ekki hugmynd um að þetta kostaði þegar ég setti þetta app inn í símann minn :o
Þú hefur þá lesið núll af öllum blaðsíðunum/titlunum á appinu og install ferlinu. :lol:
Ég vissi ekkert að þetta kostaði gerði bara install :)

En það stendur Önnur þjónusta á reikningnum .

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 15:55
af ManiO
SteiniP skrifaði:
ManiO skrifaði:
g0tlife skrifaði:en að fara bara á ja.is á netinu.. hver er munurinn ?

Appið gefur þér upplýsingarnar strax og þú færð hringingu.

Að gera svona app ætti að vera frekar auðvelt fyrir forritara sem kann e-ð á android/ios forritun. Held að erfiðasti hlutinn er að intercepta símtalinu leita og skila upplýsingunum áður en að síminn hringir. Annars er restin mjög auðvelt HTML parsing.
Án þess að ég hafi kynnt mér það eitthvað, þá held ég að android sendi einhvern 'incoming call' event þegar síminn hringir og væri þá hægt að hlusta eftir.
Held samt að stærsta vandamálið væri að koma upplýsingunum til skila nógu hratt, tekur smá tíma að sækja allt htmlið af ja.is og parsa það yfir 3g tengingu.

Eins og ég sagði ;)

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 16:52
af Joi_BASSi!
síðan er líka bara hægt að svara og spyrja hver þetta sé

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 16:57
af SteiniP
ManiO skrifaði:
Eins og ég sagði ;)
Já miskildi þig aðeins svona nývaknaður :)

Annars væri örugglega sniðugast að hýsa bara einfalt vefviðmót sem tekur við símanúmeri og skilar niðurstöðum sem JSON eða eitthvað. Hafa svo bara ja.is htmlið cachað og indexað svo það þurfi ekki fara í gegnum það allt við hverja beiðni.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 18:22
af gardar
daanielin skrifaði:Ef það er búið að hækka gjaldið að þá hugsa ég að ég reyni líka að finna aðra lausn, var ekki annað forrit sem ég CallerLookUp eða e-h slíkt? Og hætta Já strax að rukka mann ef maður tekur forritið út eða þarf að segja upp þjónustunni (efa það að vísu)..
Það var eitthvað slíkt forrit til... Vegna kvartana frá já þá var það fjarlægt úr market en það er enn fáanlegt á google code síðu þess sem bjó forritið til... Man bara ekki hver slóðin er


129kr á mánuði er náttúrulega bara kjánalegt fyrir forrit sem maður notar í örfá skipti á mánuði

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 18:32
af zedro

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 19:55
af inservible
Ég hafði ekki hugmynd að þetta kostaði enda er appið farið núna, djöfulsins rugl!

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 20:05
af pattzi
inservible skrifaði:Ég hafði ekki hugmynd að þetta kostaði enda er appið farið núna, djöfulsins rugl!
Er eiginlega ekki að týma að henda því út því nenni ekki að svara sumu Fólki og fyrirtækjum.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 20:21
af arnif
http://goo.gl/QLj1X" onclick="window.open(this.href);return false;

Mjög hentugt.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 20:35
af hagur
Er ég semsagt sá eini hér sem lendi í því að alltaf þegar óþekkt símanúmer hringir í mig og ég fer á ja.is til að gá hver er, þá er viðkomandi númer ekki á skrá? Þoli ekki hvað er mikið af númerum í umferð sem ekki eru í símaskránni/ja.is

Þetta ja.is app myndi því gagnast mér lítið.

Re: Já appið 129 kr. á mánuði

Sent: Sun 15. Jan 2012 20:37
af pattzi
hagur skrifaði:Er ég semsagt sá eini hér sem lendi í því að alltaf þegar óþekkt símanúmer hringir í mig og ég fer á ja.is til að gá hver er, þá er viðkomandi númer ekki á skrá? Þoli ekki hvað er mikið af númerum í umferð sem ekki eru í símaskránni/ja.is

Þetta ja.is app myndi því gagnast mér lítið.
Nei er alltaf að lenda í þessu í appinu nema ef fyrirtæki er að hringja í mig.