Síða 1 af 1

HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 15:32
af jöllz
Hæ. Ég á í erfiðleikum með að ákveða mig hvaða síma ég ætti að kaupa mér. Langar í síma með:

Video call
a.m.k. 5mp myndavél
GPS (það er möst að hafa það gott)
eitthvað innra minni eða minniskort

HTC Desire S kostar 59 þús hjá NOVA, hann virðist uppfylla allar kröfur en hann er held ég með lélegu batteríi, eins og HTC símar eru yfirleitt...

Samsung Galaxy Ace kostar ca. 44 þús, hann er mjög fínn, sérstaklega fyrir verðið en er ekki með neinu innra minni

Samsung Galaxy W virkar mjög fínn, veit ekki með front camera upp á video call og svo er ekki ASSISTED GPS eins og á öllum hinum, en GPS-ið er möst.

Samsung Galaxy i9001 S kostar ca. 69þús. Hann virðist vera í góðu lagi en ég tými varla peningnum, full dýr.

Vonandi er einhver með hjálp fyrir mig!

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 15:49
af hagur
Hvað með LG Optimus 2x?

Kostar 59.900 í Elko.

Hefur allt sem þú ert að leita eftir og margt fleira ... Dual Core, 8mp myndavél sem getur tekið 1080p video, etc ....

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 17:32
af jöllz
Já, ég skoða þetta! Er samt ekki almennt hrifinn af LG símum, en ég skoða þetta. Takk :)

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 17:39
af Moquai
hagur skrifaði:Hvað með LG Optimus 2x?

Kostar 59.900 í Elko.

Hefur allt sem þú ert að leita eftir og margt fleira ... Dual Core, 8mp myndavél sem getur tekið 1080p video, etc ....
Ég átti LG Optimus 2x , án efa versti sími sem ég hef nokkurn tímann átt, mæli þvert á móti með því að kaupa hann.

Ég fór frá LG Optimus 2x yfir í Samsung Galaxy S II og get ekki verið meira ánægðari

Annars elska ég hönnunina á LG símanum en það sem ég þoli ekki við Optimusinn að þú þarft bókstaflega að hlaða hann 2-3 á dag, ég hélt að batteríið mitt væri ónýtt en þá er þetta bara rauntíminn á batteríinu.

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 19:36
af jöllz
Já, það er nefnilega málið. En HTC batteríið er líka drasl, samt finnst mér HTC meira spennandi símar en LG.

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 21:12
af AronOskarss
Ég tæki Desire S, mjög hrifin af HTC og þjónustunni þeirra.

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 21:37
af GrimurD
Er með Desire S og ég hef verið að hafa það sem reglu að hlaða hann bara alltaf á nóttunni. Oftast er hann í svona 50-60% hleðslu eftir daginn en ef ég fer að nota hann eitthvað mikið þá droppar það fljótt. Mjög fínn sími. Get hiklaust mælt með honum.

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 23:38
af jöllz
Takk fyrir svörin! Mér líst einnig best á HTC Desire S en ég fór í Símann í dag að skoða þetta, Desire var langþægilegastur og ég hugsa að maður þurfi hvorteðer að hlaða flesta þessa android síma á hverjum degi :)

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Fös 23. Des 2011 23:43
af intenz
Í versta falli geturu keypt öflugra batterí. Held að 1450 mAh komi með honum, getur farið upp í held ég 2400 mAh

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Lau 24. Des 2011 00:14
af jöllz
intenz skrifaði:Í versta falli geturu keypt öflugra batterí. Held að 1450 mAh komi með honum, getur farið upp í held ég 2400 mAh

Ok, það væri mesta snilldin. Veistu hvað það kostar ca. að kaupa öflugra batterí?

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Lau 24. Des 2011 00:50
af kizi86
er stolltur Optimus2x eigandi, átti fyrir optimus One..

með stock 2.2 android kerfinu var batteríið í fruglinu endalaust, setti upp juice defender og það varð skárra, setti svo upp Cyanogenmod nightly#185 með Vorkkernel OC/UV max 1500mhz min 216mhz kjarna, niðurklukka símann sjálfkrafa þegar slekk á skjánnum og þá er hann keyrandi á max 503mhz og min 216mhz, batteríið er alveg að duga upp i 2 dagana núna hjá mér og get varla verið sáttari..

mæli alveg með þessum síma, og sérstaklega þar sem hann er orðinn svona ódýr.. færð varla betri síma fyrir þennan pening (elko 59.900kr)

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Sun 25. Des 2011 21:24
af jöllz
Mun sennilega versla mér htc desire s þar sem hann virðist besti htc síminn f. verðið, en ef einhver lumar á uppástungum (t.d. nokia símar, er e-ð varið í þá? helst undir 60þúskallinn) þá endilega láta mig vita! :)

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Sun 25. Des 2011 21:46
af Swooper
jöllz skrifaði:Mun sennilega versla mér htc desire s þar sem hann virðist besti htc síminn f. verðið, en ef einhver lumar á uppástungum (t.d. nokia símar, er e-ð varið í þá? helst undir 60þúskallinn) þá endilega láta mig vita! :)
Myndi persónulega forðast Nokia snjallsíma eins og heitan eldinn eins og er, Symbian er á útleið og WP7 er ekki enn orðið nógu útbreiddur platform til að það sé til neitt af viti fyrir hann (m.ö.o. engin sniðug apps).

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Sun 25. Des 2011 22:25
af jöllz
Swooper skrifaði:
jöllz skrifaði:Mun sennilega versla mér htc desire s þar sem hann virðist besti htc síminn f. verðið, en ef einhver lumar á uppástungum (t.d. nokia símar, er e-ð varið í þá? helst undir 60þúskallinn) þá endilega láta mig vita! :)
Myndi persónulega forðast Nokia snjallsíma eins og heitan eldinn eins og er, Symbian er á útleið og WP7 er ekki enn orðið nógu útbreiddur platform til að það sé til neitt af viti fyrir hann (m.ö.o. engin sniðug apps).
O.k, eina sem ég vissi var að það er gott gps í þeim, takk!

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Sun 25. Des 2011 22:35
af techseven
kizi86 skrifaði:er stolltur Optimus2x eigandi, átti fyrir optimus One..

með stock 2.2 android kerfinu var batteríið í fruglinu endalaust, setti upp juice defender og það varð skárra, setti svo upp Cyanogenmod nightly#185 með Vorkkernel OC/UV max 1500mhz min 216mhz kjarna, niðurklukka símann sjálfkrafa þegar slekk á skjánnum og þá er hann keyrandi á max 503mhz og min 216mhz, batteríið er alveg að duga upp i 2 dagana núna hjá mér og get varla verið sáttari..

mæli alveg með þessum síma, og sérstaklega þar sem hann er orðinn svona ódýr.. færð varla betri síma fyrir þennan pening (elko 59.900kr)
Flottar upplýsingar, mig langar einmitt í öflugan síma sem má ekki kosta allt of mikið...

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Mán 26. Des 2011 16:52
af jöllz
En vitið þið hvernig þetta virkar með að kaupa öflugra batterí? Hvar maður kaupir það og hvað það gæti kostað

Re: HTC Desire S vs. Samsung Galaxy

Sent: Mán 26. Des 2011 18:59
af ingibje
ég á optimus x2 og honum var hrósað vel þegar ég keypti hann. enn það tók mig ekki langan tíma að sjá þetta sé algjört drasl.

ég mun aldrei kaupa mér raftæki frá eins slöku merki og LG er.

ConS;

þeir eru ári eftir á með allar uppfærslur fyrir síman, þeir lofuðu að gingerbread kæmi á síman og sú uppfærsla var að koma langt, langt, langt eftir öðrum framleiðendum.

android Os kerfið á símanum er stútfullt af hinum og þessum göllum, það kemur t.d marg oft fyrir hjá mér að síminn sýni fullt samband svo þegar ég reyni að hringja þá missir síminn samband og enginn gat hringt í
mig allan tíman og ég þarf að restarta símanum til að fá samband aftur.

síminn lagaðist aðeins eftir að ég lét cyanogenmod 7 á hann, enn ég er langt frá því að vera sáttur.

batterýið er ótrúlega lélegt, stock android eða á hvaða kerfi sem er, það er allavegna mín reynsla á því. ef ég gleymi að hlaða hann yfir eina nótt, þótt Ekkert sé í gangi ( 3g, gps, wifi ) þá er hann allveg tómur um leið.

jákvæðu hliðarnar á símanum væri að hann lýtur ágætlega út, ágætis myndavél, hraður, gps-ið byrjaði loksins að virka þegar ég lét cyanogenmod 7 á hann ( að einhverju viti ).

væri kannski fín kaup á 50.þús ef þú myndir ekki lenda í þessu vandamáli með sambandið í honum, þetta er víst nokkuð þekkt vandamál með optimus x2.

; LG þarf að laga þessa hugbúnaðargalla og setja kraft í það ef þeir ætla vera einhvað samkeppnis hæfir á þessum markaði!.