Síða 1 af 1
Hjálp við skjákortakaup.......
Sent: Þri 11. Mar 2003 01:25
af Tesli
Sælir,
Ég er að fara að kaupa mér skjákort og var að spá í í hvaða korti er maður er að fá mest fyrir peninginn, er það Ati radion 9700 eða geforce ti eða hvað.
(Vil ekkert drasl)
Sent: Þri 11. Mar 2003 01:30
af kiddi
Radeon9700 - ekki spurning!
Sent: Þri 11. Mar 2003 09:58
af Jakob
Ég myndi kaupa mér Radeon 9700 PRO All-In-Wonder kort í dag, GeForce FX kæmi ekki til greina.
Sent: Þri 11. Mar 2003 10:17
af Castrate
Ég er ekki ATI fan eins og hinir ég myndi fá mér Geforce FX. Sama hve gott þetta Radeon kort er.
Sent: Þri 11. Mar 2003 13:23
af Atlinn
Það er bæði komin Radeon 9200, 9600 og 9800 svo eru líka komin ný Geforce FX kort, með mun betri kælingu.
En ef ég ætti mikinn pening mindi ég skella mér á Radeon 9700 Pro eða All-In-Wonder [tv-out og -inn)
En ef ég væri aðeins að spara mindi ég fara í boðeind og skella mér á ASUS Geforce 4 Ti-4200 128 mb
Sent: Þri 11. Mar 2003 21:34
af Jakob
Ég hef alltaf verið með GeForce kort, og er með GF4 4600 í dag.
Samt myndi ég aldrei fá mér GeForce FX kortið í dag af ýmsum ástæðum:
1. Alltof dýrt (mv. Radeon 9700 PRO)
2. Alltof stórt (tekur 2 slot!)
3. Performar ekki eins vel og ég bjóst við
Sent: Þri 11. Mar 2003 21:41
af GuðjónR
Með öðrum orðum...GeForce FX sucks!
Sent: Þri 11. Mar 2003 22:45
af kemiztry
4. Radeon 9800 tekur GeeeeForce FX í ónefnt gat!
Sent: Mið 12. Mar 2003 12:23
af Atlinn
Jakob skrifaði:2. Alltof stórt (tekur 2 slot!)
ekki lengur, nýja útgáfan er bæði ódýrari og eins og ég sagði með nýrri og beruumbættri kælingu
http://www.tomshardware.com/graphic/20030311/index.html
Sent: Mið 12. Mar 2003 14:38
af kiddi
Nýju GeForceFX 5200 & 5600 eru *slæm fjárfesting* að mínu mati, þeir standa sig verr undir venjulegum kringumstæðum í DirectX8 leikjum heldur en GeForce4 Ti4200 !!! Þeir njóta sín hinsvegar mun betur en Ti4200 í DirectX9 leikjum... en að sama skapi þá er Radeon9500 Pro mun betri í DirectX9 og er í svipuðum verðflokki. Mín ráðlegging: GLEYMIÐ NVIDIA í bili. Þeir eru búnir að klúðra þessu öllusaman. Ef þú ætlar að kaupa skjákort fyrir leiki næsta árs þá mæli ég eingöngu með Radeon9500PRO-9600-9700-9800
Sent: Mið 12. Mar 2003 16:50
af MezzUp
sammála Kidda......