Síða 1 af 1

Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fim 15. Des 2011 20:33
af birgirdavid
Góða kvöldið elsku vaktarar , er aðeins í smá pælingum hvað mundi ég fá fyrir tölvuna mína ?
Skutlan sjálf er í undirskrift :D

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fim 15. Des 2011 22:16
af andresgunn
Ég býð 1000 krónur fyrir hvern punkt í leturstærð lýsingar, upp að 48 punkta letri.

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fim 15. Des 2011 23:27
af birgirdavid
Hahaha góður þessi :megasmile
Víst að fólk sér þetta ekki þá eru þetta speccarnir af mínum heitt elskaða turni

Móðurborð : Gigabyte P55A-UD3
Örgjörvi : Intel Core i7-860 2.8 GHz
Skjákortin : Nvidia GeForce GTS250 1GB og Nvidia GeForce 9500 GT
Vinnsluminni : 4GB Mushkin DDR3
Aflgjafi : AXP 500W
Harðir diskar : 3x Seagate 500GB
Tölvukassi : Cooler Master HAF X
Einnig er kominn önnur stór vifta í toppinn á turninum :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fim 15. Des 2011 23:47
af bulldog
er jaðarbúnaðurinn til sölu ?

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fim 15. Des 2011 23:59
af birgirdavid
Heyrðu nei því miður , er held ég ekki að fara selja þetta strax hef bara verið að pæla hvað ég fengi mikið fyrir tölvuna og fá mér 27" Imac víst að maður er búinn að fjárfesta í Macbook Pro þá fann ég að Imac hentar mér eiginlega betur :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 00:10
af bulldog
hvað kostar eiginlega 27" imac :wtf

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 00:23
af birgirdavid
Í dag er hún á litlar 279.990 krónur hjá buy.is :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 04:59
af Benninho10
Býð 75þ án skjákorts.

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 12:08
af SkaveN
Ég væri til í að kaupa af þér örgjörvan ef þú ferð í partasölu, vertu i bandi ef það gerist. :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 13:50
af birgirdavid
75 þúsund já sæll , er hún ekki að fara á meira en það ? :D

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 15:04
af ZiRiuS
Þetta er skutla samt :/

Mynd

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 17:34
af vikingbay
ZiRiuS skrifaði:Þetta er skutla samt :/

Bitch please..

Mynd

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 18:19
af ZiRiuS
vikingbay skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Þetta er skutla samt :/

Bitch please..

Svaka flott mynd!
Samt ef ég googla skutla þá koma bara einhverjar sjeikí píur...

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Fös 16. Des 2011 18:23
af birgirdavid
hahaha það er gaman að þessu :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Lau 17. Des 2011 17:39
af birgirdavid
upp :)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Lau 17. Des 2011 17:42
af SolidFeather
Skellir bara Macbuntu upp á kvikindið, þá þarftu ekkert að fá þér imac!

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Lau 17. Des 2011 18:59
af dori
Kuldabolinn skrifaði:Víst að fólk sér þetta ekki þá eru þetta speccarnir af mínum heitt elskaða turni
Kuldabolinn skrifaði:Heyrðu nei því miður, er held ég ekki að fara selja þetta strax hef bara verið að pæla hvað ég fengi mikið fyrir tölvuna og fá mér 27" Imac víst að maður er búinn að fjárfesta í Macbook Pro þá fann ég að Imac hentar mér eiginlega betur :)
Þú hlýtur að meina fyrst að.
Wikipedia skrifaði:Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.
Það er ótrúlega undarlegt að lesa þetta. Gangi þér annars vel með söluna. Þetta er ekkert illa meint, líttu bara á það sem frítt bump.

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Sun 18. Des 2011 05:31
af birgirdavid
SolidFeather : Haha það er ekki það sama fjélagi :)
dori : Já ég meinti það hehe , úff maður lærir alltaf einhvað nýtt á dag ;)

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Sun 18. Des 2011 05:40
af Danni V8
Ég sem hélt að ég væri að koma að söluþræði fyrir flotta konu :(

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa skutlu

Sent: Sun 18. Des 2011 05:45
af birgirdavid
hahahaha tölvan mín er sexy og hún veit það :megasmile