Síða 1 af 1

Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Sun 11. Des 2011 18:05
af dogalicius
Er að spá í að formatta diskinn því mér finnst eins og tölvan hafi hægt svolítð á sér,
þetta er diskurinn sjá hér http://www.mushkin.com/Digital-Storage/ ... GB-DX.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;

Það sem ég er að velta fyrir mér hvernig er best að fara í að setja fresh windows upp á honum??

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Sun 11. Des 2011 19:25
af emmi
http://forum.corsair.com/v3/showthread.php?t=90648" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Sun 11. Des 2011 20:56
af dogalicius
Takk fyrir þetta Emmi, Einmitt það sem ég var að leita að :)

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 13:30
af Nariur
til að setja windows upp á tölvu, sama hvort hún er með SSD eða HDD, seturðu windows disk í geisladrifið og bootar af honum, svo fylgirðu leiðbeiningunum. Þú þarft ENGIN auka forrit

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 13:52
af TheThing
Ég verð aðeins að leiðrétta smá. Svarið hjá Emmi hjálpar að ENGU leiti til og er mjög misvísandi svar miðað við spurninguna.

En eins og Nariur sagði, þá skiptir það engu máli með hvort það sé SSD eða HDD, þú formattar tölvuna á saman hátt. Emmi, vertu ekki að rugla í fólki.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 14:28
af emmi
Það er hægt að formatta diska á nokkra vegu. Hann bað hinsvegar um bestu leiðina til að formatta SSD disk, og þetta er besta leiðin til að restore'a performance á SSD disk.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 14:31
af Daz
emmi skrifaði:Það er hægt að formatta diska á nokkra vegu. Hann bað hinsvegar um bestu leiðina til að formatta SSD disk, og þetta er besta leiðin til að restore'a performance á SSD disk.
Er ekki besta leiðin bara "Format x:" ? Þessi leið sem þú póstaðir hreinsar diskin, sem er ekki það sama og Format.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 14:41
af emmi
Hreinsar format ekki diskinn? Hann getur auðvitað bara notað format tólið í Windows uppsetningunni til að strauja diskinn, það vita allir. En til þess að hreinsa diskinn almennilega þá er mælt með þessari aðferð fyrir SSD diska, sérstaklega ef það er búið að skrifa mikið og lengi á hann. Þessi aðferð tekur enga stund.
Secure Erase cleans the MFT (Master File Table) bringing the drive to an "out of the box" state.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 14:59
af TheThing
Þessi þráður er gulls ígildi.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 15:10
af Daz
emmi skrifaði:Hreinsar format ekki diskinn? Hann getur auðvitað bara notað format tólið í Windows uppsetningunni til að strauja diskinn, það vita allir. En til þess að hreinsa diskinn almennilega þá er mælt með þessari aðferð fyrir SSD diska, sérstaklega ef það er búið að skrifa mikið og lengi á hann. Þessi aðferð tekur enga stund.
Secure Erase cleans the MFT (Master File Table) bringing the drive to an "out of the box" state.
Format er ekki hreinsa. Format er bara að "sníða" diskinn, venjulega í einhverju ákveðnu filesystem. Það er venjulega nóg fyrir alla. Gögnin sem verða eftir á diskinum eru ekki referencuð í neinum link töflum (eða hvernig sem þetta er nú sett upp) og því bara merkingarlaus runa af 0 og 1.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 15:13
af start
Ekki vera vondir við Emma, þetta er rétt hjá honum.

SSD eru ekki eins og harðir diskar þeir eiga erfiðara með að eyða gögnum en harðir diskar.
Harðir diskar merkja svæði á disk sem laust og skrifa svo yfir það næst þegar vantar pláss sama gerist með SSD hann merkir gögn sem má eyða en getur ekki skrifað yfir þau, hann verður að eyða þeim fyrst og það gerir hann bara þegar honum vantar pláss, hann leitast frekar við að skrifa á tómt pláss.

TRIM í Windows 7 á að sannanlega eyða gögnum þegar tölvan er idle til að draga úr því að skrifhraði detti niður en hefur stundum ekki undan.

Eina leiðin til að gera diskinn eins góðan og í byrjun er að segja honum að taka sér tíma og sannanlega eyða gögnunum á sér og það er hægt að gera með forriti frá Parted Magic sem heitir disk erase. Þá fer í gang internal erase skipun og eyðir öllum gögnum.

Ef diskur er formattaður með full format þá er hann fullur í augum disksins og skrifhraði fellur niður.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 15:20
af Daz
I sit corrected! (Það sem ég skrifaði er samt rétt, þ.e.a.s. Format er ekki hreinsun.)

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 15:53
af dogalicius
Þið eruð bestir :) annars var þetta svar sem emmi gaf akkurat það sem ég var að leita , takk samt allir

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 12. Des 2011 17:03
af Nariur
Ég svaraði út frá þessu:
dogalicius skrifaði: Það sem ég er að velta fyrir mér hvernig er best að fara í að setja fresh windows upp á honum??
Þetta forrit sem emmi benti á ætti, jú, að auka skrifhraðann í einhvern tíma hjá þér. En það ætti ekki að laga neinn hægagang þar sem það er að mestu byggt á leshraða

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Þri 13. Des 2011 12:00
af dogalicius
já ok en ég var einmitt að velta fyrir mér hvernig væri best að formata ssd vegna þess að þeir eru ekki eins og venjulegur hdd og ekki mælt með að formatta sem slíkan, kannski þestta hafi verið villandi hvernig ég setti þetta upp og biðst ég afsökunar á því, en annars þakka ég fyrir öll svörin.

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Þri 13. Des 2011 12:07
af Nariur
dogalicius skrifaði:þeir eru ekki eins og venjulegur hdd og ekki mælt með að formatta sem slíkan
say what? það er þá eitthvað ég hef ekki heyrt. Það eina við venjulegt format er að skrifhraðinn er ekki jafn hár til að byrja með (jafnast út þegar diskurinn fyllist) ef þú ert ekki með TRIM

Re: Hvernig er best að Formatta SDD

Sent: Mán 19. Des 2011 17:50
af bulldog
takk emmi :) worked like a charm :P