Síða 1 af 1

Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 17:11
af dnz
Málið er að ég held að ég sé með keylogger í tölvunni og þarfnast að losna við helvítið. Einn daginn var ég eitthvað að dunda mér á fb og byrjaði að geta ekki skrifað á í ó og, kom bara a i o, svo byrjuðu chat gluggarnir mínir á fb að fá flog og alltaf opnast og lokast þannig að ég skeit náttúrulega nánast á mig, loggaði mig útaf og breytti um password í annari tölvu. Hver væri besta leiðin að "díl-a" við þennan óboðna gest?

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 17:13
af kubbur
hljóta að hafa fylgt einhverjar leiðbeiningar með honum, þarft að finna þær til að sjá hvaða key combination þarf til að gera hann sýnilegan

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 17:37
af dnz
Hef ekki hugmynd hvar né hvernig ég get fundið hann :(

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 17:42
af mundivalur
það er hér http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=15&t=38215" onclick="window.open(this.href);return false;
edit **æ sorrý nota þetta http://download.bleepingcomputer.com/sUBs/ComboFix.exe" onclick="window.open(this.href);return false;
edit aftur þetta var þarna combofix og mse vírusvörnin

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 18:16
af coldcut
kubbur skrifaði:hljóta að hafa fylgt einhverjar leiðbeiningar með honum, þarft að finna þær til að sjá hvaða key combination þarf til að gera hann sýnilegan
say what now? Hann er að tala um keylogger...

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 18:18
af dnz
mundivalur skrifaði:það er hér http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=15&t=38215" onclick="window.open(this.href);return false;
edit **æ sorrý nota þetta http://download.bleepingcomputer.com/sUBs/ComboFix.exe" onclick="window.open(this.href);return false;
edit aftur þetta var þarna combofix og mse vírusvörnin
Avg stoppaði þetta og sagði að þetta væri trojan?

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 18:27
af mundivalur
MSE virðist vera sama :D þetta virkaði allarvegna hjá mér þegar ég fékk allar ´´´´´´´´´´´´urnar :D

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 18:36
af dnz
Er núna að biðja mig um að slökkva á öllum vírusvörnum.... Hvað varstu að senda mér?

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 18. Nóv 2011 19:26
af mundivalur
heheh það þarf að gera það annars virkar þetta ekki :D
http://www.combofix.org/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Lau 19. Nóv 2011 01:54
af kubbur
coldcut skrifaði:
kubbur skrifaði:hljóta að hafa fylgt einhverjar leiðbeiningar með honum, þarft að finna þær til að sjá hvaða key combination þarf til að gera hann sýnilegan
say what now? Hann er að tala um keylogger...
síðast þegar ég setti upp keylogger þá fylgdu með honum leiðbeiningar

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Lau 19. Nóv 2011 04:50
af Bioeight
kubbur skrifaði:síðast þegar ég setti upp keylogger þá fylgdu með honum leiðbeiningar
Flestir keyloggers eru settir upp án vitund notandans og í óþökk notandans, þar af leiðandi hefur notandinn ekki aðgang að skjölum og leiðbeiningunum. Oft eru það vírusar sem sjá um uppsetninguna á keylogger fyrir þig og getur verið erfitt að ná þeim út.

Hinsvegar ef þú ert að setja upp keylogger til að geta njósnað um fólk þá er kannski staðan önnur, en þá segi ég líka bara SKAMM.

Annars er forrit sem heitir HijackThis sem hægt er að nota stundum til að greina betur hvaða trojan þetta er og þá hvernig er hægt að losna við hann. Oft ef almennar vírusvarnir virka ekki þá þarf eitthvað spes tól til að fjarlægja veiruna. Scannið úr HijackThis sýnir hvað er almennt að gerast í tölvunni þinni, getur saveað log file af scanninu og sent hingað ef þú vilt aðstoð við að lesa út úr honum, þó get ég ekki lofað því að persónulegar upplýsingar muni ekki fylgja með.

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Lau 19. Nóv 2011 11:02
af kubbur
Bioeight skrifaði:
kubbur skrifaði:síðast þegar ég setti upp keylogger þá fylgdu með honum leiðbeiningar
Flestir keyloggers eru settir upp án vitund notandans og í óþökk notandans, þar af leiðandi hefur notandinn ekki aðgang að skjölum og leiðbeiningunum. Oft eru það vírusar sem sjá um uppsetninguna á keylogger fyrir þig og getur verið erfitt að ná þeim út.

Hinsvegar ef þú ert að setja upp keylogger til að geta njósnað um fólk þá er kannski staðan önnur, en þá segi ég líka bara SKAMM.
.
við vorum að hrekkja félaga okkar, sem skuldaði sinn hluta af leigu, varð pritty fyndið þegar hann gat hvergi loggað sig inn, svo hann borgaði leiguna

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Lau 19. Nóv 2011 11:14
af GuðjónR
dnz skrifaði:
mundivalur skrifaði:það er hér http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=15&t=38215" onclick="window.open(this.href);return false;
edit **æ sorrý nota þetta http://download.bleepingcomputer.com/sUBs/ComboFix.exe" onclick="window.open(this.href);return false;
edit aftur þetta var þarna combofix og mse vírusvörnin
Avg stoppaði þetta og sagði að þetta væri trojan?
Það er mjög algengt að eitt vírusvarnarforrit haldi að annað vírusvarnarforrit sé "vírus".
Ég myndi uninstallera AVG, keyra þetta forrit og eftir að er búið að hreinsa út keyloggerinn setja AVG upp aftur.

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Sun 20. Nóv 2011 22:02
af dnz
Jæja, þá er ég búinn að prófa þetta allt, hvernig get ég samt verið viss um að hann sé horfinn?

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Sun 20. Nóv 2011 22:14
af GuðjónR
dnz skrifaði:Jæja, þá er ég búinn að prófa þetta allt, hvernig get ég samt verið viss um að hann sé horfinn?
Geturðu skrifað ó og á núna?
Til að vera 10000% þá er það format/install.

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Mán 21. Nóv 2011 10:05
af dnz
Heyrðu allt komið eins og það á að vera, er svona 99% viss. Ef þetta poppar aftur upp þá er það greinilega bara format :/ Takk fyrir alla aðstoðina! Alltaf gott að geta leitað hingað þegar vandinn berst óðum.

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Mán 21. Nóv 2011 12:33
af Benzmann
keyrðu bara Malawarebytes og Super AntiSpyware, annað hvort að þeim ætti að finna þetta fyrir þig og henda þessu út.

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Mán 21. Nóv 2011 16:47
af inservible
Malawarebytes er algjörlega málið. Mæli alltaf fyrst og fremst með því, plús það er frítt!

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 25. Nóv 2011 21:06
af dnz
Prófaði allt, takk fyrir alla hjálpina en endaði bara með því að formatta til að vera öruggur :) Hef ekki orðið var við neitt eftir formattið en það sem gerðist meðan keyloggerinn var í tölvunni var að facebook chattið mitt fór alltaf í fokk og var að skipta um chat glugga á milljón og það gerist stundum ennþá, hef breytt passwordinu mínu á fb nokkrum sinnum eftir formattið en þetta gerist en... Formattaði bara C:/ diskinn minn og er með 2 aðra, gæti verið að keyloggerinn sé á hinum drifunum? Vill helst ekki formatta þau en ef það er það sem ég þarf að gera enda ég á því :/ Gæti verið að gaurinn hafi hackað fb mitt eða eitthvað eða er hann kannski bara að ná að recovera passwordið mitt á fb?

Re: Keylogger. Þarf aðstoð fljótt.

Sent: Fös 25. Nóv 2011 21:56
af Kristján
fb chatið er alveg þekkt fyrir að vera á sýru