Síða 1 af 1
Kassi utanum server
Sent: Þri 11. Maí 2004 23:54
af djjason
Fyrst enginn gat svarað síðasta pósti mínm ákvað ég að koma með nýjann póst:). Ég er að leita mér að kassa utanum server. Serverinn er svona í minni kantinum (fyrir utan mb og örgjörva er bara diskur, kanski tveir og skrifari).
Mér hefur verið bent á Chieftec Dragon og BX 3 en mig langar að vita hvort að þið mælið með einhverjum öðrum kössum og hvar þeir hugsanlega fáist.
Sent: Þri 11. Maí 2004 23:57
af KinD^
smíða þér sjálfur

það er gegt cool

Sent: Mið 12. Maí 2004 00:37
af Gandalf
alveg tilgangslaust að spreða tugum þúsunda í kassa utan um server, bara að fá sér einhvern lítinn og ódýran. Nema auðvitað að þú viljir alveg sérstaklega einhvern flottann.
Sent: Mið 12. Maí 2004 09:16
af pyro
farðu í Expert og skoðaðu kassana hjá þeim. Tudda góðir sumir hverjir og alls ekki dýrir.
Sent: Mið 12. Maí 2004 10:46
af heidaro
Sent: Mið 12. Maí 2004 13:58
af Rednex
Ég setti saman tölvu um daginn með seinni kassanum. Þetta er fínasti kassi, kannski ekki bestur í fileserver því það eru ekki mörg slot fyrir hdd nema að setja þá í cd-drifa slottin.
2 af vinum mínu eiga fyrrir kassan og er hann að reynast ágætlega en persónulega finnst mér seinni kassinn flottari
Málið er náttlega að smíða sér kassa, eins og Kind^ benti hérna á. Maður ætti náttlega að vera flottur á því og gera hann ú 6mm stáli, vantsheldan, eldheldan o.s.fr. skella síðan lás á og bolta hann niður í gólfið svo að enginn gæti stolið honum:lol:
Sent: Mið 12. Maí 2004 14:38
af Bendill
Það fer náttúrulega eftir staðsetningu hvernig kassa maður velur...
Ef kassinn á að vera úti á miðju gólfi (eða þar sem allir sjá hann) þá er alveg tilvalið að velja einhvern fínan. En ef kassinn er inni í skáp eins og hjá mér, þá geturðu keypt þér ódýrustu dolluna sem þú finnur. Ég keypti mér þennan
hér 
Sent: Mið 12. Maí 2004 15:14
af djjason
Bendill skrifaði:Það fer náttúrulega eftir staðsetningu hvernig kassa maður velur...
Já kanski, mér er nú alveg sama hvernig öðru fólki finnst kassin, plús það að hann verður aldrei á áberandi stað, annaðhvort inn í geymslu eða á öðrum svipuðum stað. Ástæða þess að ég var að spá í Dragon og BX 3 er sú að ég get læst þeim. Því þar sem serverinn verður getur vel verið að það verði smá umferð í kring og þá er ágætt að geta lokað.
Hinsvegar er ég búinn að fara að skoða bæði BX3 og Dragon (medium og mini) og þeir eru of stórir og overkill fyrir það sem ég er að fara að gera. Mini-inn er svipaður af stærð og ég þarf en hann er er bara með 300w power supply.
Ég er búinn að finna kassa sem mér líst á
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=514 . Hann er svipaður af stærð og Dragon minni og er ódýrari og á kassanum er sér loftinntak fyrir örgjörvaviftuna þannig að hún tekur loft inn beint að utan sem heillar mig mjög. Einnig er ég búinn að sjá svona kassa í action og hann var frekar hljóðlátur....annað en ég hef tildæmis heyrt í Dragon medium turninum. Einnig er 360w power supply á þessum sem er 60w meira en Dragon mini sem er dýrari.