Síða 1 af 1

Tölvan frosnar þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 20:26
af davidkef
þegar eg er að spila eitthverja leiki þá frosnar tölvan oft og eg veit ekki útafhverju, skjárinn verður allur svona útí hvítum kössum.
væri þakklátur ef einhver gæti sagt mér hvað væri að.

Re: Tölvan frosnar þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 20:31
af Klaufi
Svar sem hentar lýsingunni:

Tölvan er annaðhvort biluð eða ónýt.

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 20:33
af GuðjónR
Word censor update..:fr0snar=frýs

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 20:34
af hsm
Giska á ónýtt skjákort...

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 20:51
af mundivalur
Komin tími á þrif í turninum :megasmile

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 21:07
af davidkef
er búinn að eiga hana í 3 vikur frekar ný þannig eg held eg þurfi varla að þrýfa hana hahah

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 21:11
af angelic0-
gallað vinnsluminni eða gallað skjákort, finnst það líklegasta skýringin... þó að mér finnist seinni möguleikinn líklegri...

ágætt væri að vita hvaða leikir þetta eru, stýrikerfi og hvaða vélbúnað þú ert með :!:

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 22:46
af Baraoli
Myndi skjóta á skjákortið

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Lau 27. Ágú 2011 23:16
af rapport
Skilaboð frá Búdda, Guð mundi ekki hleypa þér í Windows...

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Sun 28. Ágú 2011 12:45
af davidkef
er með gtx570 msi skjákort, antec 900w current gamer, 8gb mushkin, intel 2500k, móðurborð: gigabyte z68a. windows 7 enterprise og þetta gerist mest þegar eg spila cod 4 og cs source en þetta er ekkert það oft að gerast en þegar þetta gerist þá er eins og leikurinn frosnar bara og eg get ekkert gert með lyklaborðinu til þetta að taka leikinn af skjánum t.d. get enþá talað á skype og svona þegar þetta gerist.

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Sun 28. Ágú 2011 13:18
af mundivalur
þetta hefði nú mátt koma fyrr,og hvaða harðidiskur? En það er líklegt að þetta sé skjákortið ! koma gallar hjá MSI

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Sun 28. Ágú 2011 13:22
af worghal
ég er með sama kort, hef ekki lent í neinu slíku

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Mán 29. Ágú 2011 13:08
af davidkef
harðurdiskur: Hitachi 2TB HDS723020BLA642 SATA3 U300 7200rpm 64MB Hard Drive. haldiði sem sagt að þetta er skjákortið hvernig get eg verið pottþéttur á því, get eg farið með það til einhvers að láta kíkja á þetta eða bara þar sem þetta er tryggt eða ?

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Mán 29. Ágú 2011 15:26
af Danni V8
Prófaðu annað skjákort ef þú hefur tök á því, annars fara með skjákortið þangað sem það er í ábyrgð, en þá verðuru án skjákorts í nokkra daga á meðan ábyrgðaraðilinn prófar kortið og staðfestir að það sé eitthvað að því áður en þeir annað hvort láta þig fá það aftur eða láta þig fá nýtt.

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Mán 29. Ágú 2011 16:05
af frr
Gætir prófað að hækka spennuna á kortið ögn með Afterburner.

Sjá
http://www.overclock.net/nvidia/1086699 ... ite-2.html
http://forums.techarena.in/monitor-vide ... 411356.htm

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Mán 29. Ágú 2011 17:09
af tyler1
Ég lenti í því sama og þú nema með 460GTX og var þá með gallað vinnsluminni, fékk annað í staðinn og þetta reddaðist. Er samt búinn að uppfæra síðan þá.

Re: Tölvan frýs þegar eg spila leiki !

Sent: Þri 30. Ágú 2011 16:10
af davidkef
vill þakka fyrir öll svörin :)