Síða 1 af 1
Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 00:41
af Blues-
Yo allir!
Er að fara plögga saman ultimate htpc vél .. í
Mini ITX kassa
Ætla að panta ISK 300 kassann með 150w PSU
Í kassanum verður ITX móðurborð, Socket 1155 og sennilegast set ég í hann i5 2400 3.1 Ghz Quad Core örgjörva.
Geforce 210 kort, SSD diskur og nátturlega vinnsluminni.
Þegar ég set síðan þessa spekka inn á
Extreme PSU Calculator-inn
þá segir hann lágmark 300 watta aflgjafa. En eins og áður er búið að koma fram þá er bara 150w PSU í kassanum sem ég er að pæla í ..
Er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af ?? eiga þessi spekk ekki alveig að ganga á þessum 150w PSU ??
Þessi hérna grein
http://www.itxgamer.com/powersupplies/d ... uch-power/" onclick="window.open(this.href);return false; vill nefnilega meina að PSU requirements séu oft ofmetin.
Nördar .. látið heyra í ykkur.
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 00:43
af Plushy
Í guðanna bænum ekki nota 150w aflgjafa, eða 300w.
Keyptu frá góðu merki sem er að fá góða dóma, helst með 80+ Bronze/Silver/Gold Certified.
Nema þú sért að púsla eins og ég hélt í mini atx kassa. 150w yrði samt of lítið held ég.
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 00:52
af Eiiki
Er með 500w fortron modular aflgjafa (80 bronze) sem ég get látið þig fá á 10k
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 00:58
af Blues-
Það er nefnilega málið ... í öllum þessum Mini ITX kössum eru innbyggðir aflgjafar ..
Kassinn sem ég er að spá í er þessi . .
http://www.antec.com/Believe_it/product.php?id=MjIzOQ==" onclick="window.open(this.href);return false;
Og hann er bara til með mest 150w PSU
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 01:03
af tölvukallin
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2066" onclick="window.open(this.href);return false; þessi er ekki með psu
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 01:05
af Blues-
Vissi af honum .. hann er bara ljótari en andskotinn ..
Svo myndi konan líka snappa ef ég myndi reyna að setja þennann kassa einhversstaðar í stofunni.
ISK 300 kassinn er bara svo djöf lítill og nettur ..
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 01:41
af oskarom
Persónulega myndi ég frekar fara í i3 og sleppa skjákortinu, innbyggðu kortin í sandy bridge eiga að duga í allt HD, þá ættiru að sleppa með þessum 150w aflgjafa.
Hvaða móðurborð ætlaru að taka?
Annað sem ég myndi gera er að googla fleirri HTPC build með þessum kassa og psu, ættir að geta fundið eitthvað build sem þér líst vel á og er komin reynsla á.
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 10:14
af bixer
afhverju ssd í htpc? er það ekki algjört overkill?
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 10:23
af Blues-
oskarom skrifaði:Persónulega myndi ég frekar fara í i3 og sleppa skjákortinu, innbyggðu kortin í sandy bridge eiga að duga í allt HD, þá ættiru að sleppa með þessum 150w aflgjafa.
Hvaða móðurborð ætlaru að taka?
Ég ætla að vera með XBMC Live setup á vélinni, keyrandi á linux. Almennilegir Intel HD reklar eru ekki til ennþá fyrir Linux, þess vegna þarf ég Geforce
kort sem styður
VDPAU til að nýta GPU-inn almennilega.
Annars er þetta borðið sem ég ætla að kaupa
Gigabyte H67N-USB3-B3
bixer skrifaði:afhverju ssd í htpc? er það ekki algjört overkill?
Þar sem þessi vél verður í stofunni .. þá vill ég frekar eyða aðeins meiri pening til að hafa hana algerlega silent.
Re: Dugar þessi PSU ?? Hjálp þegin
Sent: Mið 24. Ágú 2011 14:18
af siggi83