Síða 1 af 1
jæja.. hvað hef ég gert?
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:05
af RadoN
ég lenti í því að svona viftu-molex rakst innaní kassanum við sjálfan kassan, tölvan sló út
ég var að spá í hvort þið gætuð sagt mér hvað gæti verið ónýtt og hvað ekki..
ég er að fara suður eftir 3 daga og ætla að kaupa þar nýtt fyrir það sem skemmdist
vona að það hafi ekki farið mikið meira en móðurborðið og skjákortið..
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:38
af Bendill
Fer hún ekki í gang?
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:38
af tms
Þetta hefur skeð mörgum sinnum hjá mér þegar ég var að modda. Í mínum aflgjafa er sjálfvirkt öryggi sem slær út, og virkar svo eftir 5-10 mínótur með straumsnúruna ekki tengda (Chieftec PSU), en svo eru líka aðrir aflgjafar sem hafa öryggi sem þarf að stilla tilbaka með því að opna aflgjafann. (jafnvel þarf kannski nytt öryggi).
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:41
af axyne
alltaf lærið maður eitthvað nýtt. þetta með sjálfvirka öryggið hjá chiftec.
mitt PS hefur reyndar aldrei slegið sér út. en ég hefði
aldrei fattað að taka tölvuna úr sambandi i 10 min
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:43
af gumol
ég þurfti nú bara að taka tölvuna úr sambandi og setja aftur í samband (eftir misheppnaða tilraun til að hotpluga IDE hd
)
Sent: Mán 10. Maí 2004 20:55
af Pandemic
Ég veit að truepower er með sjálfvirkt öryggi sem slær út ég var að setja cable sleeving á snertu power vírarnir kassan
Sent: Mán 10. Maí 2004 23:47
af RadoN
vell.. ég gerði ýmislegt, örugglega bara sjálfvirka öryggið (er með chieftech psu) ég resetaði samt CMOS áður en ég gat komist að því hvort það var bara öryggið