Síða 1 af 1
skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 20:32
af bulldog
Nú stendur til að fara að skattleggja rafbækur. Hvað finnst mönnum um þetta ? Hvetur þetta ekki bara til meira niðurhals á rafbókum ??? Svo er verið að skoða skattalega meðferð á iPodum, lestækjum og öðru.
http://visir.is/vilja-skattleggja-rafba ... 1110829769
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 20:41
af Halldór
Ég tel að sala á svona rafbókum muni minka og ólöglegt niður hal á þeim muni margfaldast til muna. Vegna þess að þetta mun skjóta verðinu upp og þá muni fólk frekar kaupa bækur eða bara ná í þetta ólöglega útaf verðinu.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 20:49
af Gúrú
Skattleggja allt, helst að skattur sé meirihluti kaupverðs.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 20:57
af blitz
Shit það verður áhugavert hvernig þeir ætla að fara að því að skattleggja Apple Store, Steam og allar þessar direct2drive verslanir!
2012 - ár netlöggunar?
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:03
af pattzi
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:17
af intenz
Bíð eftir skattlagningu á skattinn.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:23
af methylman
Skattur á rafbækur er bara sjálfsagt mál ég keypti á Amazon.com Game Of Thrones allar 4 bækurnar á 12$ ekkert flutningsgj. VSK 7% eða 109 kr sé sko ekkert eftir því.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:24
af bulldog
vertu viss um að þessi illa vinstri græna stjórn á eftir að skattleggja rafbækur til dauðans ....

Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:34
af gardar
Hvernig í ósköponum ætla þeir að sjá hvort ég versli mér rafbækur?
Verður visa yfirlitið mitt vaktað? Eða nettengingin mín vöktuð?
Ég held að þeir sem séu að koma með þessar hugmyndir hafi ekki hundsvit á tækninni á bakvið þetta
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:39
af Blackened
gardar skrifaði:Hvernig í ósköponum ætla þeir að sjá hvort ég versli mér rafbækur?
Verður visa yfirlitið mitt vaktað? Eða nettengingin mín vöktuð?
Ég held að þeir sem séu að koma með þessar hugmyndir hafi ekki hundsvit á tækninni á bakvið þetta
nákvæmlega.. ég held að þeir sjái bara (eða þá að einhver sagði þeim) að þarna væru á ferðinni einhverskonar viðskipti.. sem að ríkið væri ekki að fá skerf af.. og þeir segi bara
"já við verðum að skattleggja þetta" án þess að hafa í rauninni hugmynd um hvernig það ætti að fara fram
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:39
af intenz
gardar skrifaði:Hvernig í ósköponum ætla þeir að sjá hvort ég versli mér rafbækur?
Verður visa yfirlitið mitt vaktað? Eða nettengingin mín vöktuð?
Ég held að þeir sem séu að koma með þessar hugmyndir hafi ekki hundsvit á tækninni á bakvið þetta
Mjög góður punktur!
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 21:59
af blitz
gardar skrifaði:Hvernig í ósköponum ætla þeir að sjá hvort ég versli mér rafbækur?
Verður visa yfirlitið mitt vaktað? Eða nettengingin mín vöktuð?
Ég held að þeir sem séu að koma með þessar hugmyndir hafi ekki hundsvit á tækninni á bakvið þetta
hm.
Fara smáís leiðina og skattleggja bara allar nettengingar aukalega þar sem að þær eru notaðar til þess að versla þessa hluti, svona eins og HDD eru skattlagðir.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 22:10
af IL2
Eftir því sem Helgi Hjörvar sagði á Bylgjunni í dag, eiga þessar bækur ekki að hækka. Heldur eiga seljendurnir að greiða vsk. hérna (sem ég á reyndar eftir að sjá gerast ) í stað heimalandsins með því að stofna kennitölu hérna.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 22:14
af GullMoli
IL2 skrifaði:Eftir því sem Helgi Hjörvar sagði á Bylgjunni í dag, eiga þessar bækur ekki að hækka. Heldur eiga seljendurnir að greiða vsk. hérna (sem ég á reyndar eftir að sjá gerast ) í stað heimalandsins með því að stofna kennitölu hérna.
Inb4 allir loka á Ísland.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 22:30
af braudrist
Hvenær kemur skóskattur? Meina, við slítum eitthvað af göngustígum þegar við löbbum, er þá ekki eðlilegt að setja skóskatt?
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 22:46
af hagur
braudrist skrifaði:Hvenær kemur skóskattur? Meina, við slítum eitthvað af göngustígum þegar við löbbum, er þá ekki eðlilegt að setja skóskatt?
Passaðu hvað þú segir, Steingrímur gæti verið hérna á vaktinni.
Re: skattlagning á rafbókum
Sent: Mán 22. Ágú 2011 23:06
af Klaufi
gardar skrifaði:Hvernig í ósköponum ætla þeir að sjá hvort ég versli mér rafbækur?
Verður visa yfirlitið mitt vaktað? Eða nettengingin mín vöktuð?
Ég held að þeir sem séu að koma með þessar hugmyndir hafi ekki hundsvit á tækninni á bakvið þetta
Það er nú þegar gert.
