Síða 1 af 1
bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 21:45
af skrifbord
hæ ok þetta er aðallega tölvusíða en datt í hug að spyrja hverjir aðrir gera við toyotu bíla. Einhver sem veit um gott verkstæði. bíllinn fer ekki í gang og þegar ég starta fara hraðamælir og snúningsmælir á fullt upp í topp og urrgar í öllu
einhver sem gæti hjalpað?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 21:50
af MatroX
rafmagnslaus? þetta lýsir því alveg 100%
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:11
af MrIce
búinn að láta athuga með startara / altenator ? mæli með PG þjónustunni (hef farið þangað ef eithvað rafmagnsvesen)
vonandi að þetta lagist
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:11
af hauksinick
startar hann?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:17
af skrifbord
Að þetta sé kanski bara geymirinn? Þetta byrjaði þannig að þegar ég snéri lyklinum til að starta þá svona pumpaði hann, eins og hann væri að ná sér í gang, hætti, alveg að ná sér í gang og hætti, og svo í gang. Það var í fyrradag. Í dag pumpaði hann einu sinni, mælar fóru á 100 upp í topp (snúnings og hraða) og svo í gang. keyrði smá, lagði honum og aftur að setja í gang 3 tímum síðar og þá fór hann í gang með mælana fyrst upp í topp. Helt þetta væri kanski að vantaði olíu á hann, fór á bensínstöð og varð að drepa á honum. Þegar ég reyndi að starta kom ekkert pump, kom ískrandi hljóð og mælar upp í topp og kviknaði á ljósi útvarps en svo dautt.
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:20
af Sphinx

er ekki alveg örugglega loft í dekkjonum ?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:21
af skrifbord
Sphinx: lol
jú þetta snýr að vélinni ekki dekkjum.
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:22
af Sphinx
skrifbord skrifaði:Sphinx: lol
jú þetta snýr að vélinni ekki dekkjum.
hehe eg varð bara

Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:22
af MatroX
prufaðu að gefa honum start.
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:25
af Sphinx
gæti samt trúað að þetta sé alternator... hvernig bíll er þetta ?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:26
af MatroX
Sphinx skrifaði:gæti samt trúað að þetta sé alternator... hvernig bíll er þetta ?
jamm eða geymir.
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:28
af Sphinx
ég veit að það er toyota bílaparta sala i mosfellsbæ.. held að þeir taki lika að sér að laga getur prufað að kíkja á þá
Re: bílaviðgerðir
Sent: Fim 04. Ágú 2011 07:36
af skrifbord
hæ, gekk ekki að koma honum af stað með að gefa honum start. Sá sem það reyndi með mér telur þetta vera startarann. Hann er kominn í viðgerð núna.
Veit einvher hvað gæti kostað að gera við startarann ef þetta er hann?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Fim 04. Ágú 2011 08:05
af biturk
hvernig toyota er þetta?
startarinn getur verið vandamál, þetta getur líka verið eitthvað einfalt eins og laust jarðsamband eða lausir pólar eða spanskræna á geimi, jafnvel útleiðsla ef þú ert óheppin
hversu gamall er bíllinn?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Fim 04. Ágú 2011 09:01
af skrifbord
Corolla 2000 árg.
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 31. Ágú 2011 12:37
af skrifbord
vildi bara þakka umræðuna og hjálpina og segja ykkur að þetta var geymirinn.
Og mér var bent á:
Re: bílaviðgerðir
Innleggfrá MrIce Mið 03. Ág 2011 22:11
búinn að láta athuga með startara / altenator ? mæli með PG þjónustunni (hef farið þangað ef eithvað rafmagnsvesen)
vonandi að þetta lagist
--- Og ég hvet menn til að nýta sér PG þjónustuna
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 31. Ágú 2011 14:42
af angelic0-
m.v. að allir mælar fara í ruglið ætla ég að giska á lélegt jarðsamband frá boddý yfir á mótor
En gæti líka verið útleiðsla í startara eða alternator... snýr hann vélinni ? eða koma bara smellir

Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 31. Ágú 2011 15:29
af Halli13
skrifbord skrifaði:vildi bara þakka umræðuna og hjálpina og segja ykkur að þetta var geymirinn.
angelic0- skrifaði:m.v. að allir mælar fara í ruglið ætla ég að giska á lélegt jarðsamband frá boddý yfir á mótor
En gæti líka verið útleiðsla í startara eða alternator... snýr hann vélinni ? eða koma bara smellir

Kannski að klára að lesa þráðinn áður en þú póstar?
Re: bílaviðgerðir
Sent: Mið 31. Ágú 2011 16:10
af angelic0-
Halli13 skrifaði:skrifbord skrifaði:vildi bara þakka umræðuna og hjálpina og segja ykkur að þetta var geymirinn.
angelic0- skrifaði:m.v. að allir mælar fara í ruglið ætla ég að giska á lélegt jarðsamband frá boddý yfir á mótor
En gæti líka verið útleiðsla í startara eða alternator... snýr hann vélinni ? eða koma bara smellir

Kannski að klára að lesa þráðinn áður en þú póstar?
sorry, ég las bara tvö efri póstana fyrir ofan minn, og af þeim þá dró ég þá ályktun að vandinn væri enn til staðar
