Síða 1 af 1

Vandræði :D

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:27
af Axel
Ég er að lenda í því að þegar ég fer í full screen leiki eins og Counter-Strike og Warcraft3 þá drepur tölvan á sér. Hún sýnir samt grænt ljós eins og það sé kveikt á henni en það slökknar á öllu. Ef ég prufa að slökkva á skjánum og kveikja á honum aftur fæ ég einhvern error um "No signal or....man ekki allveg". Gæti þetta verið örgjörvaviftan að beila þannig að örrinn sé að ofhitna?

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:39
af Hlynzi
Búinn að láta þér detta í hug power supply ?

hvernig eru speccarnir hjá þér, og hversu stórt PSU ?

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:44
af MJJ
Ég er sammala hlynsa finnst líklegast að þettta sé powersupplyið

Sent: Þri 04. Maí 2004 19:51
af fallen
Psu ellegar hiti.

Sent: Þri 04. Maí 2004 20:28
af Axel
Þá að tölvan sé ekki að fá nóg rafmagn ?

Sent: Þri 04. Maí 2004 20:39
af Axel
og já ég er frekar mikill nýgræðingur :D

Sent: Þri 04. Maí 2004 20:48
af Axel
Psu-ið er að mig mynnir 250-300w. Það er frekar gamalt.

Sent: Þri 04. Maí 2004 20:49
af MJJ
Skiptu því út,, eða fækkaðu hlutum inní tölvunni

Sent: Þri 04. Maí 2004 21:24
af Sveinn
Kaupa sér kassaviftur eða betri cpu viftu eða einhvernvegin betri viftu.
Kaupa sér betra psu, ég er með 400 w, kaupa í minnsta lagi 380
:8)

Sent: Þri 04. Maí 2004 21:53
af viddi
ég er með 400w og það var sagt að tölvan mín þyrfti að lágmarki 350w

Sent: Þri 04. Maí 2004 22:02
af Hlynzit
Sveinn skrifaði:Kaupa sér kassaviftur eða betri cpu viftu eða einhvernvegin betri viftu.
Kaupa sér betra psu, ég er með 400 w, kaupa í minnsta lagi 380
:8)


360 nægir alveg

Re: Vandræði :D

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:37
af MezzUp
ef að þetta gerist alltaf og bara þegar þú ferð í fullscreen leiki þá dettur mér fyrst í hug skjákorts driver.......

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:50
af gnarr
mér dettur í hug hiti.. tölvan hitnar auðvitað mest í þungum 3d leikjum. er kassinn hjá þér heitur viðkomu þegar það drest á öllu?

Sent: Mið 05. Maí 2004 08:40
af Stutturdreki
http://www.google.com/search?hl=en&ie=UTF-8&oe=UTF-8&q=PSU+Calculator&btnG=Google+Search

Getur svona sirka reiknað út hvað þú þarft stórt PSU. Fyrsta urlið sem kemur upp er alveg ágætt, hjá jscustompcs, en það gefur hámarks orkuþörf.. gætir sennilega látið minna PSU duga.

Sent: Mið 05. Maí 2004 10:17
af MezzUp
verður að lýsa þessu aðeins betur Axel, gerist þetta um leið og þú ferð í leikinn eða eftir smá tíma? Eru það sömu leikirnir sem hrynja alltaf?

Sent: Mið 05. Maí 2004 12:35
af xpider
ertu nokkuð með sjónvarpið tengt við tölvuna??

Sent: Mið 05. Maí 2004 15:47
af Axel
Sko.. Þetta gerist alltaf.. Sama hvaða leikur það er t.d. Counter-strike, Warcraft3 og Flight Simulator 2004 jafnvel :D.
Eftir svona 5 mins u.þ.b þá koggsar allt og hún drepur á sér.
btw. Ég notaði þennan PSU Calculator og fékk þetta út:
Your Recommended Minimum Power Supply is 394 Watts!!*

Svo það er best að fara kaupa sér nýtt. Er eitthvað sem þið getið mælt með? Helst hjá http://www.task.is

Sent: Mið 05. Maí 2004 16:32
af Pandemic
Antec truepower en það fæst nátturulega ekkert í task ég er voðalega ánægður með mitt ;) mjög hljóðlátt og gott líka með fan controlerum ;)

Sent: Mið 05. Maí 2004 17:10
af MezzUp
Einsog ég hef áður tekið fram þá hef ég ltila trú á sona watt calculatorum, örgjörvar taka mismikið eftir hversu mikil vinnsla er lögð á þá, sama við skjákort, ég er nú ekki viss en ég efa að allir harðir diskar taki ákkúrat 25 wött, dvd drif og skrifarar taka náttla mismikið eftir því hvort að þeir snúast, og hversu hratt þeir snúast, hljóðkort taka örugglega mismikið eftir því hvað maður hækkar mikið.......
ég held allavega að sona tölur séu þónokkuð sirkaðar.......

Svo, einsog flestir vita, þá segja watt tölur á PSU'um bara hálfa söguna, margir framleiðendur ljúga einfaldlega til um tölu, aðrir taka fram peak tölu, sem að er bara að marka uppað vissu leiti, og svo skiptir dreifingin á rail'in náttla máli

Sent: Mið 05. Maí 2004 20:10
af xpider
Ég get alveg lofað þér því að power supplyið skiptir ekki máli, athugaðu í display settings hvort að skjárinn hjá þér sé nokkuð stilltur sem secondary display.

Sent: Mið 05. Maí 2004 21:21
af Axel
xpider hann er eigi stilltur á það.