Síða 1 af 1

Uppfærsla á verðum

Sent: Mið 28. Apr 2004 19:51
af OverClocker
Vaktin er ekki að sýna réttan samanburð milli verslana, eins og hún gerði áður.

Það verður að gera eitthvað til að refsa þeim búðum sem uppfæra ekki verðin sín. Amk ekki hafa þá græna þegar raunveruleg verð eru miklu hærri en hjá öðrum.


Tillaga: Verð ættu að endast í 2 vikur, og svo ef verslunin loggar sig ekki inn á vaktina þá detta öll verð út hjá viðkomandi verslun.

Sent: Mið 28. Apr 2004 22:06
af Hlynzit
ég vissi ekki að verslanirnasr sjálfar gerðu þetta. Ef svo er þá er ég mjög svekktur útí comðuter.is

Sent: Mið 28. Apr 2004 22:16
af GuðjónR
Sammála...
Við erum að útfæra þetta núna. Sennilega verður það þannig að annaðhvort eru verslanir "virkar" og fá að halda aðgangi sínum að gagnagrunni eða ekki.
Þær sem eru ekki virkar verða þá uppfærðar af okkur aðra hverja viku á fyrirfram ákveðnum tíma eins og áður.
Þær verslanir sem verða uppfærðar af okkur missa tenginguna sína við grunninn.
Og sennilega væri best að raða verslunum upp eftir því hvort þær uppfæra sjálfar eða hvort við gerum það.
Það sem við myndum uppfæra væri þá lengst til hægri...

Any comment?

Sent: Mið 28. Apr 2004 23:15
af Hlynzit
bara flott sko :=)

Sent: Fim 29. Apr 2004 19:46
af OverClocker
Góð tillaga hjá Guðjóni að færa til hægri þessar verslanir sem eru ekki aktífar og uppfæra þær á ákveðnum tíma.
Enn og aftur verður maður að hrósa vaktinni fyrir gott starf!

Sent: Fim 29. Apr 2004 19:57
af viddi
Styð tillögu guðjóns

Sent: Fim 29. Apr 2004 20:18
af gumol
OverClocker skrifaði:Góð tillaga hjá Guðjóni að færa til hægri þessar verslanir sem eru ekki aktífar og uppfæra þær á ákveðnum tíma.
Enn og aftur verður maður að hrósa vaktinni fyrir gott starf!

Það er nú þegar búið að því.