Síða 1 af 1
CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 21:00
af vidirz
Sælir/ar
Er með bilaða logitech g5 mús sem ég er að nota og þarf því að fá mér nýja mús.
Er að pæla að fá mér annað hvort CoolerMaster Sentinel Advance eða Logitech G500 en er ekki viss hvora ég ætti að fá mér...
Hvor músin er betri í skotleikjunum?
Hvor er þæginlegri og áreiðanlegri?
Einhver sem hefur prófað þessar mýs?
Linkar:
CoolerMaster Sentinel Advance
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... c80907eb97Logitech G500
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... c80907eb97
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 21:09
af capteinninn
Ég var að velja milli G500 og G518 um daginn og mér sýndist flest review mæla frekar með G518 svo ég tók hana. Hef aldrei haft G518 áður og finnst hún mjög nice
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 21:16
af vidirz
hannesstef skrifaði:Ég var að velja milli G500 og G518 um daginn og mér sýndist flest review mæla frekar með G518 svo ég tók hana. Hef aldrei haft G518 áður og finnst hún mjög nice
Meinaru ekki mx518? Hef prófað hana, mér fannst g5 þæginlegri aðallega af því að það er hægt að bæta við þyngd (lóðum)
Fín mús samt
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 22:21
af kjarribesti
vidirz skrifaði:hannesstef skrifaði:Ég var að velja milli G500 og G518 um daginn og mér sýndist flest review mæla frekar með G518 svo ég tók hana. Hef aldrei haft G518 áður og finnst hún mjög nice
Meinaru ekki mx518? Hef prófað hana, mér fannst g5 þæginlegri aðallega af því að það er hægt að bæta við þyngd (lóðum)
Fín mús samt
Coolermaster sentinel advance, þetta er svo geðsjúk mús.. ég varð 50% betra í leikjum eftir að ég fékk hana
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 22:24
af ingisnær
ég mæli með logitech mx518 eða razer Imperator.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 22:28
af capteinninn
vidirz skrifaði:hannesstef skrifaði:Ég var að velja milli G500 og G518 um daginn og mér sýndist flest review mæla frekar með G518 svo ég tók hana. Hef aldrei haft G518 áður og finnst hún mjög nice
Meinaru ekki mx518? Hef prófað hana, mér fannst g5 þæginlegri aðallega af því að það er hægt að bæta við þyngd (lóðum)
Fín mús samt
Jú að sjálfsögðu, minn feill.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 23:20
af HelgzeN
taktu G500, hún er helmingi þægilegri en Mx518.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fim 28. Apr 2011 23:33
af Klaufi
Skal hirða af þér biluðu G5 músina
En ekki spyrja hinn og þennan hvað er besta músin, farðu og mátaðu, hver er best í hendi.
Það er algjörlega persónubundið, svo ef þú prufar nokkrar og 2-3 standa upp úr, þá skoðarðu fítusa og lest kannski reviews.
Fyrir mér skiptir mestu staðsetning M4 takkans, og hvernig hún situr í hendi. Ég þarf ekki M5 og þessvegna hentar G5 mér rosalega vel, að mínu mati besta músin (Sem ég hef prufað) fyrir stórar hendur..
HelgzeN skrifaði:taktu G500, hún er helmingi þægilegri en Mx518.
Ekki koma með svona heimskuleg komment, þetta er allt of persónubundið..
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fös 29. Apr 2011 18:01
af HelgzeN
Nei, þegar ég segi þægilegri þá meina ég betra grip, mér fannst aldrei þægilegt að lana með Mx518, samt mjög góð mús.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fös 29. Apr 2011 18:09
af Hvati
Finnst G500 frábær, nota takkana í svo mikið af forritum og leikjum, en þú verður bara að prufa þær báðar og sjá hvor er þæginlegri í hönd...
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Fös 29. Apr 2011 19:00
af ManiO
Ef þú fílaðir G5 þá er G500 æðisleg.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Lau 30. Apr 2011 10:56
af vidirz
Já, er búinn að máta g500 leyst vel á hana en á eftir að máta hina, dýrkaði G5 og hinar logitech sem ég hef verið með. En það sem skiptir mér meira máli eru specs, t.d. þegar ég er í skotleik þá þolir músin mín ekki að fara hratt á músamottunni (takmarkað m/s) þá fer hún í rugl eða hægist á hraðanum í leiknum (s.s. næ ekki að snúa mér að því sem ég vildi.. hratt)
Tók eftir Maximum Tracking Speed : 6.00 m/s hjá coolermaster músinni en 4.19 m/s hjá G500
Þannig að eg er að pæla meir í Coolermaster
En já verð að vera búinn að prófa þær báðar
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Lau 30. Apr 2011 11:03
af Hvati
vidirz skrifaði:Já, er búinn að máta g500 leyst vel á hana en á eftir að máta hina, dýrkaði G5 og hinar logitech sem ég hef verið með. En það sem skiptir mér meira máli eru specs, t.d. þegar ég er í skotleik þá þolir músin mín ekki að fara hratt á músamottunni (takmarkað m/s) þá fer hún í rugl eða hægist á hraðanum í leiknum (s.s. næ ekki að snúa mér að því sem ég vildi.. hratt)
Tók eftir Maximum Tracking Speed : 6.00 m/s hjá coolermaster músinni en 4.19 m/s hjá G500
Þannig að eg er að pæla meir í Coolermaster
En já verð að vera búinn að prófa þær báðar
Hvernig væri að hækka sensið aðeins
Þarftu kannski hálft borð til að spila tölvuleiki?
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Lau 30. Apr 2011 11:35
af einarhr
Mjög sáttur við mína Coolermaster mús, átti G9 á undan og Það eina sem mér líkaði betur við með G9 músina er að hún er aðeins þyngri.
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Lau 30. Apr 2011 15:26
af vidirz
Hvati skrifaði:Hvernig væri að hækka sensið aðeins
Þarftu kannski hálft borð til að spila tölvuleiki?
Er með mjög lítið sensitivity í skotleikjum, kannski er það ástæðan en nota alveg miðlungs músamottu stærð
einarhr skrifaði:Mjög sáttur við mína Coolermaster mús, átti G9 á undan og Það eina sem mér líkaði betur við með G9 músina er að hún er aðeins þyngri.
Já þetta er það sem ég er að pæla í líka, mig langar eiginlega frekar í mús í þyngri kantinum..
En hvernig er stærðin? minna en g9?
Re: CoolerMaster mús vs Logitech G500 valkvíði
Sent: Lau 30. Apr 2011 18:06
af einarhr
vidirz skrifaði:Hvati skrifaði:Hvernig væri að hækka sensið aðeins
Þarftu kannski hálft borð til að spila tölvuleiki?
Er með mjög lítið sensitivity í skotleikjum, kannski er það ástæðan en nota alveg miðlungs músamottu stærð
einarhr skrifaði:Mjög sáttur við mína Coolermaster mús, átti G9 á undan og Það eina sem mér líkaði betur við með G9 músina er að hún er aðeins þyngri.
Já þetta er það sem ég er að pæla í líka, mig langar eiginlega frekar í mús í þyngri kantinum..
En hvernig er stærðin? minna en g9?
nei svipuð á breidd og aðeins lengri,, þetta með þyngdina böggar mig samt ekkert en sensið í henni er svakalegt, með TwinLaser 5600 dpi.
Myndi gefa henni sjens ef væri þú