Síða 1 af 1

Val á móðurborði.

Sent: Fim 14. Apr 2011 21:05
af Pubbuffet
Er að fara að búa til mína fyrstu borðtölvu, þannig ég er algjör nýliði í þeim málum.

Ætla örugglega að kaupa:
Intel Core i5 2500K 3.3 Ghz Quad Core
(8.0GB) 2x4 GB DDR3 1333MHz
Geforce GTX-Ti 560 1024MB DDR5
2.0 TB SATA2

En ég hef enga hugmynd hvaða móðurborð ég á að fá mér.

Væri lika fínt að fá einhver meðmæli á hina hlutina.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fim 14. Apr 2011 21:07
af mic
Fá sér SABERTOOTH P67 móðurborðið og 1600 MHz minni.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 14:53
af Pubbuffet
Búinn að lagfæra setuppið:
Intel Core i5 2500K 3.3 Ghz Quad Core
1600 MHz - 8GB 2x4096MB
Geforce GTX-Ti 560 1024MB DDR5
2.0 TB SATA2
Blu-Ray - LG CH10LS20 Blu-ray og DVD - 303
Asus Sabertooth P67

En nú vantar mér ráð við aflgjafa vonandi er allt í lagi að þráðurinn er í vitlausum flokki.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 15:58
af MatroX
Taktu 2600k annað væri bara vitleysa

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 16:20
af Moldvarpan
Hvað er budgetið sem þú hefur í þessa tölvu? Þar liggur kötturinn grafinn.

Það er engin vitleysa að kaupa 2500k ef budgetið þitt liggur þannig, það munar 14.000 kr á þessum örgjörvum.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 16:25
af Predator
Pubbuffet skrifaði:Búinn að lagfæra setuppið:
Intel Core i5 2500K 3.3 Ghz Quad Core
1600 MHz - 8GB 2x4096MB
Geforce GTX-Ti 560 1024MB DDR5
2.0 TB SATA2
Blu-Ray - LG CH10LS20 Blu-ray og DVD - 303
Asus Sabertooth P67

En nú vantar mér ráð við aflgjafa vonandi er allt í lagi að þráðurinn er í vitlausum flokki.


Verður eiginlega að taka SSD með þessu setupi :)

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 16:46
af Pubbuffet
MatroX skrifaði:Taktu 2600k annað væri bara vitleysa


Nei takk.

Moldvarpan skrifaði:Hvað er budgetið sem þú hefur í þessa tölvu? Þar liggur kötturinn grafinn.

Það er engin vitleysa að kaupa 2500k ef budgetið þitt liggur þannig, það munar 14.000 kr á þessum örgjörvum.


Þar liggur hundurinn grafinn er nú réttara væni minn. Budget er maxað eiginlega núna.

Predator skrifaði:Verður eiginlega að taka SSD með þessu setupi :)


Meh,

Get varla farið að troða meiri pening í tölvunna þannig ég veit ekki.

Annars er enginn búinn að svara spurningu minni um aflgjafann.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Fös 15. Apr 2011 17:04
af Moldvarpan
500w aflgjafi dugar í að runna þennan lista þarna og hann er á hagstæðu verði. En ef þú vilt uppfæra í fleirri skjákort seinna, þá þarftu stærri aflgjafa.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Lau 16. Apr 2011 15:30
af audiophile
MatroX skrifaði:Taktu 2600k annað væri bara vitleysa


Af hverju segirðu það? Hann er eitthvað öflugri, en er hann 15.000kr öflugri?

Re: Val á móðurborði.

Sent: Lau 16. Apr 2011 15:39
af MatroX
audiophile skrifaði:
MatroX skrifaði:Taktu 2600k annað væri bara vitleysa


Af hverju segirðu það? Hann er eitthvað öflugri, en er hann 15.000kr öflugri?



já hann er það,

2500k er ekki með hyper threating þannig að hann er bara 4kjarna og með 4 threats en 2600k er með hyper threating og er þar að leiðandi 4kjarna og 8 threads eða 2 threads á hvern kjarna þannig að hann er tæknilega séð 8kjarna.

2600k er líka með 2MB meiri Cache miðað við 2500k. svo já 2600k er mikið betri ef þú horfir í framtíðina og ef þú ætlar að nota tölvuna í meira en leiki.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Þri 19. Apr 2011 17:16
af vidirz
Hvernig virkar þetta hyper threading, t.d. hjá mér í device manager stendur eins og að ég sé með 8 kjarna (líklega með þetta hyper threading), virkar það þá þannig að ég sé með 3.33ghz x 8 ? Þrátt fyrir að vera með quad core :-k

Re: Val á móðurborði.

Sent: Þri 19. Apr 2011 17:20
af Hvati
vidirz skrifaði:Hvernig virkar þetta hyper threading, t.d. hjá mér í device manager stendur eins og að ég sé með 8 kjarna (líklega með þetta hyper threading), virkar það þá þannig að ég sé með 3.33ghz x 8 ? Þrátt fyrir að vera með quad core :-k

2 þræðir eru keyrðir á hverjum kjarna. 8 Simulated kjarnar.

Re: Val á móðurborði.

Sent: Þri 19. Apr 2011 17:21
af Predator
Nei þessir auka þræðir eru svona mini-örgjörvar geta gert léttar reikniaðgerðir og hjálpa því til í þeim forritum sem styðja það að nota hyper threading. Ef maður er aftur á móti bara að spila leiki, surfa netið og horfa á bíómyndir hefur maður ekkert við þetta að gera þar sem það eru engir leikir sem nýta sér þetta í dag.