Síða 1 af 1

Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Lau 06. Nóv 2010 10:05
af oskarandri
Góðan laugardaginn..

Mig vantar svar við einni spurningu/pælingu

Ég er að dunda við að útbúa tölvu sem ég mun hafa í jeppanum hjá mér, ég er búinn að láta smíð álbox utan um þetta og slátrið sem ég er að nota er Dell lattitude D810. Á móðurborðinu er kælivifta og kælielement sem liggur utan í því og á örran. Spurningin er, get ég sleppt viftinu og kælielementinu (mun bora slatta af kæli raufum á kassan) eða er ég að ganga of langt með því?

Það er ekki þung vinsla á þessu.... tónlist, gps og internet. Stýrikerfið verður líklega uppsett á USB lykil.... annaðhvort LinuxICE eða Ubuntu

KV.
Óskar Andri

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Lau 06. Nóv 2010 10:28
af AntiTrust
Nei. Gætir aldrei sleppt því að hafa kælielement á örgjörvanum, ekki einu sinni þótt þú ætlaðir ekki að keyra meira en bara BIOSinn. Hún myndi hugsanlega ganga í 5-20sek og svo drepa á sér.

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Lau 06. Nóv 2010 12:31
af Klemmi
Fjárfestir bara í viftulausri tölvu :)

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Lau 06. Nóv 2010 12:43
af oskarandri
en þá er pointið með að smíða low budget tölvu alveg farið..... þetta er mikið skemmtilegra svona :-s

Takk fyrir svörin :)

Kostnaðurinn er so far er 0 kr...

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Lau 06. Nóv 2010 14:22
af Gets
Alltaf gaman að smíða eitthvað :happy
Hérna er mynd af kælikubbnum, það fer nú ekki mikið fyrir honum, svo er bara að modda einhverja viftu til að kæla kubbinn.
Þú getur fundið allskonar viftur á vefsíðum tölvuverslana og svo eru http://ihlutir.is/a/ líka með allskonar viftur.

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 00:09
af Klaufi
Ég held ég eigi til lítið element með áfastri viftu sem myndi henta þér helvíti vel, svo lengi sem hún megi stíga aðeins upp úr boxinu..

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 09:14
af oskarandri
Takk fyrir það en ég er búinn að koma þessu fyrir ;)

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 15:09
af Hafst1
Sæll Óskar Andri.

Ertu að setja þetta í Hilux?? Það væri gaman að sjá myndir af þessu hjá þér.
Maður hefur oft velt því fyrir sér að setja eina tölvu undir sæti... upp á græjustuðulinn :santa

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 15:27
af DabbiGj
Fer mikið eftir því hvar þú staðsetur tölvuna, hve mikin hita hún framleiðir, hve öflugt heatsink eru o.s.f.

svo er ég hrifnastur af því að koma vélum fyrir bakvið hanskahólfið uppá vatnasull og kaplalagnir

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 18:42
af nonesenze
bara svona pæling, væri ekki sweet kæling ef maður gæti útbúið svona "cold air intake" beint á cpuinn (þyrfti að vísu að vera á ferð svo það myndi virka)

Re: Tölva í bíl, get ég sleppt kæliviftu?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 18:50
af vesley
nonesenze skrifaði:bara svona pæling, væri ekki sweet kæling ef maður gæti útbúið svona "cold air intake" beint á cpuinn (þyrfti að vísu að vera á ferð svo það myndi virka)



Þarft að hafa eitthvað kæli"element" á örgjörvanum. Sama hvernig aðstæður séu í bílnum.