Síða 1 af 1
Klárlega nýliði.
Sent: Mið 25. Feb 2004 08:53
af fallen
Já, ég hef verið að spá í þessu í smá tíma og er ekki að fatta.
Hvað er RAID 0 eða 1 eða ofar (ef það er til)
Svo líka munurinn á hdd sem eru IDE eða SATA.
Væri eitthver fínn gaur til í að útskýra þetta fyrir mér

Sent: Mið 25. Feb 2004 09:48
af gnarr
raid er samheiti yfir tæknir til að láta marga diska vinna saman "sem einn" með þar til gerðum stýringum. orðið raid er skammstöfun á "Redundant Arrai of Inexpensive Disks"(Villuvarið Mengi af Ódýrum Diskum.. væri VMÓD á íslensku

hehe). þessi staðall var hannaður sem ódýr leið til að fá mikil afköst og áreiðanleika úr ódýrum diskum.
Raid 0 (sem er BTW ekki alvöru raid, þar sem það er ekki villuvarið) er þannig byggt upp að þú ert með 2 eða fleiri diska og deilir (strípar) gagna blokkum á milli diskanna þannig að hún les helmingin af gögnunum af hvorum disk fyrir sig. þetta veldur því að þú getur fengið mun meiri afköst (theoratically tvöfalt performance), en á móti því, þá eru tvöfalt meiri líkur á því að þú tapir gögnum, vegna þess að bara annar diskurinn þarf að bila til að þú tapir öllum gögnunum.
Raid 1 eða mirror virkar þannig að þú ert með 2 jafn stóra diska sem eru í rauninni bara afrit af hvorum öðrum. þannig eru mjög litlar líkur á að þú tapir nokkurntíman gögnum þar sem að þú ert sjálfkrafa alltaf með glænýtt bakcup af öllu. stór galli við þetta er að megabætið verður 2x dýrara.
Raid 5 er þannig að þú þarft að ver með 3-7 diska í mengi (semsagt að vinna saman). Raid stýringin notar jafn stórann hluta af hverjum disk og diskarnir eru margir undir parity gögn (semsagt 1/7 af hverjum disk ef það eru 7 diskar eða 1/3 af hverjum disk ef það eru 3 diskar). þannig að ef að einn diskur í menginu bilar, þá ertu alltaf með parity gögn sem þú getur notað til að "byggja" gögnin aftur upp á nýjann disk.
Þetta er lang besta Raid leiðin sem er til. býður uppá mikið öriggi mikinn hraða og tiltölulega lítinn kostnað á megabæti, en gallinn er sá að byrjunarkostnaðurinn er mjög hár (verð á raid5 stýringu og að minstakosti 3 diskum).
síðan eru til nánast endalaust af stöðlum í viðbót, en þetta eru þeir 3 vinsælustu.
Sent: Mið 25. Feb 2004 10:21
af Snikkari
Sent: Mið 25. Feb 2004 10:40
af fallen
Ok kúl, takk fyrir góð svör

Sent: Mið 25. Feb 2004 12:31
af wICE_man
Ekki gleyma 1+0 ef þú átt fjóra diska þá geta 2 og 2 geymt sömu gögn og síðan getur sitthvort þessara para notað RAID 0. Þannig færðu afköst og öryggi, en það kostar slatta að koma sér upp 4 diskum:)
Sent: Mið 25. Feb 2004 14:13
af gnarr
það er sniðugra að nota raid5 heldur en raid0+1 ef þú hefur fjóra diska. með raid 5 færðu meiri hraða á 4 diskum en með raid 0+1. nánast sama öriggi, en ert þó lengur að gera við array ef einn diskur bilar (sem gerist hvorteð er ekkert mjög oft. og megabætið er 33% ódýrara
Sent: Mið 03. Mar 2004 10:25
af so
Flott svör strákar og fræðandi

Best að fara að hugsa um RAID á draslið
Sent: Mið 03. Mar 2004 12:10
af ParaNoiD
Raid getur samt verið pain in da butt ef mar td. þarf svo að nota diskana á venjulegann IDE controller sem er ekki RAID ég seldi Móbóið mitt og tók 2 stæðstu diskana úr sem voru raidaðir og ætlaði barasta að skella þeim á IDE í annarri vél(já ég veit núna að það var fáfræði á RAID)
Diskarnir virkuðu ekkert auðvitað vegna RAID array og ég fann enga leið til að redda þessu endaði með því að ég fiktaði frá mér góðann slatta af gögnum
en það góða við þetta er samt að ég lærði slatta um RAID

og þetta voru ekkert merkileg gögn svosem

Nema kannski Allir Klaufabárðaþættirnir sem ég var búinn að sanka að mér
Mæli eindregið að ef einhver ætlar að prófa RAID þá lesa sér vel til um það og vita hvað hann er að gera

Sent: Mið 03. Mar 2004 18:01
af Snikkari
Flottast að vera með a.m.k. 3 74Gb Raptor í Raid 5

Sent: Mið 03. Mar 2004 18:08
af GuðjónR
Og þá heyrnahlífar? er ekki flottara að vera með 3 x SCSI í raid? (og þá líka heyrnahlífar.)