Síða 1 af 2
Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:00
af Jim
Sælir vaktarar,
Ég er nú frekal mikill "nýliði" þegar það kemur að svona tölvumálum þannig að ég ákvað að byðja um aðstoð frá sérfræðingunum. Þannig er mál með vexti að ég á þessa tölvu ->
http://ejs.is/Pages/1179/itemno/STUDIOXPS8100%252303" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég var að velta því fyrir mér hvort að það sé eitthvað varið í þetta kvikindi, hvort hún ræður við nýjustu leikina o.s.f.
Eitthvað svona bull eins og "Intel Core i7 870 örgjörvi (2.93GHz, 8MB)
6GB 1333MHz DDR3 vinnsluminni (2x2048 + 2x1024)
2TB (2x1TB RAID 0 Stripe) harðir diskar (7200rpm)" Eru bara tölur á blaði (skjá?) fyrir mér.
Með fyrirfram þökkum,
3.14KA
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:04
af hagur
Þetta er fínasta vél og ætti að ráða vel við nýjustu leikina.
Gúrúarnir hérna munu þó líklega benda þér á að fyrir þennan pening geturðu fengið enn öflugri tölvu annarsstaðar, ef þú velur sjálfur íhluti í hana (eða lætur tölvubúðirnar gera þér tilboð og velja fyrir þig).
Það myndi ég líklega líka gera.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:06
af coldcut
æji hættu þessu monti!
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:07
af hagur
coldcut skrifaði:æji hættu þessu monti!
?
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:12
af Jim
hagur skrifaði:coldcut skrifaði:æji hættu þessu monti!
?
Tek undir þetta
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:17
af MatroX
-
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:18
af Jim
dudes, ég er nú þegar kominn með þessa -_- fékk hana reyndar með talsverðum afslætti og hátalarasett fylgdi með
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:20
af MatroX
ahh sorry. ég tek þá mitt comment til baka. kláraði ekki lesa allt. vonandi að ég hafi ekki sært neinn
3.14KA skrifaði:dudes, ég er nú þegar kominn með þessa -_- fékk hana reyndar með talsverðum afslætti og hátalarasett fylgdi með
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:45
af hagur
3.14KA skrifaði:dudes, ég er nú þegar kominn með þessa -_- fékk hana reyndar með talsverðum afslætti og hátalarasett fylgdi með
Sorry, tók ekki eftir því að þú værir búinn að kaupa hana
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Mán 06. Sep 2010 23:59
af JohnnyX
Fínasta vél. Eina sem hægt er að setja eitthvað útá er skjákortið, en það er alltaf hægt að uppfæra það seinna
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 00:16
af Sydney
Úff, liggur við að fyrir sama verð er hægt að fá sér i7 9** með tvö GTX460 kort.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 08:34
af coldcut
hagur skrifaði:coldcut skrifaði:æji hættu þessu monti!
?
Þessu var ekki beint til þin hagur minn...var beint til OP
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 10:42
af Klemmi
JohnnyX skrifaði:Fínasta vél. Eina sem hægt er að setja eitthvað útá er skjákortið, en það er alltaf hægt að uppfæra það seinna
Ekki rétt, þar sem powersupplyið er aðeins 350W.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 10:45
af AntiTrust
Klemmi skrifaði:JohnnyX skrifaði:Fínasta vél. Eina sem hægt er að setja eitthvað útá er skjákortið, en það er alltaf hægt að uppfæra það seinna
Ekki rétt, þar sem powersupplyið er aðeins 350W.
Var akkúrat að pæla í því, stórfurðulegt.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 15:28
af Jim
Klemmi skrifaði:JohnnyX skrifaði:Fínasta vél. Eina sem hægt er að setja eitthvað útá er skjákortið, en það er alltaf hægt að uppfæra það seinna
Ekki rétt, þar sem powersupplyið er aðeins 350W.
bíddu... get ég þá ekki uppfært vélina?
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 15:29
af vesley
3.14KA skrifaði:Klemmi skrifaði:JohnnyX skrifaði:Fínasta vél. Eina sem hægt er að setja eitthvað útá er skjákortið, en það er alltaf hægt að uppfæra það seinna
Ekki rétt, þar sem powersupplyið er aðeins 350W.
bíddu... get ég þá ekki uppfært vélina?
Í rauninni þá geturu það ekki nema þú færð þér nýjann aflgjafa,
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 17:17
af Gúrú
Vá hvað það er borderline insanity að selja svona vél með 350W aflgjafa.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 18:00
af littli-Jake
Gúrú skrifaði:Vá hvað það er borderline insanity að selja svona vél með 350W aflgjafa.
einmitt það sem ég var að spá. Á bara mjög ervitt með að trúa að þetta sé rétt
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 18:04
af biturk
Gúrú skrifaði:Vá hvað það er borderline insanity að selja svona vél með 350W aflgjafa.
bara svipað og versla við ejs, fáránlega dýr búlla!
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 18:34
af TestType
Holy moly, 350w PSU?
Annað risa viðvörunarmerki er að vera með tvo terabæta diska í RAID 0. Raid 0 virkar þannig að hlutar af öllum gögnum er dreift randomly á milli drifanna, þannig að ef annar diskurinn eyðileggst þá missirðu öll gögn á hinum disknum líka, sem gæti verið stórfenglegt tap. Harðir diskar geta klikkað hvenær sem er, hvort sem þeir eru nýir eða gamlir.
Annars ágætist tölva, skjákortið er bara miðlungs en getur spilað alla nýjustu leikina í ágætis gæðum.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 19:18
af Dazy crazy
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 21:28
af BjarkiB
Allt hjá EJS er overpriced.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 22:01
af Jim
TestType skrifaði:Holy moly, 350w PSU?
Annað risa viðvörunarmerki er að vera með tvo terabæta diska í RAID 0. Raid 0 virkar þannig að hlutar af öllum gögnum er dreift randomly á milli drifanna, þannig að ef annar diskurinn eyðileggst þá missirðu öll gögn á hinum disknum líka, sem gæti verið stórfenglegt tap. Harðir diskar geta klikkað hvenær sem er, hvort sem þeir eru nýir eða gamlir.
Annars ágætist tölva, skjákortið er bara miðlungs en getur spilað alla nýjustu leikina í ágætis gæðum.
Það er bara 1 terabæta diskur í minni
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 22:12
af chaplin
Finnst það alveg stórkostlega merkilegt að það sé 350w aflgjafi og mv. það sem maður hef séð af sumum Dell turnkössum, að þá setur maður ekkert hvaða aflgjafa sem er í þessa turna nema maður nenni að standa í því að modda kassann. Hef ekkert skoðað þessa "nýlegu" Dell turnkassa og vona þín vegna að hvaða aflgjafi sem er passi í turninn.
Re: Er eitthvað varið í þetta?
Sent: Þri 07. Sep 2010 23:34
af TestType
Tiesto skrifaði:
Allt hjá EJS er overpriced.
Þið verðið að athuga að þetta er vinnustöð. Þær kosta alltaf mun meira en venjulegar heimilistölvur enda nota þær server örgjörva og sérhæfð skjákort fyrir myndvinnslu sem kosta miklu meira en þetta sem almennir notendur eru að nota. Takið eftir xeon örgjörvanum og quadro skjákortinu. Mac Pro er dæmi um aðra vinnustöð sem er á svipuðu verði. Allar svona vinnustöðvar eru dýrar.