Síða 1 af 1
Val á prentara ?
Sent: Mið 18. Feb 2004 17:11
af Rori
mig vantar nýjan prentara og þarf álit ykkar á því hvað er best að versla. Prentarinn verður helst notaður undir skóla og kannski einstaka sinnum eitthvað mynda dót og hann má ekki vera dýr í rekstri.
Með hverju mælið þið svo með ?
Takk.
Sent: Mið 18. Feb 2004 20:27
af kemiztry
hmmm, reyndu að finna Best Before miða á prentaranum.. því þessi kvikindi virðast hafa stuttan líftíma
Sent: Fim 19. Feb 2004 17:07
af bizz
Finndu þér bara einhvern nettan HP prentara, ekki of dýran
Sent: Fös 20. Feb 2004 14:12
af Pez
tek undir þetta með kemiztry, ég hef átt allnokkra prenatar og þeir hafa allir hætt að prenta að nokkru viti eftir ákveðinn tíma. Þetta hafa allt verið Canon bleksprautuprentarar, þeir virðast vera sérstaklega viðkvæmir fyrir því að liggja ónotaðir í smá tíma. Ef maður prentar ekkert í 2-3 vikur getur blekið þornað og jafnvel eyðilagt prenthausinn, og þá er ódýrara að kaupa nýjan prentara en láta gera við það.
ég hef sjálfur verið mikið að hugsa um laserprentara, tónerinn er dýrari en blek, en endist MIKLU lengur, prentarinn er líka dýrari, en endist vonandi lengur. Prenthraði er meiri og kostnaður per bls er miklu minni. Þá reiknar maður út kostnað á prentara+bleki+pappír og deilir með því í fjölda bls sem maður prentar á líftíma prentarans.
ég held að rekstarkostnaður á prentaða bls á laser sé um 1-2 kr.
veit einhver eitthvað meira um laserprentara? hverjir eru best value for money? hvaða tónerar eru ódýrastir? hvaða prentarar eru fljótastir að hitna og byrja að prenta?
Kveðja
Pez
Sent: Fös 20. Feb 2004 14:26
af gumol
Hérna er svona Best-buy listi á
PCWorld.com
Ég myndiu persónulega ekki fá mér Laser prentara, vill geta prentað í lit. (já það skiptir máli)
Sent: Fös 20. Feb 2004 16:28
af gnarr
það eru til lita laser prentarar
Sent: Fös 20. Feb 2004 16:31
af gnarr
Sent: Fös 20. Feb 2004 18:35
af MezzUp
amm, ég held að laser séu bestu kaupin
Sent: Fös 20. Feb 2004 21:34
af gumol
ahh þetta fór framhjá mér.
En þetta er sammt full dýrt, sá sem er ódýrastur er á 60.000 kr.
Sent: Fös 20. Feb 2004 21:37
af ICM
ég er bæði með laser og bleksprautu, laser er mikið meira notað.
Sent: Fös 20. Feb 2004 21:48
af gumol
IceCaveman skrifaði:ég er bæði með laser og bleksprautu, laser er mikið meira notað.
Já ég veit það, en þú notar nátturlega altaf laser prentarann nema þú ætlir að prenta út í lit, en væriru til í að geta bara prentað út í svarthvítu?
Ef þú ert sáttur við að geta bara prentað í svarthvítu skaltu fá þér Laser prentara.
Sent: Lau 21. Feb 2004 14:09
af Vilezhout
sá um daginn prentara sem notaði vax
og er hann ætlaðu þeim sem eru að prenta út stórar teikningar/myndir enn hann kostaði á 4 hundrað þúsundið.
Sent: Lau 21. Feb 2004 19:42
af Icarus
Vilezhout skrifaði:sá um daginn prentara sem notaði vax
og er hann ætlaðu þeim sem eru að prenta út stórar teikningar/myndir enn hann kostaði á 4 hundrað þúsundið.
hmm, prenta með vaxi, það er eitthvað sem maður hefur ekki heyrt minnst á áður.
Sent: Lau 21. Feb 2004 20:03
af ICM
ertu viss um að þeir prenti bara ekki mjög stórar myndir og síðan "vax-húði" þær?
Sent: Sun 22. Feb 2004 13:57
af Vilezhout
IceCaveman skrifaði:ertu viss um að þeir prenti bara ekki mjög stórar myndir og síðan "vax-húði" þær?
örruglega er þetta þannig.