Síða 1 af 1
þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:09
af addihg
ég er að fara að kaupa mér tölvu sem á að vera aðalega leikjatölva og þarf að geta tekið alla þessa nýju leiki sem eru að koma á markaðin en ég hef bara mjög lítið vit á tölvum og þess vegna leita ég hingað.
https://www.okbeint.is/hpbeint/ui/vorur ... id=WC775AA þetta er tölvan sem ég er bæuinn að vera að hugsa um að kaupa mér og því spyr ég hér, er skjákortið og minnið og örgjörvinn og allt nógu stórt og gott til að sjá um nýja leiki.
er líka til í að kaupa þetta skjákort
http://buy.is/product.php?id_product=827 mæliði með því eða er það sem er í tölvunni nóg?
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:15
af Gúrú
Þar sem að ég hef aldrei heyrt minnst á okbeint.is þá efast ég um að það sé neitt annað en opin kerfi með einhverskonar vefverslun og örlítið lægri verð en opin kerfi. (Síðan opnast ekki hjá mér)
Opin kerfi er ekki góð búð til að versta tölvur af ef þú ert einstaklingur.
Sendu póst á Kísildal/Tölvutækni með verðmiða og það sem að þú ert að hugsa um að nota tölvuna í, þar gerirðu þín bestu kaup sem novice.
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:21
af addihg
já sé það núna að síðan opnast ekki en hér er allt sem stendur um tölvuna
Compaq Presario CQ5360SC WC775AA Nýtt
Hagstæð en öflug heimilistölva
Örgjörvi: Intel Core Duo E6500
(2.93-GHz, 1066-MHz FSB, 2-MB L2 cache)
Vinnsluminni: 4 GB DDR3
Harður diskur: 640 GB SATA 3G 7200 rpm
Skjákort/stýring: Intel Graphics Media Accelerator X4500 skjástýring, allt að
1294 MB Hypermemory
Minniskortalesari: 6 í 1 minniskortalesari
Drif: LightScribe DVD-RW geislaskrifari
Hljóðkort/stýring: High Definition Audio 5,1 hljóðstýring
Netkort/stýring: 10/100 netstýring
Tengi: 6 USB 2.0 (2 framan), VGA, RJ-45, 5 hljóðtengi (2 framan)
Raufar: 1 PCI FH, 2 PCI Express x1 FH, 1 PCI Express x16 FH
Mús: USB optical
Lyklaborð: USB lyklaborð með íslenskum límmiðum
Stýrikerfi: Microsoft Windows 7 Home Premium 64-bit
Aflgjafi: 300W
Ummál (HxBxD): 42,6 x 16,9 x 37,7 cm
Ábyrgð: 2ja ára HP ábyrgð með Carepack
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:22
af vesley
Mæli ekki með þessarri vél, hvað ætlaru að eyða miklum pening ?
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:25
af GullMoli
Já þessi vél er alveg hræðileg fyrir þennan pening.
Ef þú ert til í að bæta 10k við þá er þessi klárlega málið:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1730" onclick="window.open(this.href);return false; (var reyndar að taka eftir því að það vantar stýrikerfi í þennan pakka
)
Þarna ertu strax kominn í langtum betri tölvu, en að vísu þá vantar lyklaborð og mús, getur vissulega notað bara eitthvað gamalt ef þú átt til (amk lyklaborð).
En eins og Gúrú sagði þá myndi ég mæla með því að þú sendir e-mail á kísildal, tölvutækni og mögulega fleiri tölvuverslanir og sjá hvað þeir geta sett saman fyrir þig fyrir ákveðna upphæð. Mundu bara að taka fram hvað hún á að vera notuð í (tölvuleiki t.d.) og hvað þig vantar (turn, mús, lyklaborð etc). Þeir ættu þá að geta sett eitthvað sniðugt og hagstætt saman fyrir þig.
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:28
af addihg
okei takk fyrir en gætiru nokkuð gefið mér meilin hjá einhverjum gaurum og já verðmiðinn er 150 þús
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 00:31
af GullMoli
addihg skrifaði:okei takk fyrir en gætiru nokkuð gefið mér meilin hjá einhverjum gaurum og já verðmiðinn er 150 þús
http://www.tolvuvirkni.is" onclick="window.open(this.href);return false;
info (hjá) tolvuvirkni.is
http://www.att.is" onclick="window.open(this.href);return false;
att (hjá) att.is
http://www.tolvutaekni.is" onclick="window.open(this.href);return false;
sala (hjá) tolvutaekni.is
http://www.kisildalur.is" onclick="window.open(this.href);return false;
kisildalur (hjá) kisildalur.is
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 05:09
af Elisvk
addihg skrifaði:ég er að fara að kaupa mér tölvu sem á að vera aðalega leikjatölva og þarf að geta tekið alla þessa nýju leiki sem eru að koma á markaðin en ég hef bara mjög lítið vit á tölvum og þess vegna leita ég hingað.
https://www.okbeint.is/hpbeint/ui/vorur ... id=WC775AA þetta er tölvan sem ég er bæuinn að vera að hugsa um að kaupa mér og því spyr ég hér, er skjákortið og minnið og örgjörvinn og allt nógu stórt og gott til að sjá um nýja leiki.
er líka til í að kaupa þetta skjákort
http://buy.is/product.php?id_product=827 mæliði með því eða er það sem er í tölvunni nóg?
ertu að pæla í skjákortinu fyrir spekkana eða vegna þess að það er batman bíll á kortinu?
annars mæli ég persónulega ekki með þessari vél.
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 21. Júl 2010 15:49
af littli-Jake
þessi vél er tæp fyrir leiki sem eru að koma út í dag (þá alls ekki í hæstu gæðum) og hvað þá fyrir þá sem munu koma næsta árið.
Hafðu samband við einhverjar að tölvuverslununum. Þær eru allar á verðvaktinni. Einher þeira geriri þér öruglega góðan díl.
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 28. Júl 2010 15:57
af frr
Ódýr vél í dag sem skilar sínu í tölvuleikjum myndi sennilega innihalda nvidia 460 skjákort og AMD X4.
Ég myndi byrja á að púsla saman vél út frá þessum forsendum.
Re: þarf hjálp fagmanna :)
Sent: Mið 28. Júl 2010 17:42
af biturk
er ég einn um að finnast þessi síða hjá okbeint vera ALGERT rassgat!!