Síða 1 af 1

Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 02:27
af dnz
Jæja, þá er maður að lenda í þessu aftur, netið farið alveg í fokk og maður enn pirraðari því sumt virkar en sumt ekki -.- Er hjá vodafone, eru þið líka að lenda í þessu?

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 03:34
af Gúrú
Jáb.

Orðið mjög pirrandi hvað þetta kemur oft, ég vil ekki venja mig á að sætta mig við þetta bara vikulega... fáránlegt.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 04:44
af Legolas
Sama hér :evil:

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 05:39
af Gúrú
Youtube virkar, vaktin virkar, msn virkar ekki, steam virkar ekki, poker clientar virka ekki.

Svo alltíeinu virkar allt.

Svo verður listinn eins... osfrv... keyrt á 8 min loop... what the HELL?

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 12:40
af Danni V8
Allt í góðu hjá mér so far.. vona að það haldist þannig [-o<

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Mán 14. Jún 2010 12:58
af McArnar
Netið hjá mér er búið að vera í fokki í 3 mánuði. Get ekkert uploadað. Þeir kenna af sjálfsögðu torrent traffik um.. idiods

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 09:20
af Gúrú
Útlandaping núna komið í ruglið en allar síður virka fínt.

Yndislegt.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 09:44
af íslendingur
er þetta bara hjá vodafone? eða eru allir að lenda í þessu yfir höfuð?

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 11:51
af Flakki
íslendingur skrifaði:er þetta bara hjá vodafone? eða eru allir að lenda í þessu yfir höfuð?

'
örugglega bara hjá vodafone. En ég var að pæla í að skipta yfir í Símann eða eitthvað, myndi örugglega fá eitthvað útúr því þar.

Netið dettur út á svona 10min fresti hér og hraðinn er drasl, meðað við 8mb tengingu :hnuss

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 12:23
af razrosk
Haha buið að vera svona hjá mér síðustu 2-3mánuði... t.d. um leið og ég er að ná í hluti af torrent á bilinu 400-500kb/s (erlendis frá) þá einfaldlega aftengist netið eftir sirka 5min og verður þannig í nokkrar mín.
Svo líka þegar maður er að surfa random á netinu þá hættir allt í einu netið að responda og er í heila eilíf að loada síðum... pirrandi.

En hey maður færð þó stundum allar stöðvarnar á digital ísland þegar þetta gerist :P (maður er meira segja farin að restarta routernum sjálfur til að fá það stundum)

--Er hjá TAL.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 12:37
af bixer
ég er hjá símanum, innranetið er allt í einu orðið fokk hægt, ætlaði að streama efni milli tölva en það laggaði í shit og eitthvað....

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 12:44
af Gúrú
bixer skrifaði:ég er hjá símanum, innranetið er allt í einu orðið fokk hægt, ætlaði að streama efni milli tölva en það laggaði í shit og eitthvað....


Hvernig gæti það mögulega tengst þessum þræði? :?
EDIT: AIOJGGFJIOIOGHJGHPODÐFDGGH'HJA3526345758341FSDGHYRJS4QAHTERH785WHJYSQWRQ3Q4ETSFDGSFGGF

Eins og sjá má á stimplinu er internetið í crackinu... :x

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 16:34
af ellixx
var hjá tal og var að ná svona 50-200 kbs á torrentinu, skifti yfir í símann fyrir viku síðan og er að ná 800-1400 kbs.
svo var alltaf að detta út hjá tal og restarta router ,það var búið að skifta út router ,síjum og leiðslum en alltaf eins.
þeir kendu því um að torrentið væri erlent og lélegt :o
en ég sé ekki betur miðað við þetta að þetta hafi verið innanhús vandamál hjá þeim.
var með 12gb tengingu hjá tal og er með 8gb núna hjá símanum.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Þri 15. Jún 2010 16:41
af BjarkiB
razrosk skrifaði:Haha buið að vera svona hjá mér síðustu 2-3mánuði... t.d. um leið og ég er að ná í hluti af torrent á bilinu 400-500kb/s (erlendis frá) þá einfaldlega aftengist netið eftir sirka 5min og verður þannig í nokkrar mín.
Svo líka þegar maður er að surfa random á netinu þá hættir allt í einu netið að responda og er í heila eilíf að loada síðum... pirrandi.

En hey maður færð þó stundum allar stöðvarnar á digital ísland þegar þetta gerist :P (maður er meira segja farin að restarta routernum sjálfur til að fá það stundum)

--Er hjá TAL.


Sama hjá Internet vandmál = Allar stöðvanar hjá símanum(eitthvað um 50-70 stöðvar) :lol:

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fim 17. Jún 2010 18:56
af Einarr
Er þetta enn í rugli hjá ykkur? örfáar vefsíður virka hjá mér og netleikir virka stundum.
Fór í wow áðan í svona klukkutima, loggaði mig síðan út og fékk mér vöfflur kom svo aftur og þá var netið óvirkt :@

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fim 17. Jún 2010 19:04
af Frost
Það er líka í rugli hjá mér!

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fim 17. Jún 2010 21:49
af SteiniP
ég er hjá tal og það virðist vera algjörlega random hvort ég kemst inn á síðuna sem ég ætla inná eða ekki

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fim 17. Jún 2010 21:59
af Gúrú
SteiniP skrifaði:ég er hjá tal og það virðist vera algjörlega random hvort ég kemst inn á síðuna sem ég ætla inná eða ekki


Lýsir sér líka þannig hjá mér, sama hvort ég restarta routernum, tölvunni, telsey boxinu eða þessu öllu á sama tíma.. og þetta er búið að koma þóóónokkrum sinnum árið 2010. :evil:

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fim 17. Jún 2010 22:03
af Frost
SteiniP skrifaði:ég er hjá tal og það virðist vera algjörlega random hvort ég kemst inn á síðuna sem ég ætla inná eða ekki


Sama hér!

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fös 02. Júl 2010 09:24
af jericho
Ég er með 50mb ljósleiðaratengingu hjá Vodafone. Um leið og erlent niðurhal fer yfir ca. 1 mb/s í einhvern tíma, dettur netið út, líkt og routerinn skeri á sambandið. Sjónvarpið og heimasíminn detta ekki út, þannig að þetta er líklega ekki telsey boxið (hvað veit maður svosem um það?). Local Area Connection verður disabled og svo eftir 2-3 mín verður það connected aftur en ekkert internet access. Loks fæ maður internet samband. Ef niðurhalið heldur áfram og blússar aftur upp í +1 mb/s í e-n tíma - BAMM. Sama sagan aftur.

Þetta er gersamlega óþolandi, þar sem maður getur ekki náð í alls kyns open-source búnað í stærri kantinum án þess að netið detti út í sífellu.

Þetta er vonandi ekki stillingaratriði í tölvunni minni (keyri á W7 Ultimate). Ef svo er og einhver kannast við það, látið mig vita.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fös 02. Júl 2010 09:39
af andribolla
kannast við þetta sama vandamál, nema hvað að ég þurfti að takmarka upp hraðan við 1.0 mbps og niður hraðan við 1.2-1.3 mbps á torrentinu hjá mér
þannig þetta var ekki eingöngu einskorðað við erlent niðurhal.
annas dó netið bara hjá manni eithverntiman um nóttina eða á meðan maður var í vinnuni.

sjónvarpið var í lagi og maður þurfti að endurræsa ráterinn .. jafnvel oftar en einusinni til þess að fá netið inn aftur.
var með hvíta vox (Bewan) ráterinn

-Andri.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fös 09. Júl 2010 22:07
af benson
50mb ljós, zyxel NBG router að reyna að horfa á live stream og það er bara ekki séns:
http://evo2k.com/live/

Pirrandi.

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fös 09. Júl 2010 23:01
af DeAtHzOnE
Var hjá vodafone og netið datt aldrei út (þá tala ég um ALDREI).
Síðann skiftum við yfir í Tal og það var einu sinni alltaf að detta út í svona viku en núna er það orðið betra.
Var með 200 kbs hjá Voda en frá 300-500 núna. :shock:

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Fös 09. Júl 2010 23:25
af Gúrú
DeAtHzOnE skrifaði:Var hjá vodafone og netið datt aldrei út (þá tala ég um ALDREI).

Þið hafið þá greinilega ekki verið mikið á internetinu vegna þess að það datt 4x út til útlanda hjá öllum. :D (þá meina ég öllum, 2x aukalega allt og 2x aukalega til útlanda hjá ljósleiðaranotendum)

Re: Netið í rugli enn og aftur?

Sent: Lau 10. Júl 2010 04:48
af snjokaggl
Ég er hjá Vodafone núna en það er samt skárra en þegar ég var hjá Tal, þá datt netið út í kannski nokkra tíma á dag og ef maður hringdi þá var sagt það væri allt í lagi með allt hjá þeim þannig að þetta hlyti að vera innanhúslagningar hjá mér.
Svo fór ég til Vodafone, núna er ég alltaf allavega með internet þó að síður erlendis geti stundum orðið leiðinlegar.