Síða 1 af 1
Leit að nýrri fartölvu
Sent: Þri 08. Jún 2010 21:39
af zerri
Ég er að spá í að kaupa mér nýja fartölvu þar sem vélin hjá mér gafst endanlega upp um daginn var af gerðinni Mitac. Keypti hana frá Hugver áður en þeir fóru á hausinn og var tölvan nokkuð öflug og bara mjög góð fyrir utan að móðurborðið skemmdist 2 á aðeins 3 árum!
Hef verið að spá í vél einsog t.d. þessari:
http://buy.is/product.php?id_product=936" onclick="window.open(this.href);return false; Veit voðalega lítið af þessum Sony vélum en þar sem Sony er þekkt og gott merki að þá myndi maður halda að þetta væri ágætis vél.
Tölvan má kosta í mestalagi 200þús og hún verður að geta ráðið við leiki, þá aðalllega footballmanager og ekki verra að ráða við flesta nýju leikina í dag.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mið 09. Jún 2010 13:44
af Halli25
ég myndi forðast sony eins og heitan eld, þeir eru hreinlega ekki að þjónusta ísland svo þú myndir lenda í þvílíku veseni og tímaeyðslu ef vélin bilar.
Mæli hiklaust með Toshiba af eigin reynslu af þjónustu.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mið 09. Jún 2010 16:43
af Hargo
Ráða ekki flest allar nýlegar tölvur við Football Manager? Grunar það nú, enda kannski ekki mjög kröfuharður leikur.
Ef þú vilt gott merki sem stendur alltaf fyrir sínu þá færðu þér Thinkpad. Endingargóðar og traustar. Hinsvegar eru það ekki leikjavélar.
Af persónulegri reynslu þá mæli ég ekkert sérstaklega með því að fá sér fartölvuleikjavél. Sá strax eftir því á sínum tíma, þróunin er einnig hröð og fljótlega gat tölvan mín ekki spilað nýjustu leikina og ómögulegt að uppfæra vélbúnaðinn af einhverju viti. Varð fljótt þreyttur á stærðinni og hitanum sem tölvan gaf frá sér.
En þú hefur þetta auðvitað eins og þú vilt - vildi bara segja þér mína skoðun. Hef lítið vit á hvernig þessar fartölvuleikjavélar eru orðnar í dag...
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Þri 15. Jún 2010 22:15
af zerri
Ætti maður kannski frekar að fá sér þessa:
http://buy.is/product.php?id_product=483" onclick="window.open(this.href);return false; fram yfir Sony vélina?
Endilega ef einhver veit um flotta vél fyrir 180-210 þúsund að þá má hann endilega segja frá því og setja link af því tilboði.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Þri 15. Jún 2010 23:36
af Frost
zerri skrifaði:Ætti maður kannski frekar að fá sér þessa:
http://buy.is/product.php?id_product=483" onclick="window.open(this.href);return false; fram yfir Sony vélina?
Endilega ef einhver veit um flotta vél fyrir 180-210 þúsund að þá má hann endilega segja frá því og setja link af því tilboði.
Styð þessa vel. Asus eru geðveikar fartölvur. Fæ mér eina netta í sumar.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Þri 15. Jún 2010 23:52
af Glazier
zerri skrifaði:Ætti maður kannski frekar að fá sér þessa:
http://buy.is/product.php?id_product=483" onclick="window.open(this.href);return false; fram yfir Sony vélina?
Endilega ef einhver veit um flotta vél fyrir 180-210 þúsund að þá má hann endilega segja frá því og setja link af því tilboði.
Las alla detail-ana og leist mjög vel á hana.. Pörfekt stærð, 14" (fyrir mig) 4 gb ram, 2.8 GHz örri og svona, en
ekkert geisladrif !
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mið 16. Jún 2010 00:06
af BjarniTS
Glazier skrifaði:zerri skrifaði:Ætti maður kannski frekar að fá sér þessa:
http://buy.is/product.php?id_product=483" onclick="window.open(this.href);return false; fram yfir Sony vélina?
Endilega ef einhver veit um flotta vél fyrir 180-210 þúsund að þá má hann endilega segja frá því og setja link af því tilboði.
Las alla detail-ana og leist mjög vel á hana.. Pörfekt stærð, 14" (fyrir mig) 4 gb ram, 2.8 GHz örri og svona, en
ekkert geisladrif !
Heyrt um usb ?
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mið 30. Jún 2010 16:55
af spector
http://buy.is/product.php?id_product=935" onclick="window.open(this.href);return false;
Processor: Intel Core i7-720QM(1.6GHz, 6MB L3 Cache); Support Intel Turbo Boost Technology
Getiði sagt mér hvað þessi lína þýðir? 1.6ghz tölva á 250 þús.. Er það ekki full mikið eða er þetta einhver ný tækni?
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mið 30. Jún 2010 17:04
af Matti21
spector skrifaði:http://buy.is/product.php?id_product=935
Processor: Intel Core i7-720QM(1.6GHz, 6MB L3 Cache); Support Intel Turbo Boost Technology
Getiði sagt mér hvað þessi lína þýðir? 1.6ghz tölva á 250 þús.. Er það ekki full mikið eða er þetta einhver ný tækni?
Quad Core. 4 kjarnar. i7 örgjörvi sem þýðir að hver kjarni getur séð um tvo kóða í einu (Hyper threading) og svo er þessi vél með Blu-ray drifi...
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Fös 02. Júl 2010 00:00
af Nariur
... og "Intel Turbo Boost Technology " þýðir að örrinn overclockast sjalfkrafa ef hann er bara að nota einn kjarna
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Fös 02. Júl 2010 00:18
af spector
Ok, þakka ykkur fyrir þessar upplýsingar.
Var heldur ekki alveg að skilja að svona "drasl" örgjörvi sem væri aðeins 1.6ghz væri að gera í 250þús kr tölvu...
Annars er maður sjálfur að leita af tölvu sem má í mesta lagi kosta svona 200þús og þyrfti að ráða við leik einsog FM og annars yrði hún bara notuð í netið/skóla og þannig lagað..
Hef mikið verið að spá í þessum Sony vélum en veit bara voðalega lítið um þær.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Fös 02. Júl 2010 00:52
af Hargo
spector skrifaði:Ok, þakka ykkur fyrir þessar upplýsingar.
Var heldur ekki alveg að skilja að svona "drasl" örgjörvi sem væri aðeins 1.6ghz væri að gera í 250þús kr tölvu...
Annars er maður sjálfur að leita af tölvu sem má í mesta lagi kosta svona 200þús og þyrfti að ráða við leik einsog FM og annars yrði hún bara notuð í netið/skóla og þannig lagað..
Hef mikið verið að spá í þessum Sony vélum en veit bara voðalega lítið um þær.
http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 7,327.aspx
Myndi skoða þessa. Reyndar aðeins yfir budgetinu sem þú gefur upp. Getur án efa fundið þér vél með betri specca á þessu verði en það er ekki Thinkpad. Sterkbyggðar, endingargóðar og 3 ára alþjóðleg ábyrgð á diski og vél.
Mæli einnig með því að þú fáir þér ekki stærri en 15,6" tommu skjá. Allt stærra en það er pirrandi til lengdar ef þú ætlar að vera með fartölvuna mikið á ferðinni. Það er allavega mín reynsla, átti eitt sinn 17" fartölvu og gafst upp á ferðast með hana á milli staða.
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Sun 04. Júl 2010 23:57
af spector
http://www.dell.com/us/en/home/notebook ... _16_anav_1~~" onclick="window.open(this.href);return false;
Held að ég velji þessa bara þar sem ég get látið kaupa fyrir mig í usa..
Fæ varla mikið betri tölvu en þetta fyrir þennan pening!
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Sun 15. Ágú 2010 20:25
af zerri
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21973" onclick="window.open(this.href);return false; - Er þessi peningana virði?
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mán 16. Ágú 2010 21:43
af HR
Fyrir þennan pening ertu betur settur með
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21958" onclick="window.open(this.href);return false; eða
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21877" onclick="window.open(this.href);return false;
Tölva með svipaða spekka og betur þjónustuð á Íslandi væri þessi frá Toshiba
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=22138" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Leit að nýrri fartölvu
Sent: Mán 16. Ágú 2010 21:56
af Lexxinn
BjarniTS skrifaði:Glazier skrifaði:zerri skrifaði:Ætti maður kannski frekar að fá sér þessa:
http://buy.is/product.php?id_product=483" onclick="window.open(this.href);return false; fram yfir Sony vélina?
Endilega ef einhver veit um flotta vél fyrir 180-210 þúsund að þá má hann endilega segja frá því og setja link af því tilboði.
Las alla detail-ana og leist mjög vel á hana.. Pörfekt stærð, 14" (fyrir mig) 4 gb ram, 2.8 GHz örri og svona, en
ekkert geisladrif !
Heyrt um usb ?
Hann var bara benda á það og hafa það áberandi í svarinu sínu... Einnig eru mjög margir sem að kaupa FM leikina og hann er örugglega með hann á disk svo hann gæti lent í veseni ef hann kann ekki að redda sér úr því, sem engin annar en hann veit hvort hann getur...