Síða 1 af 1

Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 14:53
af benson

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 15:05
af Gúrú
Jafn langt og við sæum þetta fara.

Ég myndi persónulega sparka alla stjórnmálamenn sem myndu
A) Sýna áhuga á því að implementa þetta
B) Kjósa með þessu
C) Biðja þingið um að skoða þetta

Þetta eru svo mikil grundvallarréttindi núna í heiminum sem við búum í, og það væri aldrei hægt að sýna fram á með fullnægjandi hætti að þú hefðir gert þetta.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 18:38
af benson
Voru ekki VG í einhverjum svona hugleiðingum?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 19:47
af ponzer
jájá bara bring it segi ég! Það verða alltaf leiðir til að komast undan þessu :)

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:01
af urban
Gúrú skrifaði:Jafn langt og við sæum þetta fara.

Ég myndi persónulega sparka alla stjórnmálamenn sem myndu
A) Sýna áhuga á því að implementa þetta
B) Kjósa með þessu
C) Biðja þingið um að skoða þetta

Þetta eru svo mikil grundvallarréttindi núna í heiminum sem við búum í, og það væri aldrei hægt að sýna fram á með fullnægjandi hætti að þú hefðir gert þetta.



ertu svo hræðilega vitlaus að halda því fram að ólöglegt niðurhal sé grundvallarréttindi ?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:04
af ElbaRado
Hann hlýtur að vera að tala um internetið...

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:20
af urban
ElbaRado skrifaði:Hann hlýtur að vera að tala um internetið...



jajá, þetta er væntanlega three strikes kerfi einsog í Frakklandi, og ef svo er, þá ættu menn að hafa bara vit á því að sleppa ólöglegu niðurhali eftir að það er búið að grípa menn tvisvar sinnum

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:35
af kazgalor
Þeir eru að ná kínverjunum í fasistaskap

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:36
af BjarniTS
Afhverju ætti netið að vera frjálst og hvar skal draga línuna?
Fíkniefnabrot , kynferðisbrot , mansal. . . . en ekki brot á höfundarrétti?
Hví ekki?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:40
af kazgalor
Erum við í alvöru að bera saman mannsal, fíkniefnasölu og ólöglegt niðurhal? really?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 20:46
af Gúrú
urban skrifaði:
ElbaRado skrifaði:Hann hlýtur að vera að tala um internetið...

jajá, þetta er væntanlega three strikes kerfi einsog í Frakklandi, og ef svo er, þá ættu menn að hafa bara vit á því að sleppa ólöglegu niðurhali eftir að það er búið að grípa menn tvisvar sinnum

Ég afsaka þúsundfalt að leyfa mér ekki það að gera ráð fyrir einhverju sem ég veit ekki fyrir víst, og er ekki gefið í skyn í fréttinni, og er hreint út sagt: gætu átt von á því að fá lífstíðarbann við notkun netsins,
... og uppá lollið ætla ég að benda þér á svona 4-40 dæmi um menn sem hafa two strikes í BNA og stela hlutum eins og 4 chocolate chip cookies eða 9 VHS spólum og fá lífstíðarfangelsi við seinni punktinum þínum.

Og ég ætla að endurtaka aftur: Hvernig ætlarðu að sýna fram á með fullnægjandi hætti að persóna A hafi sótt Womanizer með Britney spears þrisvar sinnum?
Ég get komist inn á hvaða default router frá simanum sem er á einhverjum sekúndum, ætlarðu að nota IP logs frá lögreglulogguðum torrent trackerum til að sanna þetta?
Ætlarðu að fá aðgang að routerum hjá öllum sem eru "grunaðir" um þetta? Ætlarðu að 'sanna' þetta með MAC adressu aðganginum í routernum? Hvað ef það er ekki kveikt á logging?
Hversu erfitt er það fyrir mig að koma spyware/malware/botta/W/E inná tölvuna hjá einhverjum sem mér líkar ekki við og koma honum í þá stöðu að hann getur ekki notað internetið á Íslandi EVER?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 21:43
af benson
urban skrifaði:
Gúrú skrifaði:Jafn langt og við sæum þetta fara.

Ég myndi persónulega sparka alla stjórnmálamenn sem myndu
A) Sýna áhuga á því að implementa þetta
B) Kjósa með þessu
C) Biðja þingið um að skoða þetta

Þetta eru svo mikil grundvallarréttindi núna í heiminum sem við búum í, og það væri aldrei hægt að sýna fram á með fullnægjandi hætti að þú hefðir gert þetta.



ertu svo hræðilega vitlaus að halda því fram að ólöglegt niðurhal sé grundvallarréttindi ?


Ég vona að hann sé að tala um frelsi á netinu.

En annars finnst mér þetta svo fáránlega heimskt að banna fólki að komast á netið af því það downloadaði einu þætti eða eitthvað slíkt. Og hvernig á að framfylgja því? Banna fólki að versla allar vörur sem eru með mac addressu? Banna ip tölu heimilisins og takmarka þannig aðgang allra á heimilinu? Og hvað ef unglingurinn á heimilinu downloadar ólöglega á tengingu sem heimilisfaðirinn er skráður fyrir. Er það þá á ábyrgð föðursins sem fær svo refsinguna? Þetta er svo óendanlega heimskulegt!

Af hverju þarf alltaf að banna og refsa í staðinn fyrir að umbuna og reyna að vinna að einhverjum almenninlegum lausnum? Ísland er sérstaklega að skíta á sig í þessum efnum. Tónlist.is að selja lög í lélegum gæðum á frekar dýru verði. Sjónvarpsstöðvar sem bjóða upp á VOD neyða áskrifendur til að kaupa rándýra pakka í staðinn fyrir að selja einstaka þætti í gegnum VOD o.s.frv. Persónulega kaupi ég alla þá tónlist sem ég hlusta á og sérstaklega íslenska. Auðvitað kemur fyrir að maður downloadi einu og einu lagi ólöglega til að kynna sér listamenn en eins og einhver tók fram hérna að ofan þá er það oft fólkið sem verslar meira.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 22:12
af intenz
Gúrú skrifaði:
urban skrifaði:
ElbaRado skrifaði:Hann hlýtur að vera að tala um internetið...

jajá, þetta er væntanlega three strikes kerfi einsog í Frakklandi, og ef svo er, þá ættu menn að hafa bara vit á því að sleppa ólöglegu niðurhali eftir að það er búið að grípa menn tvisvar sinnum

Ég afsaka þúsundfalt að leyfa mér ekki það að gera ráð fyrir einhverju sem ég veit ekki fyrir víst, og er ekki gefið í skyn í fréttinni, og er hreint út sagt: gætu átt von á því að fá lífstíðarbann við notkun netsins,
... og uppá lollið ætla ég að benda þér á svona 4-40 dæmi um menn sem hafa two strikes í BNA og stela hlutum eins og 4 chocolate chip cookies eða 9 VHS spólum og fá lífstíðarfangelsi við seinni punktinum þínum.

Og ég ætla að endurtaka aftur: Hvernig ætlarðu að sýna fram á með fullnægjandi hætti að persóna A hafi sótt Womanizer með Britney spears þrisvar sinnum?
Ég get komist inn á hvaða default router frá simanum sem er á einhverjum sekúndum, ætlarðu að nota IP logs frá lögreglulogguðum torrent trackerum til að sanna þetta?
Ætlarðu að fá aðgang að routerum hjá öllum sem eru "grunaðir" um þetta? Ætlarðu að 'sanna' þetta með MAC adressu aðganginum í routernum? Hvað ef það er ekki kveikt á logging?
Hversu erfitt er það fyrir mig að koma spyware/malware/botta/W/E inná tölvuna hjá einhverjum sem mér líkar ekki við og koma honum í þá stöðu að hann getur ekki notað internetið á Íslandi EVER?

Gott dæmi. :lol:

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fim 08. Apr 2010 22:38
af Lexxinn
kazgalor skrifaði:Erum við í alvöru að bera saman mannsal, fíkniefnasölu og ólöglegt niðurhal? really?

bwahahaha mér sýnist einhver vera að því :'D

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 00:24
af TDK(nxt)
svo er líka alltaf hægt að flýja á deep web...

algerlega nafnlaust netflakk... ómögulegt að taka vefsíður niður...

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 00:35
af BjarniTS
Lexxinn skrifaði:
kazgalor skrifaði:Erum við í alvöru að bera saman mannsal, fíkniefnasölu og ólöglegt niðurhal? really?

bwahahaha mér sýnist einhver vera að því :'D


kastaði þessu fram í hugsunarleysi , en ég meina , ef að maður ætlar að standa í vafasömum hlutum þá verður maður að fara leynt með það.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 00:51
af ManiO
Þessu er ekki hægt að framfylgja.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 01:09
af Hjaltiatla
Persónulega þá finnst mér allveg í góðu að borga fyrir niðurhal ef það væri þá að renna mest megnis til tónlistarmanns leikara eða höfundar en sannleikurinn er sá að þeir fá flestir ekki nema brot af því sem er verið að selja vöruna á.
Maður myndi halda að koma verðinu neðar væri mun skynsamlegri leið heldur en að berjast á móti þessu niðurhali sem hefur verið frá því Napster og fleiri voru uppá sitt besta frá árinu 1998.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 01:26
af biturk
höfundarréttur er ekkert nema peningaplokk.

og ég tala sem tónlistarmaður sjálfur að aldrei myndi mér detta í hug að kæra fólk fyrir að vilja hlusta á tónlistina mína því það er staðreind að þeir sem virkilega vilja hlusta og fíla mann kaupa diskinn.


download er ekkert nema frí auglýsing, ef þú ert að gera góða oh vinsæla hluti verður vinsæll fyrir það sem þú býrð til, ekki það sem þú selur, fólk hlustar ekki á tónlistina þína af því að þú selur mikið af henni!

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 05:44
af dragonis
benson skrifaði:Voru ekki VG í einhverjum svona hugleiðingum?


Nennti ekki að lesa allan póstinn

Ef það heitir VG þá er það boð og bönn,þetta er komið út í öfga.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 10:31
af mattiisak
fela ip og halda áfram að loada?

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 12:20
af AntiTrust
Tilgangslaust að velta sér uppúr þessu.

Um það leyti þegar og EF (og það er stórt ef) svona frumvörp fara að ganga í gegn, og tæknin tekin í notkun til að framfylgja þessu verður P2P/File Sharing kominn með staðla sem gerir þessi lög úreld daginn sem þau taka gildi. Líklega mikið fyrr, enda fór allt á fullt í þeirri þróun þegar Piratebay fór í gegnum sitt málaferli.

Re: Nýtt frumvarp í Bretlandi gegn ólöglegu niðurhali

Sent: Fös 09. Apr 2010 12:25
af blitz
Þessi lög verða aldrei samþykkt, þetta er alltof umdeilt.

Það er "allt" brjálað í UK útaf þessu, það er verið að gefa yfirvöldum alltof mikið vald.