Síða 1 af 1

Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Mán 05. Apr 2010 23:09
af BjarniTS
Var að kaupa mér SuperTalent lykil úti í búð.

Er þessi hraði eðlilegur ?

4mb/sec - 5mb/sec

USB2 úr tölvu yfir á lykil.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Mán 05. Apr 2010 23:20
af Gúrú
Því miður er flutningshraði á USB minnislyklum almennt svona lélegur. :o

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Mán 05. Apr 2010 23:22
af 1Snorri
Hvað ertu að nota mörg usb slots á tölvunni?
Minnir að það sé viss flutningshraði á usb sem deilist á portin.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Mán 05. Apr 2010 23:25
af gardar
Ég á svona minnislykil http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1271" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég var að fá full speed á honum fyrst, sem hrapar svo niður í allt að 2mb/s.... Tók svo eftir því að lykilinn var orðinn virkilega heitur og fór að velta því fyrir mér hvort það gæti mögulega verið að orsaka þennan lélega hraða.

Og jújú viti menn, núna smelli ég honum í frystinn í smá stund áður en ég þarf að færa gögn inn eða útaf honum og fæ þannig full speed :lol:

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Mán 05. Apr 2010 23:37
af GuðjónR
Þetta er lélegt, ég er yfirleitt með um 15M þegar ég er með minnislyklana.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 00:02
af beggi90
Ég á svona http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20906" onclick="window.open(this.href);return false; og hef svosem ekkert notað hann neitt mikið þannig að ég hef ekki prufað á mörgum tölvum etc. en ég hef verið að fá 5.5-7.0 (skv. TeraCopy, hef ekki mikið statistík frá öðrum)

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 00:13
af Olafst
Hérna skrifar Yank um einn ansi öflugann usb lykil. Hentugt fyrir þá sem vilja mikinn hraða.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 3&p=148003" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 00:28
af Glazier
Olafst skrifaði:Hérna skrifar Yank um einn ansi öflugann usb lykil. Hentugt fyrir þá sem vilja mikinn hraða.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 3&p=148003" onclick="window.open(this.href);return false;
uu hægt að kaupa þennan kubb á Íslandi í dag ?

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 00:36
af GullMoli
Glazier skrifaði:
Olafst skrifaði:Hérna skrifar Yank um einn ansi öflugann usb lykil. Hentugt fyrir þá sem vilja mikinn hraða.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... 3&p=148003" onclick="window.open(this.href);return false;
uu hægt að kaupa þennan kubb á Íslandi í dag ?
Tölvulistinn er með eitthvað af þeim;
http://tolvulistinn.is/voruflokkur/jada ... lar/sida/1" onclick="window.open(this.href);return false;

Rándýrir :Þ

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 00:58
af Tiger
Þeir hljóta að fara að selja USB 3,0 fljótlega. Las að Supertalent ætlaði að byrja selja sína fyrstu í mars en sá mánuður er víst liðinn og ekkert komið í sölu enn. Var einmit að argast í mínum Crosair í gær með 5MB/s og hugsaði með hlýhug til næsta USB lykils sem er 10x hraðvirkari :)

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 03:38
af Pandemic
Snuddi skrifaði:Þeir hljóta að fara að selja USB 3,0 fljótlega. Las að Supertalent ætlaði að byrja selja sína fyrstu í mars en sá mánuður er víst liðinn og ekkert komið í sölu enn. Var einmit að argast í mínum Crosair í gær með 5MB/s og hugsaði með hlýhug til næsta USB lykils sem er 10x hraðvirkari :)
Ekkert endilega þar sem þú ert auðvitað takmarkaður af því að fylla lykilinn og þá tekur við delay að hreinsa allar blockirnar af honum eins og var á "gömlu" SSD drifunum. Svo hraðinn minnkar alltaf niður í nokkur MB eftir ákveðna notkun.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 04:09
af BjarniTS
1Snorri skrifaði:Hvað ertu að nota mörg usb slots á tölvunni?
Minnir að það sé viss flutningshraði á usb sem deilist á portin.
Ég er með örugglega 4 port á vélinni , en þetta var eina portið í notkun samt at the time.
En þetta er ekki nógu lélegt til að maður geti skilað er það?
Það veltur auðvitað allt á lýsingu.
En gardar þú ert að grínast með frystidæmið vænti èg haha?
Svona þín vegna lol.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 13:51
af gardar
BjarniTS skrifaði:.
En gardar þú ert að grínast með frystidæmið vænti èg haha?
Svona þín vegna lol.

Neibb alls ekki, tók fyrst eftir því að hraðinn væri betri eftir að hafa gleymt lyklinum úti í bíl þegar það var frost úti.

Smelli honum alltaf í kælingu núna áður en ég flyt mikið af gögnum inn/út af lyklinum.....

Það getur náttúrulega verið að kuldinn fari ekki vel með lykilinn en ég efast líka um að það fari vel með hann þegar hann sjóðhitnar.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 15:05
af BjarniTS
gardar skrifaði: Neibb alls ekki, tók fyrst eftir því að hraðinn væri betri eftir að hafa gleymt lyklinum úti í bíl þegar það var frost úti.

Smelli honum alltaf í kælingu núna áður en ég flyt mikið af gögnum inn/út af lyklinum.....

Það getur náttúrulega verið að kuldinn fari ekki vel með lykilinn en ég efast líka um að það fari vel með hann þegar hann sjóðhitnar.
Raki er það sem ég hefði áhyggjur af , en ég meina þú ert væntanlega ekki að flytja óbakköppaðar mastersritgerðir á þessu ;D
Og kannski ekki með lykilinn ísilagðan af klaka.

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 15:08
af Glazier
BjarniTS skrifaði:

Ef þú gleymir símanum þínum úti í bíl verður hann þá ísilagður af klaka ?
Verður hann ekki bara kaldur ?

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 15:32
af JohnnyX

þeir eru að tala um að setja minnislykilinn í frystinn....

Re: Flutningshraði á USB minnislykli , <5 mb/sec ? eðlilegt ?

Sent: Þri 06. Apr 2010 19:26
af gardar
BjarniTS skrifaði:
gardar skrifaði: Neibb alls ekki, tók fyrst eftir því að hraðinn væri betri eftir að hafa gleymt lyklinum úti í bíl þegar það var frost úti.

Smelli honum alltaf í kælingu núna áður en ég flyt mikið af gögnum inn/út af lyklinum.....

Það getur náttúrulega verið að kuldinn fari ekki vel með lykilinn en ég efast líka um að það fari vel með hann þegar hann sjóðhitnar.
Raki er það sem ég hefði áhyggjur af , en ég meina þú ert væntanlega ekki að flytja óbakköppaðar mastersritgerðir á þessu ;D
Og kannski ekki með lykilinn ísilagðan af klaka.

Vissulega ekkert svakalega viðkvæm gögn hjá mér, en ég er reyndar ekki að tala um að hafa lykilinn í frystinum lengi svo að ég býst ekki við því að hann ætti að blotna mikið....
Ekki mikið meira en t.d. ef þú myndir svitna og værir með lykilinn í vasanum.

annars væri gaman að heyra hvort einhverjir fleiri finni mun á því að frysta lyklana hjá sér.