Síða 1 af 2
[SELT]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Lau 20. Mar 2010 09:14
af Danni V8
Þetta er tölva sem ég er hægt og bítandi búinn að vera að bæta í og gera betri síðan í janúar 2009. Allt sem er til sölu hér er síðan 31. Desember 2008 eða yngra, flest allt keypt nýtt.
Tölvukassi: CoolerMaster HAF932 FullTower
Móðurborð: ASUS Striker Extreme II
Örgjörvi: Intel Core2Quad Q9550 12MB @ stock speed, 2,8GHz
Örgjörvakæling: CoolerMaster V8
Vinnsluminni: 2x OCZ 2GB 2000MHz DDR3
Power Supply: Tagan BZ Piperock 900W Modular
Skjákort: EVGA GTX 480 SC - Skráð á síðunni innan 30 daga, 10 ára ábyrgð, keypt á Amazon.com
HDD1: WesternDigital Black 640GB 7200rpm 64mb buffer, tvískiptur með 200gb fyrir stýrikerfi og rest auka.
Skjár: BenQ G2411HD 24" 16x9 með HDMI tengi og heyrnatólatengi
Aðeins um tölvuna
Þessi tölva er búin að vera mín einka tölva og ég er búinn að leggja mikinn metnað í að setja hana upp og halda henni eins vel við og mögulegt er. Ég skipti um viftu í örgjörvakælingunni til þess að losna við viftustýringuna, ég vil geta stjórnað viftunni í tölvunni sjálfri. Þetta er núna stillt þannig að viftan keyrir alltaf á 35% hraða nema hitinn fari yfir 45°C, þá eykst hraðinn þangað til hann næst niðurfyrir 45°C. Ég hef fylgst með hitanum með að nota CPUID Hardware Monitor og keyrði eina kvöldstundina Prime95 á þennan stock örgjörva til að sjá hvernig hitastig ég myndi fá, niðurstaðan var sú að hæðsta talana sem ég sá var 53°C á einum kjarnanum í örgjörvanum. Þá fór viftan upp í 52% snúning til að ná hitanum niður. Tölvan kemur með formöttuðum disk og engu stýrikerfi.
Verð
Allt á þessum lista: 190.000kr eða besta boð.
Tölvan án skjásins: 150.000
Ég skoða að taka uppí annan turn sem er með nógu góðan örgjörva og vinnsluminni fyrir COD MW2 og nógu góðan aflgjafa til að keyra GTX295 þar sem ég á eitt svoleiðis auka, sem er smá gallað en dugar fyrir MW2. Vil ekki fartölvu.
ATHUGA!!! Að gefnu tilefni vill ég taka það fram ég mun EKKI parta þennan turn né skipta íhlutum úr honum út fyrir aðra.
Verðlöggur eru velkomnar að setja út á verðið og ég tek það til athugunar, en mér finnst þetta sanngjarnt verð fyrir þennan pakka.
Það er hægt að hafa samband við mig í gegnum PM hér eða í síma 867-5202, ef ég svara ekki er ég sofandi eða í vinnu og hringi til baka þegar ég get.
Ástæða sölu er sú að ég er farinn í skóla aftur og vantar pening til að halda áfram að lifa!
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 10:44
af Frost
Hefurðu áhuga á að skipta GTX 275 á móti 2x8800gt ?

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 12:02
af Danni V8
Nei takk. Ég vil ekki skipti, vantar bara peninga. En ef að það gengur ekkert að selja þetta í heilu lagi þá getur verið að ég parta tölvuna, ég ætti að koma út á svipuðum stað þannig hvort sem er. En eins og er ætla ég að sjá hvernig gengur að selja í heilu lagi.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 12:19
af audiophile
Hef allavega áhuga á örgjörvanum ef þú ferð út í partasölu.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 12:46
af Frost
Danni V8 skrifaði:Nei takk. Ég vil ekki skipti, vantar bara peninga. En ef að það gengur ekkert að selja þetta í heilu lagi þá getur verið að ég parta tölvuna, ég ætti að koma út á svipuðum stað þannig hvort sem er. En eins og er ætla ég að sjá hvernig gengur að selja í heilu lagi.
Okei

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 12:51
af Danni V8
audiophile skrifaði:Hef allavega áhuga á örgjörvanum ef þú ferð út í partasölu.
Enda góður örgjörvi.
Bara á því að skipta yfir í þennan úr E7300 fékk ég án allra ýkja 15-20fps increase að meðaltali í BC2 og GTAIV.
Ætli ég þurfi ekki að gera sér þráð fyrir örgjörvann ef ég fer út í það að selja í pörtum, engin tilboð komin í tölvuna en tvö í örgjörvann strax

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 14:06
af Sydney
Er með eiginlega nákvæmlega sama specca, bara vatnskælingu og yfirklukkað í drasl.
Þetta er tölva sem er hreinlega osom.
Gangi þér vel með söluna.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 14:15
af Danni V8
Örugglega hægt að yfirklukka þessa til tunglins bara út af kassanum. Ótrúlegt hvað hann einn og sér heldur öllu köldu.
Ég prófaði einusinni að stilla stock Intel viftuna á gamla E7300 viftuna þannig að viftan snýst bara ekki neitt nema hitinn fari í 45°C og ég tók aldrei eftir viftunni fara í gang, enda 3 230mm og 1 120mm að halda loftinu tip top þarna inni

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 14:31
af ZoRzEr
Ég samþykki þessa tölvu. Hver sá sem kaupir hana verður ekki fyrir vonbrigðum. Er með næstum alveg nákvæmlega eins vél.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 15:05
af chaplin
Hef átt viðskipti við þennan mann, mjög ángæður með þau! Fær plús í kladdann fyrir góð viðskipti.

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 15:12
af Danni V8
daanielin skrifaði:Hef átt viðskipti við þennan mann, mjög ángæður með þau! Fær plús í kladdann fyrir góð viðskipti.

Sem minnir mig á það! V8 kælinguna keypti ég notaða líka, ekki nýja. Var búinn að gleyma því og tók það þessvegna ekki fram

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 16:49
af chaplin
Keypti hana af mér nánast ónotaða, eina sem var búið að gera var minnir mig að setja betri viftu í hana. Annars er held ég 1 ár - 1 1/2 ábyrð eftir á kælingunni, keyptina hana hjá Tölvulistanum. Annars hef ég aldrei heyrt um loftkælingu sem "bilar", þetta er bara járnköggull.. hvað gæti bilað?

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Lau 20. Mar 2010 23:19
af beatmaster
daanielin skrifaði:Hef átt viðskipti við þennan mann, mjög ángæður með þau! Fær plús í kladdann fyrir góð viðskipti.

Ég get sagt nákvæmlega það sama, toppnáungi hér á ferð og þetta er mjög gott verð fyrir þennann turn.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Mán 22. Mar 2010 16:48
af Danni V8
****
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Lau 04. Sep 2010 18:48
af Danni V8
Jæja upp með þetta. Ég hef ákveðið að selja tölvuna aftur, núna sel ég hana ef ég fæ nógu gott tilboð. Bakka ekki úr því.
Uppfærði auglýsinguna með öðrum íhlutum.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Lau 04. Sep 2010 19:33
af Ulli
ég er til í mb og minni ef þér dettur í hug að fara út í partasölu..
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Lau 04. Sep 2010 19:44
af Gunnar
til hvers að lifa þegar þú ert með svona tölvu?
EÐA
þú ert að lifa með svona tölvu... matur er aukamál!!!

Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Sun 05. Sep 2010 17:06
af Danni V8
Ég er kominn með tvö góð tilboð sem ég er núna velja á milli.
En hæðsta staðgreiðslutilboð eins og er er 130þús án skjás!
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Sun 05. Sep 2010 19:13
af Danni V8
Kominn með boð upp á 175þús með skjá og þetta er besta boðið hingað til, ég tek því á morgun ef ég fæ ekki betra boð.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Sun 05. Sep 2010 22:30
af nessinn
Ég er frekar mikil newb í hvað tölvur eru öflugar en mér sýnist þessi vera talsvert betri kaup en
þessi.
Ætlaði að kaupa mér hana í vikunni. Var líka að spá að kaupa SSD í hana og nota sem aðaldrif.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Sun 05. Sep 2010 22:36
af GullMoli
nessinn skrifaði:Ég er frekar mikil newb í hvað tölvur eru öflugar en mér sýnist þessi vera talsvert betri kaup en
þessi.
Ætlaði að kaupa mér hana í vikunni. Var líka að spá að kaupa SSD í hana og nota sem aðaldrif.
Það er rétt hjá þér. Þessi tölva hérna er algjör mulningsvél, m.a. með besta Nvidia skjákortið á markaðnum og þannig næst besta skjákort sem til er í dag, þó svo að það taki "besta" skjákortið nú alveg í sumum leikjum.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Mán 06. Sep 2010 08:22
af Danni V8
Þessi tölva er rosaleg. Ef ég væri ekki að flytja að heiman og fara í skóla á sama tíma þá væri ég að kaupa i7 uppfærslu í hana frekar en að selja hana!
En svona er þetta, stundum verður maður að velja og hafna. Ég kaupi þá kannski einhverja aðra mulningstölvu þegar ég er búinn með námið
En statusinn á tilboðum er þannig núna að sá sem bauð 175þús er kominn með bakþanka og er ekki viss hvort hann ætlar að standa við boðið, lætur mig vita í dag.
Ef að hann hættir við þá er hæsta boð 145þús fyrir tölvuna án skjás og ég tek því nema annað betra kemur í dag.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Mán 06. Sep 2010 15:34
af littli-Jake
Danni V8 skrifaði:Örugglega hægt að yfirklukka þessa til tunglins bara út af kassanum. Ótrúlegt hvað hann einn og sér heldur öllu köldu.
Ég prófaði einusinni að stilla stock Intel viftuna á gamla E7300 viftuna þannig að viftan snýst bara ekki neitt nema hitinn fari í 45°C og ég tók aldrei eftir viftunni fara í gang, enda 3 230mm og 1 120mm að halda loftinu tip top þarna inni

mættir alveg deila því hvenrig þú stillir það?
Ps. Hef líka áhuga á þessum örgjörva ef þú ferð í parta. PM me
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX275, 4GB
Sent: Mán 06. Sep 2010 17:50
af Danni V8
littli-Jake skrifaði:Danni V8 skrifaði:Örugglega hægt að yfirklukka þessa til tunglins bara út af kassanum. Ótrúlegt hvað hann einn og sér heldur öllu köldu.
Ég prófaði einusinni að stilla stock Intel viftuna á gamla E7300 viftuna þannig að viftan snýst bara ekki neitt nema hitinn fari í 45°C og ég tók aldrei eftir viftunni fara í gang, enda 3 230mm og 1 120mm að halda loftinu tip top þarna inni

mættir alveg deila því hvenrig þú stillir það?
Ps. Hef líka áhuga á þessum örgjörva ef þú ferð í parta. PM me
Eg hefði nú átt að taka þetta út þar sem þetta er bara hægt á gamla móðurborðinu sem ég var með, MSI P7N SLI Platinum, en þar er hægt að stilla þetta í Bios, ef að það er 4 pinna tengi á viftunni og engin viftustýring.
Re: [TS]Mjög góð leikjatölva, Q9550, GTX480, 4GB DDR3
Sent: Þri 07. Sep 2010 09:22
af Dazy crazy
hvermig er staðan á þessari?