Síða 1 af 1

C++ kennsla á íslandi

Sent: Fös 19. Mar 2010 21:54
af 1Snorri
Vitið þið hvort það séu einhver námskeið í c++ eða öðrum forritunarmálum á íslandi, sem jafnvel gefa gráðu eða viðurkenningu?

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 00:59
af dadik
Náðu þér frekar í gráðu í tölvunarfræði.

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 09:50
af Ezekiel
Minnir að nýji tölvuskólinn sé að kenna úr .NET pakka Microsoft og þar er væntanlega C# kennt.

Eini gallinn við þessi námskeið er að þau kosta hvítuna úr augunum.

Sniðugast væri fyrir þig að fara í Tækniskólann og læra, taka bara 1-2 áfanga, þar er kennt allt klabbið.. C#, SQL, Javascript, PHP, XML, CSS, LINQ.. etc

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 09:56
af lukkuláki

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 11:06
af jakobs
Kannski gætir þú byrjað á að skoða þetta;
http://ocw.mit.edu/OcwWeb/Electrical-En ... /index.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
Þetta er svo sem ekki c++ kennsla á Íslandi.

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 12:40
af 1Snorri
Já ég vissi um tölvunarfræðina, enda var ég í henni. Það sem ég var meira að spá í var öflugt námskeið sem gæfi einhverja viðurkenningu eða eitthvað slíkt.

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 12:53
af BjarniTS
1Snorri skrifaði:Já ég vissi um tölvunarfræðina, enda var ég í henni. Það sem ég var meira að spá í var öflugt námskeið sem gæfi einhverja viðurkenningu eða eitthvað slíkt.
Ertu útskrifaður úr tölvufræði in some way?
Bs gradu eða álíka?
Myndi bara leita á netinu og svona af námskeiðum og mundu bara að láta stéttafélagið þitt taka þátt.

Re: C++ kennsla á íslandi

Sent: Lau 20. Mar 2010 13:19
af 1Snorri
Nei HÍ hentaði mér ekki, hef því frekar snúið mér að því að læra sjálfur en að halda sér við efnið og vita hvaða skref er rétta skrefið getur verið dáltið tricky.
Þessi Web course gæti verið sniðugur.