Síða 1 af 1
Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Mið 10. Mar 2010 00:17
af Holy Smoke
Sælir piltar og dömur,
Ég vil losa mig við ofangreint hátalarasett. Þetta er 5.1 sett (sumsé 5 hátalarar + bassabox) sem styður bæði Dolby Digital og DTS strauma (allt að 24-bita / 96khz) gegnum optical og coax auk analog tengja. Það hefur mjög góðan hljóm, og er ennfremur í fullkomnu ástandi og hefur aldrei farið yfir miðju í hljóðstyrk. Ástæðan fyrir að ég vil selja það er einfaldlega sú að ég er kominn með upp í háls af öllu plássinu sem það tekur og snúrum um öll gólf.
Ég ætla ekki að fara fram á neinar gígantískar fjárhæðir fyrir það, en sá að Tölvulistinn er að selja það á 130þús kall í dag. Ég væri fullkomlega ánægður með að fá helminginn af þeirri upphæð en ætla engu að síður að leyfa fólki að bjóða í settið það sem því þykir við hæfi.
Kv.
Höddi
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Mið 10. Mar 2010 00:51
af machiavelli7
hvað er samt langt síðan þú verslaðir þér þetta kostaði 50k ekkad i kringum það fyrir ekki það það löngu (2 ár giska ég) þannig þú ert að græða 10 - 15k á þessari sölu samkvæmt þessu
efast samt um að einhver önnur svona sett í góðu standi eru að fara ekkað ódýrara
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Mið 10. Mar 2010 01:01
af dnz
http://buy.is/product.php?id_product=808 Fann þetta á 70 hérna. Held að 30-40 sé fínt verð á þetta annars hef ég smá áhuga, hvað heldurðu að þú setjir á þetta ef nýtt fæst á 70?
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Mið 10. Mar 2010 01:38
af Holy Smoke
machiavelli7 skrifaði:hvað er samt langt síðan þú verslaðir þér þetta kostaði 50k ekkad i kringum það fyrir ekki það það löngu (2 ár giska ég) þannig þú ert að græða 10 - 15k á þessari sölu samkvæmt þessu
efast samt um að einhver önnur svona sett í góðu standi eru að fara ekkað ódýrara
Algjörlega rétt hjá þér. Ég hefði auðvitað átt að taka það fram, en settið er keypt í lok ársins 2007 í kringum 50þús kallinn. En þar sem krónan er auðvitað helmingi minna virði í dag (og markaðsverðið fylgir því) þá verð ég auðvitað að taka það með í reikninginn. Ég kem, jú, til með að nota sömu verðlausu krónuna í kaup á einhverju öðru.
En, eins og ég sagði, þá væri ég
fullkomlega (s.s. mjög) ánægður með helminginn af því sem þetta kostar nýtt. Ég meinti það þannig að ég býst hreinlega ekki við meiru. Fólki er auðvitað frjálst að bjóða minna, og ég er ekkert að hengja mig á einhvern 10-20þús kall til eða frá. Ég er fyrst og fremst að reyna að losna við þetta fyrir sanngjarnt verð.
Ah, ég vissi ekki af þessu. En, já, ég myndi vel gúddera 35-40þús kall fyrst þetta er standard verðið. Ég vil auðvitað gefa fólki smá tækifæri til að bjóða, en ef þú ert sáttur og enginn býður betur (t.d. fyrir föstudag) þá myndi ég vel þiggja það.
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Lau 13. Mar 2010 01:22
af mercury
ég girnist þetta kerfi. hvað viltu fyrir það sendu mér verð í pm..
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Lau 13. Mar 2010 09:55
af lukkuláki
mercury skrifaði:ég girnist þetta kerfi. hvað viltu fyrir það sendu mér verð í pm..
Lestu næsta þráð á undan þínum þar kemr þetta greinilega fram. Við erum að tala um að færa augun nokkra sentimetra ofar
[Holy Smoke]ég myndi vel gúddera 35-40þús kall
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Lau 13. Mar 2010 11:59
af hagur
Smá off topic kannski ... en vá, djöfuls rudda-verð er á þessu nýju hjá Tölvulistanum. Fyrir 130k myndi ég nú frekar fara í Hátækni og fá mér einhvern Yamaha magnara og svo eitthvað 5.1 hátalarasett fyrir afganginn.
En fyrir það sem seljandinn hérna vill fá er þetta flottur díll hugsa ég.
Re: Logitech Z-5500 til sölu
Sent: Lau 13. Mar 2010 13:31
af Narco
Sendi þér PM