Síða 1 af 1
image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 19:25
af Tiger
Sælir, er nú búinn að googla þetta slatta en samt ekki finna beint það sem ég er að leita eftir...
Málið er að mig langar að vita hvort það sé til auðveld leið að taka afrit af nýuppsettu windows með þeim helstu forritum sem maður vill hafa og geyma það á usb eða dvd disk svo næsta þegar maður straujar þá getur maður bara straujað diskin og sett þetta beint inn með þeim forritum sem maður vill..... kannski er þetta ekki hægt á þægilegan máta en mikið væri þetta þægilegt þar sem það er nú nauðsynlegt að gera heilsubótarstrauj 2var á ári allavegana
.
Þannig að ef einhver getur bent mér á góða síðu um þetta, eða bara gert góða lýsingu á hvernig þetta er gert, þá væri það vel þegið og örugglega fleirr en ég sem myndu nýta sér það
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 19:45
af frabs
Getur notað forrit eins og Acronis true image, driveimage xml. Lestu um þau það kemur þér af stað. Ghost er líka vinsælt.
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 20:28
af rapport
Smá útúrdúr... þar sem ég er með svipað vandamál (eða vandamál sem þarf svipaða lausn)...
HDD í fartölvu er farinn að klikka... þyrfti að ná að clone-a hann yfir á nýjan HDD áður en hann hrinur til að sleppa við allt helv. umstangið að setja allt upp að nýju...
Er til þekkt lausn á því?
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 21:12
af lukkuláki
Norton Ghost er frábært í svona.
Nota það svo til daglega í svona málum.
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 21:54
af Zorglub
Miðað við undirskriftina þína að þú sért með gigabyte borð þá ertu með þennan möguleika í borðinu.
Þarft bara að smella móðurborðsdisknum í og virkja xpress recovery. Svo þarftu að búa til auða sneið á harðadisknum fyrir backupið,
restartar og smellir á f9 til að fá upp valmyndina, gerir backup og eftir það er þetta bara f9 og einn smellur til að setja vélina upp aftur
Nota þetta sjálfur og gæti ekki verið þægilegra
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Lau 06. Mar 2010 22:38
af Tiger
Já þú meinar, ég var bara að púsla vélinni saman í gær og ekki kominn svo langt að kíkja á þetta Express recovery. Takk fyrir þetta, kíki á þetta.
*edit*
Var að skoða þetta, ég mun vera með SSD disk í AHCI mode þannig að þetta virkar ekki fyrir mig, ekki satt?
Does not support RAID/AHCI (class code 0104/0106) hard disks.
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Sun 07. Mar 2010 04:31
af Starman
Re: image af stýrikerfinu fyrir uppsettningu
Sent: Sun 14. Mar 2010 23:05
af Tiger
Hefur engin prufað Windows restore sem er í windows 7 ultimate? Það virðist vera nákvæmlega það sem ég er að leita að, bý til image af nýuppsettu stýrikefi og get restorað í það innan úr windows hvenær sem er. Sjá
hérna, virðist vera simple og gera það sem ég leita að, en kannski sé ég ekki gallana við þetta, anyone tried this?