Síða 1 af 1
Skjákort
Sent: Sun 26. Jan 2003 22:48
af Bergur
Vill bara benda á að þetta skjákort í computer.is mx440 á kr. 6.550 er með sdram minni en ekki DDR, það hlýtur að skipta talsverðu máli. EF reiknað er með 5% staðgreiðsluafsl. í tölvuvirkni.net þá eru þeir orðinir ódýrastir í mörgu.
Sent: Mán 27. Jan 2003 00:09
af kiddi
Eftir því sem ég best veit þá eru Chaintech einu snillingarnir sem framleiða Geforce4 kort með SDRAM, og það er MX420 en ekki MX440, svo það er líklegast villa hjá computer.is - Að auki, förum við ekki að bæta við heilum vöruflokki afþví að ein verslun er með stórskrýtna útgáfu af einhverri vöru, og svo kalla ég í línuna okkar í "Skilmálar" síðunni á verðvaktinni, sem biður fólk að vinsamlegast athuga vörurnar betur áður en þær negla valið sem er byggt á ódýrustu vörunni.
Verðvaktin er eingöngu spegill fyrir verðin, ekki gæðaleiðarvísir. Takk fyrir ábendinguna samt sem áður
-
Og hvað varðar þennan staðgreiðsluafslátt, þá sýnist mér þetta vera millifærsluafsláttur, og er ekki rétt að þegar þú millifærir sjálfur þá borgarðu sjálfur fyrir bankafærsluna frekar en verslunin þegar þú rennir kortinu í gegnum posann?
Sent: Mán 16. Jún 2003 09:50
af hfm
Nei þetta miðast við staðgreiðslu hvort sem þú kemur í verslunina með debet, peninga eða millifærir.
Sent: Mán 16. Jún 2003 12:26
af kiddi
5% millifærsluafsláttur er af öllum vörum þegar millifærsla er valinn sem greiðslumáti þegar pantað er.
Þetta stendur á heimasíðunni ykkar?
Sent: Mán 16. Jún 2003 12:41
af Atlinn
kiddi skrifaði:5% millifærsluafsláttur er af öllum vörum þegar millifærsla er valinn sem greiðslumáti þegar pantað er.
Þetta stendur á heimasíðunni ykkar?
já þegar er pantað... enda geturu ekki beint staðgreitt þegar þú pantar vegna þess að þú ert líklega ekki á staðnum þegar þú pantar
Sent: Mán 16. Jún 2003 13:11
af kiddi
Að auki yrði ómannleg vinna ef við þyrftum að fara að reikna út hin og þessi verð af heimasíðum, við tökum þessar upplýsingar einfaldlega eins og þær eru, no more no less.
Sent: Mán 16. Jún 2003 15:07
af gumol
Ekki er þetta að verða eins og úti í USA, maður þarf alltaf að bæta skattinum við?
Það er ömurlegt.
Sent: Mán 16. Jún 2003 18:05
af MezzUp
ég held að það sé oftast búið að bæta við vsk. í USA, á sumum síðum er stundum sýnd bæði verðin......
Sent: Fös 27. Jún 2003 16:23
af Voffinn
kiddi skrifaði:....Geforce4 kort með SDRAM, og það er MX420 en ekki MX440...
ég á mx420 með 64mb DDR :=
Sent: Fös 27. Jún 2003 17:25
af gumol
MezzUp skrifaði:ég held að það sé oftast búið að bæta við vsk. í USA, á sumum síðum er stundum sýnd bæði verðin......
Ég var ´nú bara að tala um venjulegar búðir þar.
Sent: Lau 28. Jún 2003 09:54
af MezzUp
gumol skrifaði:MezzUp skrifaði:ég held að það sé oftast búið að bæta við vsk. í USA, á sumum síðum er stundum sýnd bæði verðin......
Ég var ´nú bara að tala um venjulegar búðir þar.
er aldrei buid ad baeta vid vsk. i venjulegum budum i USA?
Sent: Lau 28. Jún 2003 13:16
af gumol
Ekki í þeirri matvörubúð sem að ég fór í seinast þar.
Sent: Sun 29. Jún 2003 09:54
af Mal3
Langt síðan ég var í USA en þá voru verð gefin upp án sales tax, en oft verð í smáu letri með honum inniföldum. Alltaf gaman að sjá hvaða skerf ríkið tekur til sín
Svo er söluskattur í USA almennt frekar hóflegur. Þegar ég var þar svona 4-6%.