Síða 1 af 1
Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 21:43
af rapport
http://www.tilsolu.is/classifieds/detai ... teid=31910
Ekki minn bíll, bara að gera þessum gaur greiða...
WHY ?
Ég get ekki hætt að hugsa um þetta LSD í afturdrifinu...
Re: Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 22:04
af Danni V8
Limited Slip Differential eða læst drif..
Er eitthvað athugavert við það?
Ég hef sett svona í 2 bíla bæði fyrir mig og annan.
Re: Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 22:27
af Some0ne
var þetta practical joke sem backfire-aði all íllilega hjá pósthöfundi? i do indeed believe so.
Re: Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 23:28
af rapport
Míns LSD var miklu betra...
Re: Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 23:31
af Arena77
Mér finnst þú bjartsýnn
Re: Bíll til sölu
Sent: Fim 21. Jan 2010 23:49
af zedro
Er 600þ. ekki frekar mikið fyrir gamlan, útkeyrðan, bilaðan bíl?
Re: Bíll til sölu
Sent: Fös 22. Jan 2010 19:05
af littli-Jake
væri gríðarlega skemtilegt verkefni. bara ef maður ætti nú bílskúr
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 12:06
af ManiO
littli-Jake skrifaði:væri gríðarlega skemtilegt verkefni. bara ef maður ætti nú bílskúr
Svona bílar eru eilífðar verkefni.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 12:32
af gardar
rapport skrifaði:
Ég get ekki hætt að hugsa um þetta LSD í afturdrifinu...
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 12:46
af rapport
ManiO skrifaði:littli-Jake skrifaði:væri gríðarlega skemtilegt verkefni. bara ef maður ætti nú bílskúr
Svona bílar eru eilífðar verkefni.
Bílar eru almennt eilífðarverkefni.... það kallast viðhald.
Ég vel ameríska vegna þessa, varahlutirnir eru margfalt ódýrari, bílarnir eru einfaldari og því skiptir maður sjálfur um hlutina þó svo að það þurfi að gera það aðeins oftar...
Mín reynsla af:
1) Daihatsu Charade 1988 (fyrsti bílinn) = TURBO, (ódrepandi) "minning þín lifir vinur"
2)Nissan Sunny 1996, æði almennt en smá dýrt viðhald.
3)Benz 1999 = sá skelfilegasti, viðhaldskostnaður/2 = markaðsvirði á 4 árum
4)Micra 1999 = æði (tímakeðja) og ekkert viðhald nema bremsur á tveim árum.
5)Passat 1999 = ekki sá besti, seldi hálf laskaðan á "bílauppbod.is" því viðgerðir hefðu kostað um 200þ
6)Opel Tigra 1999 = ekki orð, skelfilegur bíll (tók hann uppí Benzann)...
7)Chrysler 2006 = Living the dream þrátt fyrir nokkrar viðgerðir.
Ég panta varahlutina síðunum hér að neðan og set þá í sjálfur, að skrúfa bílinn hálfan í sundur er ekkert mál ( og nei, það verða engar skrúfur afgangs)...
http://www.affordableautoparts4u.com
http://www.rockauto.com
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 13:11
af gardar
Þú hefur átt 7 bíla og aldrei heyrt um læst drif?
Jahérna...
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 13:50
af roadwarrior
Viðgerður tjónabíll....himm....væri ekki hissa á því ef þetta væru 2 bílar soðnir saman. 600þkall fyrir bíl sem er svona mikið að, með þessa sögu á bakvið sig (viðgerður tjónabíll), óskoðaður er to much. max 150þkall. Held meira að seigja að það sé of mikið. Það væri mögleiki á fá 600-700 fyrir svona bíl í topp standi. Á ekki von á að það sé mikið til af varahlutum hér á landi í þessa gerð þannig að það þarf að sérpanta allt frá USA, býst við að hann komi þaðan.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 15:09
af ManiO
rapport skrifaði:ManiO skrifaði:littli-Jake skrifaði:væri gríðarlega skemtilegt verkefni. bara ef maður ætti nú bílskúr
Svona bílar eru eilífðar verkefni.
Bílar eru almennt eilífðarverkefni.... það kallast viðhald.
Já, er ekkert ósammála því, en svona bílar eru iðulega í nokkra mánuði á verkstæði per hundrað kílómetra.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 15:42
af gardar
ManiO skrifaði:
Já, er ekkert ósammála því, en svona bílar eru iðulega í nokkra mánuði á verkstæði per hundrað kílómetra.
Rangt, ef þú átt svona bíl þá er ekkert vit í öðru en að geta græjað hlutina sjálfur... annað er mega $$$$
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 18:04
af Danni V8
3000GT VR4 eru svakaleg tæki og haldast vel í verði.
EF þeir eru í góðu standi.
Ég hef átt 8 Mitsubishi bíla og kunni á tímabili vel inn á þá bíltegund og hef myndað mér þá skoðun að eldri bílarnir eru óáreiðanlegri en allt. Þetta bara helst ekki í lagi. Veit ekki með nýju bílana.
Hef líka átt 6 BMW bíla og þeir hafa staðið sig mun betur í haldast í lagi hjá mér, lengsta sem einn svoleiðis hefur verið á verkstæði í minni eigu var hálft ár venga þess að ég var að keyra allt of hratt með klesstan framenda og húddið fauk upp á ca 180 km/h (Ný búinn að taka frammúr þremur BENZ-um
) og stútaði toppnum og topplúgunni. Kostaði ekkert smá mikið af pening úr mínum vasa að gera við ásamt nokkrum mánuðum í bið eftir varahlutum.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 18:53
af rapport
gardar skrifaði:Þú hefur átt 7 bíla og aldrei heyrt um læst drif?
Jahérna...
Jú jú... bara ekki að það sé kallað LSD.
En viðerumlíka að tala um 7 bíla á 10-11 árum, Micran og Passatin voru "konubílar" nema þegar Benzdruslan bilaði þá var ég rúntandi um smekkfullan bíl, konu, tvo börn+barnabílstólar og kom barnavagninum í skottið... ...það var FuXXing troðið.
p.s bensinn = slitin tímakeðja = 350þ + olíuþrýstingu féll og 500m keyrsla eftir það kostaði nýjar höfuð og stangarlegur sem p.s. Ræsir pantaði frá Renault (til að þurfa ekki að renna sveifarásinn) = 180þ
Þeir sögðu að fyrri viðgerðin færi ekki yfir 250þ og sú seinni færi ekki yfir 100þ (ég reif svakalega kjaft til að fá hana lækkaða í 180þ, þeir ætluðu að rukka 280þ)
Þetta gerðist allt á 12 mánaða tímabili, bílinn var ökufær í c.a. 2,5 mánuði.
p.p.s. Ræsir þurfti að taka vélina úr bílnum í fyrra skiptið, hann var því í handbresmsu í c.a. 3 mánuði á meðan viðgerð stóð. Á degi tvö eftir viðgerð var ég að keyra Suðurlandsbrautina á c.a. 60 þá rykkist handbremsan inní innréttinguna
og dekkin að aftan læsast = e-h handbremsufuck sem ég lét þá borga fyrir.
Mun aldrei kaupa bens aftur...
og já... ég veit að Chrysler og Benz voru sama fyrirtæki 2006 þegar bílinn minn var framleiddur, en hönnunin er frá 1999 og hefur verið betrumbætt ár frá ári síðan ... Town & Country...
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 20:31
af lionellux
skal borga 50,000
þið fáið aldrei 600 kúlur fyrir þetta flak.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 20:56
af Gunnar
lionellux skrifaði:skal borga 50,000
þið fáið aldrei 600 kúlur fyrir þetta flak.
600 kúlur= 600 milljónir. ekki allveg rétt orðað hjá þér.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 21:02
af vesley
100 þús kall væri ég til í að borga fyrir þennan bíl . en listinn yfir beiglur ryð og bilanir er of langur til að ég tými meira. ég meina hvað haldið þið að kostnaður yrði á nýju frambretti viðgerð á beyglum laga rið , mótorpúða drifskaftsupphengjur , ný framljós og líklega nýjann alternator og diska. og myndi það enda örugglega í sprautun. kannski ekki allt boddíið en góðann hluta af því.
og leynist örugglega fleiri bilanir þarna og aðrar kannski á leiðinni.
Re: Bíll til sölu
Sent: Lau 23. Jan 2010 22:37
af ManiO
gardar skrifaði:ManiO skrifaði:
Já, er ekkert ósammála því, en svona bílar eru iðulega í nokkra mánuði á verkstæði per hundrað kílómetra.
Rangt, ef þú átt svona bíl þá er ekkert vit í öðru en að geta græjað hlutina sjálfur... annað er mega $$$$
Já, en aðstaðan sem þú ert að gera við hann, telst það ekki sem verkstæði?
Þekki alla vega einn sem á slíkan bíl, hann hefur átt hann í 4 ár og bíllinn hefur verið gangfær í um mánuð á því tímabili.
Re: Bíll til sölu
Sent: Sun 24. Jan 2010 00:24
af Arena77
Ég væri búinn að henda þessu hræji á haugana
Re: Bíll til sölu
Sent: Sun 24. Jan 2010 02:09
af Ulli
Félagi minn átti þennan bíl.
mæli ekki með honum.tjónað í Dröslur.
skil ekki afhverju hann er ekki á haugunum.
skemtilegir bílar samnt sem áður.