Síða 1 af 1

Vandamál með 5.1 kerfi. SP/DIF?

Sent: Sun 20. Des 2009 14:36
af Son of a silly person
Daginn. Ég er ekki alveg með þetta á hreinu. http://www.gigabyte.com.tw/Products/Mot ... uctID=2871" onclick="window.open(this.href);return false; Móðurborðið.

Ég hef verið í vandræðum með að fá surround úr kerfinu mínu. Blandað 5.1 kerfi. Hef verið að notast við 3.5m í 2x rca, svo magnarinn stilltur á dolby digital og theater. Maður heyrir svona í öllum hátölurum en ekkert á við alvöru surround (þið vitið hvað ég á við).

Sp/dif er semsagt digital fluttningur á hljóði? Það er innbyggt á móðurborðinu en magnarinn minn er eldri en mamma mín og því ekki með neitt digital, eingöngu rca.

Þannig það sem ég þarf er magnari með sp/dif inngangi og þá er vandamál mitt úr sögunni? (ég er kannski að svara minni eigin spurningu)

http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=AVR132" onclick="window.open(this.href);return false; hafði ég hugsað mér þennan magnara.
http://images.google.is/imgres?imgurl=h ... N%26um%3D1" onclick="window.open(this.href);return false;

Eitt enn. Er það ekki þess virði að versla hljóðkort? Hérna er ég alveg út á túni. Öll ráðgjöf vel þeginn.

Kv. Ragnar

Re: Vandamál með 5.1 kerfi. SP/DIF?

Sent: Sun 20. Des 2009 14:44
af SteiniP
Onboard hljóðkortið dugar alveg þar sem þú ert bara að senda bitana yfir í magnarann, ekkert digital>analog conversion sem á sér stað í hljóðkortinu.

Re: Vandamál með 5.1 kerfi. SP/DIF?

Sent: Sun 20. Des 2009 15:04
af hagur
Rétt hjá Steina, onboard hljóðkortið dugar fínt í þetta. Eins þessi Harman Kardon magnari sem þú bendir á. Hann er bæði með digital optical og coaxial hljóð-inngang.

Þú tengir svo hljóðkortið við magnarann með annaðhvort optical toslink snúru eða digital coaxial snúru.

Re: Vandamál með 5.1 kerfi. SP/DIF?

Sent: Sun 20. Des 2009 22:13
af Son of a silly person
Ég þakka svörin. Ég hef verið að lesa mig til um optical og coax. Flest allt sem ég hef lesið segir að það sé bara mat hvers og eins, um hvort sé betra að nota. Ég held ég haldi mig við optical.
Endilega ef einhver veit um betri/skárri magnara á svipuðum pening 10.000 til eða frá, endilega tjá sig.
Ég þakka fyrir mig.

Kv. Ragnar