Síða 1 af 1
Í vafa með festingu á kassaviftu
Sent: Mið 09. Des 2009 21:05
af DoofuZ
Ég var að kaupa svona Tacens kassaviftur, eina 80mm og aðra 120mm, og ég er að reyna að festa stærri viftuna en gengur svoldið illa með það

Það fylgdu skrúfur með og svona svört hringlaga gúmmístykki með einhverju þunnu pappastykki og ég reyndi að skrúfa eina skrúfuna í viftuna en þegar ég fór að herða þá beygðist þetta svarta, sem ég setti s.s. á skrúfuna milli skrúfuhaussins og kassans, og svo datt það utanaf skrúfunni

Þið sem eruð með svona viftu, hvernig nákvæmlega festi ég viftuna? Og hvar set ég gúmmíið, milli skrúfuhaussins og kassans?

Re: Í vafa með festingu á kassaviftu
Sent: Mið 09. Des 2009 21:21
af GullMoli
Gúmmíið á að vera á milli kassans og viftunnar, þetta er til þess að koma í veg fyrir aukinn hávaða frá viftunni þegar hún titrar vegna mikils snúnings.
Ef þú ert með síma sem víbrar á t.d. borði þá heyrist frekar mikill hávaði, en ef að þú setur þunnt gúmmílag á milli símans og borðins þá heyrist mun minni hávaði
EDIT: Ekki skrúfa of fast, þá beyglast bara umgjörðin um viftuna.
EDIT2: Svona ef þetta skyldi vera óljóst xD .. þetta gúmmi, þú veist að þú átt að taka plastið af því og þá kemur í ljós lím á þvi. Festir það þannig bara á viftuna áður en þú setur hana í kassann.
Re: Í vafa með festingu á kassaviftu
Sent: Mið 09. Des 2009 21:28
af DoofuZ
Ó, ok, ég fatta, takk

Hélt að þetta hvíta ætti að vera á

Þá er bara að finna þetta svarta sem skaust af, týndi því aðeins

Re: Í vafa með festingu á kassaviftu
Sent: Mið 09. Des 2009 21:32
af GullMoli
Hehe, ekki málið
