Síða 1 af 1

[TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 14:18
af chaplin
Finnst þetta vera eini flokkurinn sem þetta passar í en núna er hægt að næla sér í Cooler Master HAF 922 frá Amazon á 14.595kr ef þú lætur Shopusa.is flytja hann inn fyrir þig. Rúmlega 10.000kr ódýrari en hérna heima.

Mynd

http://www.amazon.com/Cooler-Master-RC- ... 514&sr=8-1" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 14:37
af everdark
Viss um að þeir sendi hann til Íslands? Ætlaði að panta mér eitthvað raftækjagrams þaðan um daginn og þá kom í ljós að þeir senda það sem flokkast sem raftæki ekki hingað.

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 14:39
af blitz
Enda stendur þarna "Í gegnum shopusa.is"

:)

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 14:48
af chaplin
Að ég best veit sendi Shopusa frá öllum hlutum bandaríkjana til ísl. Þannig basically, ég kaupi hlutinn, sendi til höfuðstöðva shop usa, þeir senda til ísl. Win win dæmi maður!

Allavega ég ætla panta mér eitt stk ef ég næ að redda kreditkortinu mínu. ;)

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 14:58
af blitz
Verst bara að þetta gæti tekið ágætis tíma að koma, mig minnir að ef kassinn er ákveðið stór þá fer hann í skip frá USA?

Eða er það bull?

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 15:02
af blitz
5. Er afgreiðslugjaldið jafnt fyrir allar vörur, óháð rúmmáli, þyngd, tollflokkum og vörugjaldi?
ShopUSA gerir mjög flókið ferli einfalt með því að beita jöfnun. Þannig þarft þú ekki að velta fyrir þér þyngd, rúmmáli, tollflokkum eða vörugjöldum nema í þeim tilfellum sem sendingin er stærri en 1/2 rúmmeter. Reiknivélin áætlar heildarverðið til þín með jöfnunaraðferð.

Flugfrakt:
Allar sendingar sem eru minni en 50 cm á hverri hlið eru sjálfkrafa sendar með flugi til Íslands án auka flutningskostnaðar. Þú getur fengið stærri sendingar sendar með flugi en þá er kostnaðurinn USD 400 per rúmmeter (tekið er mið af ummáli heildarsendingar). Þegar þú skráir vöruna (rauði takkinn efst á síðunni), þá getur þú beðið um að sendingin verði send með flugi, jafnvel þó hún sé stærri en 50cm viðmiðið.

Dæmi:
Sending sem er 50 cm x 50 cm 50 cm = 0,125 m3 er send án aukakostnaðar
Sending sem er 1m x 50 cm x 50 cm = 0,25 m3 kostar $100 aukalega í flugfrakt en ekkert aukalega í sjófrakt.

Sjófrakt:
Sending sem eru minni en 0,5 rúmmetrar er send án auka flutningskostnaðar. Stærri sendingar kosta USD 200 per rúmmeter.

Dæmi:
Sending sem er 1 m x 1 m x 0,5 m = 0,5 m3 er send án aukakostnaðar.
Sending sem er 1 m x 1 m x 1 m = 1 m3 kostar $200 aukalega í sjófrakt.

Þyngd hefur ekki áhrif á fraktverð til Íslands.
Kassinn er 285 x 550 x 605 mm - Þannig að það bætist e-h við ef þú ætlar að henda þessu í flug

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 15:11
af chaplin
blitz skrifaði:Verst bara að þetta gæti tekið ágætis tíma að koma, mig minnir að ef kassinn er ákveðið stór þá fer hann í skip frá USA?

Eða er það bull?
Sjálfsagt rétt hjá þér, væri samt alveg sama þannig séð, er að fá kassa svo ódýrt.. :roll:

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Lau 28. Nóv 2009 16:26
af Nariur
hann er rétt tæplega 0,1m3 svo flug myndi kosta ca. $40 = 5000 kr.

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Sun 29. Nóv 2009 01:28
af chaplin
Nariur skrifaði:hann er rétt tæplega 0,1m3 svo flug myndi kosta ca. $40 = 5000 kr.
Nwm.. verðið komið í $90.. :|

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Þri 01. Des 2009 03:25
af Hrafninn
Hvað hefur e-r tjékkað á þessu og fengið nákvæmt verð hmmm?? Og eru menn almennt yfir sig sáttir við þessa kassa eða á mar að fara í Antec

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 20:46
af Danni V8
Hrafninn skrifaði:Hvað hefur e-r tjékkað á þessu og fengið nákvæmt verð hmmm?? Og eru menn almennt yfir sig sáttir við þessa kassa eða á mar að fara í Antec
Á 932 og er mjög sáttur með hann.. fyrir utan helv* ljósið sem blikkar þegar HDD er að vinna. Allt of bjart! Lýsir upp allt svefnherbergið ef tölvan er í gangi á nóttunni. Hef ekki ennþá nennt að opna tölvuna og taka ljósið úr sambandi hehe.

En ég hef að vísu engan annan kassa til að miða við, gamli kassinn var Antec Sonata II með ónýta kassaviftu svo ég þurfti að hafa hann opinn til að tölvan ofhitnaði ekki.

Það sem varð til þess að ég valdi þennan kassa yfir Antec P1** kassana var tvennt:
1. Það er gat á plötunni sem móðurborðið festist á svo það er ekkert mál að skipta um kælingu á nýju Intel móðurborðunum, en það þarf að taka móðurborðið úr til þess að taka örgjörvakælinguna af í öðrum kössum.
2. það er hægt að vera með PSU að ofan og að neðan, sem hentar vel fyrir mig þar sem mitt PSU er með of stuttar snúrur til að vera að neðan, gallinn er samt að ég þurfti að taka efstu 230mm viftuna úr til þess að koma PSU fyrir að ofan. Planið er þó að kaupa nýtt PSU í næstu uppfærslu.

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 21:02
af dadik
Áður en einhver fer að panta þetta ...

Gjöld og flutningskostnaður eru ca. 14k
Þetta leggst ofan á verðið á kassanum sem verður þá ca. 27k

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 21:16
af vesley
Danni v8: getur líka bara skellt þér á framlengingarsnúrur á cpu-power 24pin og pci-e tengjunum og þá ættiru að geta haft hann fyrir neðan ;)

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 21:18
af Danni V8
vesley skrifaði:Danni v8: getur líka bara skellt þér á framlengingarsnúrur á cpu-power 24pin og pci-e tengjunum og þá ættiru að geta haft hann fyrir neðan ;)
Nei nei mig vantar hvort sem er betra PSU núna hef ég bara afsökun :lol:

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 22:33
af Oak
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4817" onclick="window.open(this.href);return false;

Held að þetta sé ekki þess virði til að spara nokkur skeinibréf...

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 22:54
af chaplin
dadik skrifaði:Áður en einhver fer að panta þetta ...

Gjöld og flutningskostnaður eru ca. 14k
Þetta leggst ofan á verðið á kassanum sem verður þá ca. 27k
Oak skrifaði:http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4817

Held að þetta sé ekki þess virði til að spara nokkur skeinibréf...
Þegar ég gerði postinn kostaði hann $60..

Sláðu inn verð í USD (FOB): $60
Samtals gjöld kr: 6.839 Alls: 14.356

Skeiniði ykkur með gulli?

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 22:58
af Glazier
haha núna er hann kominn yfir 100$ og stendur verð áður 109$ #-o

Re: [TS] Cooler Master HAF 922 á 14.595kr - Nýr!

Sent: Mið 02. Des 2009 23:02
af chaplin
Glazier skrifaði:haha núna er hann kominn yfir 100$ og stendur verð áður 109$ #-o
Verð áður og "list price" er svart og hvítt.

Verð áður er það sem hlutir kostuðu, "list price" er svona ramdom price sem margar vefsíður setja svo rétta verðið lúkka sem svaka díll. En hann kostaði allavega undir 15.000kr kominn heim um daginn, ákvað að láta fólk vita.