Síða 1 af 1

22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 12:51
af fantis
Væri þessi góður í tildæmis counterstrike/wow & svipaða leiki? Ég væri þá að nota DVI tengi frá ATI HD 4850 skjákort.

Skjár LCD - 22 Tommu BenQ G2220HD 16:9 skjár,svartur

Stórglæsilegur "Full HD 1080p" skjár með 40.000: í Dynamic Contrast
Þessi mikla hápunkta upplausn tryggir skýrleika og gæði í leik og starfi.
BenQ Senseye tæknin ásamt Dynamic Contrast að 40000:1 gera þér kleyft
að sjá fínustu smáatriði og frábæra liti í kvikmyndum og tölvuleikjum.
Hreint út sagt frábær græja.

Skjástærð....... 22" Breiðtjaldskjár
Upplausn........ 1920x1080 pixlar
Birta............... 300cd/㎡
Skerpa........... 1000:1 (Dynamic Contrast Rate: 40000:1)
Svartími......... 2ms (GTG)
Fjöldi Lita..... 16.7 milljónir
Tengi á skjá.. D-Sub / DVI-D / Audio in / Headphone Jack

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 13:07
af Gúrú
Ekkert verra en hver annar LCD skjár í CS, túbur hafa samt þann eiginleika að geta sýnt fleiri ramma á sekúndu.

Svo já, þessi skjár er fínn í leiki.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 13:13
af fantis
er á 32" sjónvarpi atm og er að ná helling af römmum :P það er kanski ekki málið. Verður þetta "smooth"?

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 14:37
af himminn
fantis skrifaði:er á 32" sjónvarpi atm og er að ná helling af römmum :P það er kanski ekki málið. Verður þetta "smooth"?
Nei alex, hann er að tala um hz :D
Flestir flat skjáir eru 60hz á meðan túbur eru oft 100+ hz.

Svo ef þú ert með 500 fps í cs þá ertu bara að fá 60 fps í alvöru á flatskjánum og 100 í túbunni(ef hún nær 100hz)

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 16:26
af Victordp
Þessi skjár er snillid í CS:S vinur minn á svona, "alveg eins og túba", quote frá sko 1,6 spilurum

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 17:44
af mercury
Victordp skrifaði:Þessi skjár er snillid í CS:S vinur minn á svona, "alveg eins og túba", quote frá sko 1,6 spilurum
hvað meinaru ?

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 18:23
af Nothing
LCD skjáir fara mest uppi 75Hz meðan túbuskjáir eru frá 60Hz alveg uppi 240Hz misjafnt eftir framleiðendum og tegund hjá framleiðandanum.
Hef verið með 22" tommu BenQ LCD skjá aðeins önnur týpa en þessi, Seldi hann því það jafnast ekkert á við túbuskjá í Counter-Strike.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 18:32
af Pisc3s
Nothing skrifaði:LCD skjáir fara mest uppi 75Hz meðan túbuskjáir eru frá 60Hz alveg uppi 240Hz
Nei maður, fara allveg allavega upp í 120 hz.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 18:48
af fantis
Keypti mér 1 svona áðan og sé ekki eftir því. þessi skjár er algjört yndi. Varðandi cs þá er þetta eins ef ekki betra en túbu.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 19:02
af Nothing
Pisc3s skrifaði:
Nothing skrifaði:LCD skjáir fara mest uppi 75Hz meðan túbuskjáir eru frá 60Hz alveg uppi 240Hz
Nei maður, fara allveg allavega upp í 120 hz.
Já, kannski þinn túbuskjár, Mismunandi hvað túbuskjáir ná að höndla mikið hertz!
Ég var að keyra minn í 800x600 @ 140hz þegar ég var að spila...
fantis skrifaði:Keypti mér 1 svona áðan og sé ekki eftir því. þessi skjár er algjört yndi. Varðandi cs þá er þetta eins ef ekki betra en túbu.
Well, þetta er mjög persónubundið :wink: Ég sá ekki muninn fyrr en að ég prófaði að spila hja vini mínum á túbúskjá.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 20:07
af Orri
Nothing skrifaði:
Pisc3s skrifaði:
Nothing skrifaði:LCD skjáir fara mest uppi 75Hz meðan túbuskjáir eru frá 60Hz alveg uppi 240Hz
Nei maður, fara allveg allavega upp í 120 hz.
Já, kannski þinn túbuskjár, Mismunandi hvað túbuskjáir ná að höndla mikið hertz!
Ég var að keyra minn í 800x600 @ 140hz þegar ég var að spila....
Held að hann sé að tala um að flatskjáir fara uppí allt að 120hz.

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 20:33
af Gúrú
Nothing skrifaði:
Pisc3s skrifaði:
Nothing skrifaði:LCD skjáir fara mest uppi 75Hz meðan túbuskjáir eru frá 60Hz alveg uppi 240Hz
Nei maður, fara allveg allavega upp í 120 hz.
Já, kannski þinn túbuskjár, Mismunandi hvað túbuskjáir ná að höndla mikið hertz!
LCD skjáir fara ekki mest uppí 75Hz, það er það sem að Cpl. Pisc3s var að leiðrétta...

Re: 22"benq skjár.

Sent: Fim 22. Okt 2009 21:38
af Nothing
Það passar var algjörlega búinn að gleyma 120hz flatskjánum :wink:
Líka er 240hz flatskjáir bráðlega að fara koma á markaðinn.