Síða 1 af 1
xbmc hjálp
Sent: Fös 31. Júl 2009 22:11
af Arnarr
Var að pæla hvort einhver kann eða veit um plug-in sem getur látið xbmc spila marga þætti í röð án þess að maður þurfi að standa upp eftir hvern einasta og velja næst... Svona eins og þegar að maður ýtir á play takkann á flestum sjónvarpsflökkurum þá spilar hann alltaf barasta næsta þátt þegar sá fyrri er búin! Er búin að leita soldið á google en finn ekkert, kannski að það sé vegna lélegrar ensku þekkingar

Re: xbmc hjálp
Sent: Fös 31. Júl 2009 23:55
af Amything
Með Xbox fjarstýringunni ýturðu á 0 til að bæta á playlist. Síðan sérðu listann í Now playing. Þannig þetta er alveg hægt, prófaðu að fikta þig áfram.
Re: xbmc hjálp
Sent: Lau 01. Ágú 2009 10:49
af einargudjonsson
Þú getur valið þátt, farið í context menu og valið add to queue. Síðan þegar þú ert kominn með alla þætti sem þú villt horfa á inn í queue þá velur þú Now Playing úr context menu.
Context menu er t.d. valin með hægri músartakkanum eða context takkanum á lyklaborðinu (á milli AltGr og Ctrl hægra megin).
Góða skemmtun.