Síða 1 af 1

Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 16:46
af jonfr
Síminn er aftur að breyta ADSL niðurhalskilmálum hjá sér. Ég fékk tilkynningu um slíkt núna áðan. Hægt er að lesa breytinguna hérna.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 16:48
af arthurdent
Já, og nú stendur hvergi hvort takmarkanirnar séu tímabundnar, hvað þær vara lengi eða neitt. Þetta er allt mjög loðið og opið.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 17:20
af Salvar
Ætli þetta þýðir að þrjátíu daga færanlegi glugginn sé farinn og gagnamagnið sé mælt í hverjum mánuði fyrir sig? Þetta er ansi óskýrt og loðið.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 17:26
af bulldog
Skítafyrirtæki ....

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 17:29
af daremo
Frábært. Það verður aðeins auðveldara að fylgjast með notkuninni núna.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 17:32
af Salvar
Jæja, hringdi bara í þjónustuverið og tékkaði á þessu. Sögðu mér að þarna væri í raun bara verið að segja sama hlutinn í færri orðum; fyrirkomulagið yrði eins áfram, þ.e. þrjátíu daga færanlegi glugginn. Engar breytingar á þjónustunni sjálfri.

En svo er spurning hvort það er 100% satt og rétt, kemur bara í ljós.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 17:58
af GuðjónR
Er síminn ekki að miða við gagnamagn innan mánaðar en ekki síðustu 30 daga eins og það hefur verið?
Ef það er raunin þá er það MJÖG jákvæð breyting.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 18:09
af Salvar
GuðjónR skrifaði:Er síminn ekki að miða við gagnamagn innan mánaðar en ekki síðustu 30 daga eins og það hefur verið?
Ef það er raunin þá er það MJÖG jákvæð breyting.


Nei, mér skildist á þjónustufulltrúanum að svo væri ekki. Þrjátíu daga glugginn væri enn við lýði.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 18:27
af GuðjónR
Salvar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er síminn ekki að miða við gagnamagn innan mánaðar en ekki síðustu 30 daga eins og það hefur verið?
Ef það er raunin þá er það MJÖG jákvæð breyting.


Nei, mér skildist á þjónustufulltrúanum að svo væri ekki. Þrjátíu daga glugginn væri enn við lýði.

Ef svo er þá er þessi fullyrðing röng hjá þeim, þ.e. að þeir takmarki bandvídd ef niðurhal fer yfir það sem er innifalið í tengingunni, því ég er að kaupa 40GB á mán, ekki síðustu 30 daga.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 18:36
af Minuz1
Er ekki bara hægt að kaupa áskrift mánuð fyrir mánuð? :D

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 18:47
af depill
GuðjónR skrifaði:
Salvar skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Er síminn ekki að miða við gagnamagn innan mánaðar en ekki síðustu 30 daga eins og það hefur verið?
Ef það er raunin þá er það MJÖG jákvæð breyting.


Nei, mér skildist á þjónustufulltrúanum að svo væri ekki. Þrjátíu daga glugginn væri enn við lýði.

Ef svo er þá er þessi fullyrðing röng hjá þeim, þ.e. að þeir takmarki bandvídd ef niðurhal fer yfir það sem er innifalið í tengingunni, því ég er að kaupa 40GB á mán, ekki síðustu 30 daga.


Ég trúi ekki öðru en að þjónustufulltrúin viti bara ekki betur ( það er að það sé verið að fella niður 30 daga gluggan ) væntanlega eftir einhversskonar kvörtun til þeirra giska ég.

Þar sem að annars eru þeir bara að breyta skilmálunum til að bjóða uppá að fólk láti reyna á skilmálana, sem ég sé ekki að Síminn geri ( með örugglega fleirri en einn lögfræðing á sínum snærum )

P.S. Sem mér finnst bara súperjákvætt :)

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 28. Júl 2009 20:51
af GuðjónR
Salvar skrifaði:Jæja, hringdi bara í þjónustuverið og tékkaði á þessu. Sögðu mér að þarna væri í raun bara verið að segja sama hlutinn í færri orðum; fyrirkomulagið yrði eins áfram, þ.e. þrjátíu daga færanlegi glugginn. Engar breytingar á þjónustunni sjálfri.

En svo er spurning hvort það er 100% satt og rétt, kemur bara í ljós.


Ég hringdi líka til að fá skýringar á þessu.
Fékk sömu skýringar og þú, þeim verða að tilkynna allar breytingar, líka breytingar á orðalagi.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Mán 07. Sep 2009 10:08
af siminn
Til að taka af allann vafa að þá er fljótandi 30 daga reglunni hætt frá og með 1.september.

Niðurhal núllast núna um hver mánaðarmót.

Kveðja,
Guðmundur hjá Símanum.

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Þri 08. Sep 2009 16:18
af GuðjónR
siminn skrifaði:Til að taka af allann vafa að þá er fljótandi 30 daga reglunni hætt frá og með 1.september.

Niðurhal núllast núna um hver mánaðarmót.

Kveðja,
Guðmundur hjá Símanum.


Glæsilegt!!!

Thumbs up!

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Mið 09. Sep 2009 12:59
af stefan251
nice [-o<

Re: Síminn breytir skilmálum hjá sér

Sent: Mið 09. Sep 2009 15:10
af himminn
Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig 30 daga glugginn virkaði?