Síða 1 af 1
Hraðsuðuhellan ! (AMD)
Sent: Þri 02. Des 2003 10:52
af Hlynzi
AMD örgjörvinn minn er í 62-63 gráðum í vinnslu, metið er 70.
Hvað er max hiti á honum ? (AMD 2400XP+ ...sem er 2.0 GHz) í engri yfirklukkun.
Ég er alltaf að leiðinni að gera eitthvað í þessu, og ég er maðurinn sem geri allt til þess að borga sem minnst, og ætla þessvegna að fara í Sindra, og kaupa mér koparplötur og gera heiðarlega tilraun til að smíða mér heatsink, og smella viftu framan á vélina, einhver fleiri ráð ?
Sent: Þri 02. Des 2003 12:32
af RadoN
ég er með AMD Athlon XP 2500+ (Barton),
1.85 GHz, 512KB
furðulegt að þinn sé í 2 GHz en samt bara 2400
Sent: Þri 02. Des 2003 13:01
af gnarr
hanns er á 266fsb held ég. ætli það sé ekki munurinn.
Sent: Þri 02. Des 2003 13:21
af RadoN
jú.. minn er 333
Sent: Þri 02. Des 2003 17:42
af elv
Hlynsi hvað kælikrem ertu að nota, þetta er ekki eðlilegt, myndi taka HSF af og setja aftur á. Ertu með stock HSF
Sent: Þri 02. Des 2003 19:57
af Hlynzi
Kannski er það málið...ég er ekki með kælikrem á draslinu núna....
Sent: Þri 02. Des 2003 20:44
af SkaveN
fáðu þér Artic Silver 5 eða eitthvað álíka dót og skelltu á, svo mæli ég með að fá þér massa heatsync og öfluga viftu sem fyrst, þvi hann á ekki eftir að lifa lengi þessi örri ef hann er á 70° stundum
Þetta hérna væri flott "combo"
[url=http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=586]Heatsync
[/url]og
[url=http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=551]Vifta
[/url]
Gætir auðvita fengið þér Tornato ef þú vilt missa heyrnina í leiðinni
Sent: Þri 02. Des 2003 21:45
af elv
Hlynzi skrifaði:Kannski er það málið...ég er ekki með kælikrem á draslinu núna....
Skil ekki hvernig mönnum dettur þetta í hug, og kvarta svo yfir hita
Sent: Þri 02. Des 2003 21:58
af Hlynzi
elv skrifaði:Hlynzi skrifaði:Kannski er það málið...ég er ekki með kælikrem á draslinu núna....
Skil ekki hvernig mönnum dettur þetta í hug, og kvarta svo yfir hita
ég var bara búinn að gleyma þessu satt best að segja...
Sent: Þri 02. Des 2003 22:11
af RadoN
getur það haft einhver áhrif er ég skipti um kælikrem?
ég er með þetta sem kom með Aero7+ viftunni (það er þetta hvíta CoolerMaster), en langar kanski að kaupa nýtt og betra..
Sent: Þri 02. Des 2003 22:25
af elv
Svona 1-4 gráður sem það getur munað.
En það er ekki sama hvernig Artic Silver er sett á
Sent: Þri 02. Des 2003 22:28
af RadoN
ég veit alveg hvernig á að setja þetta á..
ég var bara að spá hvort það væri eitthvað vesen afþví að ég var búinn að setja aðra tegund á þetta..
Sent: Þri 02. Des 2003 23:03
af legi
2500 er barton core , meira L2 cache eða hvað sem það heitir og svo auðvitað 333 FSB
Sent: Mið 03. Des 2003 14:36
af elv
RadoN skrifaði:ég veit alveg hvernig á að setja þetta á..
ég var bara að spá hvort það væri eitthvað vesen afþví að ég var búinn að setja aðra tegund á þetta..
Hreinsar það af með Hreinsuðu Bensíni og Isopropanol
Sent: Mið 03. Des 2003 16:14
af RadoN
hvar fæ ég hreinsað benzín og isopropanol?
Sent: Mið 03. Des 2003 16:18
af elv
í Apótekum, kostar saman um 600kall minnir mig, bara eki hella beint á CPU eða HS
Sent: Mið 03. Des 2003 16:19
af RadoN
ha?! á hún ekki að vera í gangi?!
Sent: Mán 08. Des 2003 10:52
af Bendill
Þú kaupir ekki Isapropanol í apóteki! Það kostar allt of mikið.... Farðu bara útá næstu
Olís bensínstöð og fjárfestu í ísvara, það er hreint ísaprópanól
Kostar sirka 300 skeljar
Sent: Mán 08. Des 2003 11:46
af Hlynzi
hmm...ég lækkaði hittann um rúmar 7 gráður með því að ryksuga helvítið !
Nú fer hún ekki yfir 58 gráður í mad vinnslu
Sent: Mán 08. Des 2003 13:09
af elv
Bendill skrifaði:Þú kaupir ekki Isapropanol í apóteki! Það kostar allt of mikið.... Farðu bara útá næstu
Olís bensínstöð og fjárfestu í ísvara, það er hreint ísaprópanól
Kostar sirka 300 skeljar
Kostar svipað í apóteki
Sent: Mán 08. Des 2003 16:03
af Bendill
elv skrifaði:Kostar svipað í apóteki
Hálfur lítri af Ísaprópanóli í apóteki? einhvernveginn efast ég það...
Sent: Fös 12. Des 2003 13:54
af Pez
það ku nú víst vera hægt að nota bremsuhreinsiefni líka, fæst í bílanaust og þannig stöðum, kostar um eina spíru. Kosturinn er sá að þettar hægt að nota líka næst þegar maður þarf að skipta um bremsudiska á kagganum. Kannski áttu svona efni útí bílskúr.
Sent: Mið 17. Des 2003 19:39
af blaxdal
elv skrifaði:Svona 1-4 gráður sem það getur munað.
En það er ekki sama hvernig Artic Silver er sett á
´
endilega komdu þá með réttu aðferðina !!
Sent: Mið 17. Des 2003 19:42
af elv
Mjög þunnt lag, svipað og blað, rétt svo það hylji core.Og hafa það slétt.
Mjög gott að nota rakavéla blað(gömlu gerðina)
Annars er þetta allt á síðunni hjá Artic Silver
http://www.arcticsilver.com/arctic_silv ... ctions.htm
Sent: Fim 18. Des 2003 03:04
af blaxdal
kewl , Svalur
ég chakka á því