Síða 1 af 1

Thinkpad A30 í fokki

Sent: Mán 13. Apr 2009 15:40
af Sydney
Mamma fékk sér nýrri fartölvu þannig að ég fékk gömlu drusluna sem er alveg fín í skólann, en eftir nokkra daga fór hún að vera með vesen.

Skjárinn er í einhverju fokki í low resolution, þ.e.a.s. í gegnum POSTið og svoleiðis, stafirnir og tölurnar verða eitthvað algjört rugl, mismunandi eftir því hvernig ég halla skjánum, en það er allt í lagi um leið og ubuntu logoið kemur upp, og er síðan ekkert með meiri vesen, þetta hefur í raun engin áhrif. En þetta er ekki aðal vandamálið, aðal vandamálið er að tölvan bara frýs eftir nokkrar mínútur, alveg gersamlega og ekkert hægt að gera, hef reynt að keyra live CD og sama gerist. Veit einhver hvað er að?

Re: Thinkpad A30 í fokki

Sent: Mán 13. Apr 2009 15:59
af icup
Hefuru prófað annað stýrikerfi?

Re: Thinkpad A30 í fokki

Sent: Mán 13. Apr 2009 16:36
af Sydney
icup skrifaði:Hefuru prófað annað stýrikerfi?
Nei, hef ekki enn prófað það, ætla að prófa að henda inn XP og sjá hvað gerist.

Re: Thinkpad A30 í fokki

Sent: Mán 13. Apr 2009 22:39
af Sydney
Virkar flawless í XP, en Windows er djöfullinn :(

Oh well...