Síða 1 af 1
Tengja gamlan skanna við fartölvu
Sent: Sun 12. Apr 2009 14:09
af mattiorn
Sælir
Er með gamlan skanna sem ég þarf að tengja við lappann minn sem er Toshiba Satellite
Aftan á skannanum lítur dæmið svona út:
Er til snúra sem sem passar í skannatengið og er síðan USB í hinn endann?? getur það virkað
Hvernig er best að tengja þetta? ég er semsagt ekki með svona stórt tengi á fartölvunni og þarf því að skoða aðrar leiðir...
Öll gagnleg hjálp vel þegin:)
Re: Tengja gamlan skanna við fartölvu
Sent: Sun 12. Apr 2009 16:53
af lukkuláki
mattiorn skrifaði:Sælir
Er með gamlan skanna sem ég þarf að tengja við lappann minn sem er Toshiba Satellite
Aftan á skannanum lítur dæmið svona út:
Er til snúra sem sem passar í skannatengið og er síðan USB í hinn endann?? getur það virkað
Hvernig er best að tengja þetta? ég er semsagt ekki með svona stórt tengi á fartölvunni og þarf því að skoða aðrar leiðir...
Öll gagnleg hjálp vel þegin:)
Ég sé nú ekki myndina (er ég einn um það?) en giska á að þú sért að tala um paralell tengi ?
Það er hægt að fá paralell í USB
http://ejs.is/Pages/1116/itemno/USB-1284
Re: Tengja gamlan skanna við fartölvu
Sent: Sun 12. Apr 2009 21:20
af mattiorn
Nákvæmlega svona snúru! snilld takk:) á þetta einhver sem er staðsettur á akureyri eða nennir að senda þetta í pósti?
Re: Tengja gamlan skanna við fartölvu
Sent: Sun 12. Apr 2009 21:51
af lukkuláki
mattiorn skrifaði:Nákvæmlega svona snúru! snilld takk:) á þetta einhver sem er staðsettur á akureyri eða nennir að senda þetta í pósti?
Ættir bara að prófa að búa til
Óska eftir auglýsingu, ekkert víst að einhver sem á svona snúru rati hérna inn
Ég á því miður ekki svona handa þér.
Fæst í glæpalistanum á Akureyri
http://tl.is/vara/16825