Síða 1 af 1
Sahara skjávarpi
Sent: Lau 14. Mar 2009 19:20
af Orri
Sælir/ar (ef það leynast einhverjar stelpur hérna).
Ég hef verið að skoða ódýra HD skjávarpa, og fann einn sem lýtur þokkalega vel út inná
http://www.skjavarpi.isÞað er þessi hérna :
Sahara 2600 DLPHann yrði staðsettur í stóru sjónvarpsholi (5m x 6m), sem er aðeins með einum litlum glugga, þannig að það er vel dimmt þar.
Skjávarpinn yrði notaður í PlayStation 3 spilun (720p upplausn).
Hefur einhver hérna reynslu af þessum skjávarpa eða heyrt eitthvað um hann ?
Og er hann góður fyrir PlayStation 3 spilun (720p upplausn) ?
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 10:31
af Hauksi
Sæll.
Þetta er svga (800x600) varpi semsagt SD og er þess vegna "ónothæfur"
fyrir HD efni.
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 11:26
af Orri
Það er skrýtið þar sem það stendur " HDTV : Já " inná síðunni.
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 11:43
af gardar
Orri skrifaði:Það er skrýtið þar sem það stendur " HDTV : Já " inná síðunni.
HDTV ready og HD ready er ekki það sama...
Þetta hefur verið notað sem "sölutrikk" þar sem menn átta sig ekki á þessu.
Með HDTV ready eiga menn við það að varpinn getur jú tekið við HD signali, en þarf ekki endilega að birta það í HD upplausn.
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 11:57
af hagur
Sammála Gardari.
Þó að hann geti alveg tekið við og birt HD signal, þá nýtur það sín alls ekki til fulls þar sem upplausnin er bara 800x600 sem er auk þess 4:3 á meðan HD er 16:9 (wide-screen). Svo er spurning með tengimöguleika, sýnist varpinn hvorki vera með HDMI tengi né Component. Líklega tekur hann bara HD merki inn í gegnum DVI tengið og spurning hvernig þér muni ganga að tengja Playstation vélina þannig.
Mæli með að þú gleymir þessum og finnir "alvöru" HD heimabíóvarpa sem er a.m.k native 720p og 16:9, með HDMI tengi.
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 12:03
af gardar
Félagi minn á
Mitsubishi HC1600 skjávarpa. Hörkufínn 720p skjávarpi fyrir peninginn!
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 12:11
af Orri
Takk fyrir góð svör.
@gardar
Fæst þessi á Íslandi ?
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 12:30
af gardar
Ekki svo ég viti, félagi minn keypti hann að utan.
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 12:49
af Orri
Takk samt.
Veit einhver um nýjan/notaðann HD ready skjávarpa undir 150 þúsund ?
Re: Sahara skjávarpi
Sent: Sun 15. Mar 2009 12:53
af gardar