Síða 1 af 1
Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 18:24
af Frantic
Hvar er hægt að finna snúru sem er með VGI tengi öðru meginn og Scart eða svona RCA hinum meginn?
Vantar að geta tengt fartölvuna mína við sjónvarp.
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 18:45
af Xyron
Ef þú ert að leita af "plug and play" lausn þá mæli ég ekki með þessu.
Það er samt hægt að gera þetta, en þá verður sjónvarpið þitt að styðja RGB Scart..
Þú verður að nota forrit eins og t.d. powerstrip til að stilla refresh rate og upplausn fyrir sjónvarps outputið. Síðan er líka möguleiki á að þú skemmir sjónvarpið þitt ef þú notar of hátt refresh rate..
Skoðaðu þessa grein fyrst áður en þú verslar þér svona..
http://www.idiots.org.uk/vga_rgb_scart/Sá svona einhverntímann í BT, annars leyna íhlutir og miðbæjarradíó oft á ótrúlegustu hlutum..
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 18:47
af Frantic
Málið er að í fartölvunni minni er bara VGA tengi. Er hægt að fá einhvern converter sem breytir VGA í scart og svo nota ég bara venjulegt scart tengi. Já eða það sama með RCA.
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 18:52
af KermitTheFrog
Ég á S-video out --> Scart og hef ekkert eyðilagt sjónvarpið mitt á þessu
http://www.computer.is/vorur/5620 <-- minnir að það sé þetta
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 19:12
af Xyron
JoiKulp skrifaði:Málið er að í fartölvunni minni er bara VGA tengi. Er hægt að fá einhvern converter sem breytir VGA í scart og svo nota ég bara venjulegt scart tengi. Já eða það sama með RCA.
!!GOOGLE TO THE RESCUE!!
http://sewelldirect.com/pc-to-tv.aspþetta hérna er reyndar til að breyta vga merki í s-video og/eða yfir í composite(video hlutinn af rca)
þá gætir þú verslað þér mini jack yfir í stero rca(hljóð) til þess að ná hljóðinu
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 19:28
af hagur
Þetta er það sem þú þarft:
http://www.computer.is/vorur/6897Það er engin leið að taka VGA yfir í SCART með kapli vegna þess að þessi merki eru gjörólík. Til að converta VGA yfir í SCART þarftu ákveðinn vélbúnað sem breytir merkinu. (Nema hugsanlega með mixi eins og í greininni sem Xyron sendi inn.)
S-Video yfir í SCART er ekkert mál, enda inniheldur SCART staðallinn stuðning við S-Video merki.
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 19:45
af KermitTheFrog
Það er nú bókað S-Video out á þessum lappa hans
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Mið 04. Mar 2009 22:31
af hagur
Ja, hann segist nú bara vera með VGA .... en það er rétt, ef það er ekki S-Video tengi á honum, þá er hann nú líklega orðinn ANSI gamall.
Re: Fartölva -> Sjónvarp
Sent: Fim 05. Mar 2009 18:49
af Xyron
hagur skrifaði:Það er engin leið að taka VGA yfir í SCART með kapli vegna þess að þessi merki eru gjörólík. Til að converta VGA yfir í SCART þarftu ákveðinn vélbúnað sem breytir merkinu. (Nema hugsanlega með mixi eins og í greininni sem Xyron sendi inn.)
Ef þú ert með RGB SCART input á sjónvarpinu þínu þá getur þú notað "VGA->SCART" kapal án þess að eiga við merkið með utanaðkomandi vélbúnaði.
Þarft ekkert að mixa þessa snúru frekar en þú vilt, sá svona kapal til sölu í BT fyrir ca. ári.
That said, þá mæli ég frekar með búnaðinum sem þú bentir á hagur, eða kaupa PCMCIA kort sem inniheldur s-video out.