Eru Philips búnir að toppa sig?
Sent: Sun 11. Jan 2009 22:27
Sá að Sjónvarpsmiðstöðin hefur tekið nýjasta Philips LCD tækið í sölu. SJITT!!!


Af hverju ekki að fá sér bara 50" plasma fyrir minni pening?Matti21 skrifaði:Verð að segja að ég varð fyrir pínu vonbrigðum þegar ég sá þetta tæki. Jújú það lítur rosalega vel út upp á vegg, er alveg ótrúlega stýlhreint og af hverju það eru ekki til fleiri tæki með utanáliggjandi kassa með öllum tengibúnaðinum í skil ég ekki en ég varð samt einhvernvegin ekki fyrir neinum áhrifum þegar ég sá það. Finnst það eiginlega bara OF plain. Finnst td. nýja línan frá Panasonic margfallt flottari.
Hinsvegar er ÞETTA tæki hreint út sagt ótrúlegt tæki.
1152 LED ljós sem lýsa upp myndina og tækið getur slökt á þeim ljósum sem eru bakvið svarta pixla sem þýðir gjörsamlega ekkert backlight-bleeding. Framtíðin í LCD tækjum, án efa.
Þarna erum við að tala um LCD tæki sem jafnar Kuro tækin í black-level ef þú spyrð mig. Horfði lengi á mynd spilaða í PS3 á þessu tæki og spáði vel í því hvort ég væri að horfa á DVD eða blu-ray. Endaði með að taka diskinn úr vélinni og komst að því að þetta var DVD. Ótrúlegt tæki.
Tengist það þá ekki frekar því hversu góður "upskalari" spilarinn er? Vont LCD sjónvarp backlight bleedar alveg jafn mikið á DVD og Blu-ray.Matti21 skrifaði: Hinsvegar er ÞETTA tæki hreint út sagt ótrúlegt tæki.
1152 LED ljós sem lýsa upp myndina og tækið getur slökt á þeim ljósum sem eru bakvið svarta pixla sem þýðir gjörsamlega ekkert backlight-bleeding. Framtíðin í LCD tækjum, án efa.
Þarna erum við að tala um LCD tæki sem jafnar Kuro tækin í black-level ef þú spyrð mig. Horfði lengi á mynd spilaða í PS3 á þessu tæki og spáði vel í því hvort ég væri að horfa á DVD eða blu-ray. Endaði með að taka diskinn úr vélinni og komst að því að þetta var DVD. Ótrúlegt tæki.
Sagði aldrei að mig langaði að kaupa það en það breitir því samt ekki að þetta er ótrúlega flott tæki.Stebet skrifaði:Af hverju ekki að fá sér bara 50" plasma fyrir minni pening?
Talaði aldrei um einhvern mun á blu-ray og DVD varðandi backlight-bleeding. Það sem ég sagði var að ólíkt öðrum LCD tækjum sem hafa risastóra lampa bakvið panelinn til þess að lýsa upp myndina hefur þetta tæki 1152 LED ljós. LCD tæki mynda svarta liti með því að gera gegnsæa pixla því augljóslega geturðu ekki myndað svartan úr rauðum, grænum og bláum. Þú hlítur að sjá að þegar þú myndar svarta liti með því að gera gegnsæa pixla lendirðu í veseni því það er lampi bakvið panelinn á tækinu = svartir verða gráir. Auðvitað hefur LCD tækjum farið rosalega fram og ný tæki í dag, þrátt fyrir að vera með eins lampa, eru komin með nokkuð góða svarta liti, en þetta tæki getur slökt á þeim LED ljósum sem eru fyrir aftan svarta pixla sem þýðir að svartur verður alveg svartur.Daz skrifaði:Tengist það þá ekki frekar því hversu góður "upskalari" spilarinn er? Vont LCD sjónvarp backlight bleedar alveg jafn mikið á DVD og Blu-ray.
þú semsagt ert á móti einni philips vegna þess að það hefur eitt sjónvarp bilað, og það var sett í viðgerð 2 eða 3.Hyper_Pinjata skrifaði:fá sér frekar jvc tæki....tek þá allavega yfir philips...hell...ég tek meiraðsegja LG (algört rusl) yfir Philips...
við áttum einusinni 36" Sjónvarp (Philips eitthvað) með 2 hátölurum & bassaboxi aftaná...voðalega "futuristic" tæki...fjarstýringin var með svona "flugvélastíl" eða semsagt þú opnaðir báðum megin til að fá fleiri valmöguleika...en svo fór tækið að verða "grænt" (sýndi grænan skjá) og það fór í viðgerð tvisvar eða þrisvar....síðan þá hefur sjaldan verið neitt annað en Jvc í Heimilistækjunum hérna....
Sjónvarpið hefur alls ekki lokaorðið varðandi uppskölun. Það á engin uppskölun sér stað í tækinu ef tækið fær mynd inn í native stærð sjónvarpsins, t.d. ef PS3 er að senda 1080p merki í 1080p sjónvarp þá uppskalar sjónvarpið ekki neitt.. enda ekkert til að uppskala.Matti21 skrifaði: Varðandi uppskölunina þá er það myndstýringin í tækinu (Perfect Pixel) sem vinnur margfallt meira með myndina heldur en uppskölunin í PS3. Sjónvarpið hefur alltaf lokaorðið og það skiptir engu máli hvað spilarinn er góður ef sjónvarpið er drasl.
Sagði líka aldrei að sjónvarpið uppskalaði eitt né neitt heldur aðeins að Perfect Pixel myndstýringin í tækinu vinnur mun meira með myndina heldur en uppskölunin í PS3. Sjónvarpið hefur alltaf lokaorðið um myndgæðin sem birtast á skjánum. Það er hægt að slökkva á Perfect Pixel fyrir helminginn af myndinni til þess að sjá muninn og hann er talsverður...Stebet skrifaði:Sjónvarpið hefur alls ekki lokaorðið varðandi uppskölun. Það á engin uppskölun sér stað í tækinu ef tækið fær mynd inn í native stærð sjónvarpsins, t.d. ef PS3 er að senda 1080p merki í 1080p sjónvarp þá uppskalar sjónvarpið ekki neitt.. enda ekkert til að uppskala.Matti21 skrifaði: Varðandi uppskölunina þá er það myndstýringin í tækinu (Perfect Pixel) sem vinnur margfallt meira með myndina heldur en uppskölunin í PS3. Sjónvarpið hefur alltaf lokaorðið og það skiptir engu máli hvað spilarinn er góður ef sjónvarpið er drasl.
Ahh ég skil. Misskildi þig aðeinsMatti21 skrifaði:Sagði líka aldrei að sjónvarpið uppskalaði eitt né neitt heldur aðeins að Perfect Pixel myndstýringin í tækinu vinnur mun meira með myndina heldur en uppskölunin í PS3. Sjónvarpið hefur alltaf lokaorðið um myndgæðin sem birtast á skjánum. Það er hægt að slökkva á Perfect Pixel fyrir helminginn af myndinni til þess að sjá muninn og hann er talsverður...