Síða 1 af 1
Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 21:08
af Tropical
hvað getur gerst við tölvuna ef það kemur svo mikið spennufall ? mín vill ekki déskotans virka eftir það :O
Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 21:23
af coldcut
getur skemmst náttúrulega...ég slökkti nú bara á minni áðan því það er brjálað veður hérna uppá Skaga og ljósin blikka.
Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 21:45
af Tropical
coldcut skrifaði:getur skemmst náttúrulega...ég slökkti nú bara á minni áðan því það er brjálað veður hérna uppá Skaga og ljósin blikka.
jam bara eg var nátturu lega ekki heima enn ja pabbi fer með tölvuna i trygginganar a mrg

og snerpu

Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 22:50
af CendenZ
Hvenær er EKKI vont veður uppá skaga.
Þetta er næstum einsog kjalarnesið

Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 22:53
af jonsig
Sry ég er búinn að vera nokkuð lengi í rafmagninu, en þegar þú meinar spennufall ? hvar ?
lækkaði straumurinn í innstungunni eða varð spennufall yfir tölvuna þína . ég ekki skilja
Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 22:56
af jonsig
ég hef alltaf notað orðið spennufall , þegar snúra í eitthvað tæki er heit útaf miklu álagi , og vírinn að tækinu er að hitna og hækka í viðnámi rásarinnar . En auðvitað er alltaf spennufall í öllum rásum nema í ofurleiðurum
Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 23:27
af urban
spennufall....
orðir segir sig sjálft...
spenna lækkar
Re: Spennufall
Sent: Fim 11. Des 2008 23:46
af Kristján Gerhard
Í þessu tilfelli er ekki átt við spennufall vegna viðnáms. Með spennufalli er hins vegar átt við að netspennan falli.
Alvarleg bilun getur valdið rafmagnsleysi í skemmri eða lengri tíma en með spennufalli er yfirleitt átt við
„rafmagnsleysi“ sem varir í örfáar sekúndur eða jafnvel brot úr sekúndu. Spennufall sem þetta getur verið mjög
skaðlegt fyrir tölvubúnað þar sem hann er sérstaklega viðkvæmur fyrir þessu.
Re: Spennufall
Sent: Fös 12. Des 2008 00:31
af coldcut
CendenZ skrifaði:Hvenær er EKKI vont veður uppá skaga.
Þetta er næstum einsog kjalarnesið

hehe það er nú ekki oft vont veður eins og er núna en oftast er einhver gustur =/
Re: Spennufall
Sent: Fös 12. Des 2008 00:34
af urban
gott að búa bara hérna í eyjum...
alltaf logn hérna, það er bara að flýta sér mis mikið...
Re: Spennufall
Sent: Fös 12. Des 2008 00:38
af Blackened
er allstaðar vont veður eða?
ég er á Akureyri og það fauk sjór yfir bílinn minn þegar að ég var að keyra niðrí bæ :/
..þá er orðið full hvasst
Re: Spennufall
Sent: Fös 12. Des 2008 00:54
af DoofuZ
Já, djöfull var þetta geðveikt veður

Ég var í IKEA um kvöldmatarleitið og það var bara smá vindur þegar ég fór þangað inn en svo svoldið seinna þegar ég fór þaðan þá var alveg grenjandi rigning og brjálað rok, maður heyrði vel í rokinu berja húsið
En back on topic, ég var einmitt í dag að skila tölvu í vinnuna sem ég var að gera við en þar þurfti ég að skipta um móðurborð þar sem það gamla dó bara og þar til í morgun þá vissi ég ekki afhverju hún dó. Það var nefnilega sjálf rafmagnssnúran sem drap tölvuna, hún var ekki að gefa tölvunni nægan straum og svo bara virkar sú snúra ekki lengur

Ferlega leiðinlegt, en maður lærir bara á þessu
