Síða 1 af 1
hávær vifta!
Sent: Lau 29. Nóv 2008 14:21
af arnar7
sælir.
ég er að verða frekar pirraður á háværri viftu í Sarotech 370 TV-flakkaranum mínum og var að velta því fyrir mér hvort það væri til einhver hljóðlát þannig virfta sem myndi passa í hann?
... ég man ekki allveg hvaða stærð þetta er (40x40)?
öll svör vel þegin
Takk fyrir

Re: hávær vifta!
Sent: Lau 29. Nóv 2008 15:07
af Matti21
Færð aldrei hljóðláta 40mm viftu. Þær eru einfaldlega allt of litlar til þess að geta fært eitthvað loft og verða þvi að snúast margfallt hraðar til þess að gera eitthvað gagn.
Getur samt alveg prófað að skipta um viftu -->
http://www.computer.is/vorur/6231" onclick="window.open(this.href);return false;
Getur komið mjög leiðinlegt suð í svona viftur ef mótorinn fer eitthvað að gefa sig. Getur líka athugað hvort að vifta sé nokkuð orðinn troðfull af ryki. Þá þarftu bara að spreyja aðeins á hana með þrýstiloftsbrúsa.
Re: hávær vifta!
Sent: Lau 29. Nóv 2008 16:24
af arnar7
þetta er nýr hýsing og það er ekkert ryk á viftunni.
Re: hávær vifta!
Sent: Lau 29. Nóv 2008 16:48
af Matti21
arnar7 skrifaði:þetta er nýr hýsing og það er ekkert ryk á viftunni.
Þá er þetta bara hávær hýsing. Ef hún er eitthvað óvenjulega hávær (alltaf á max td.) þá geturðu alveg beðið þá verslun sem þú keyptir hýsinguna í líta á hana fyrir þig.
Get allavega lofað þér því að þú rífur ábyrgðina þína ef þú skiptir um viftu sjálfur...