Síða 1 af 1

Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 00:23
af musaling
ég download-aði þessu forriti http://www.softpedia.com/progDownload/E ... 30373.html

til þess að kíkja á hitann á CPU og forritið segir 83 gráður :/

og tölvan er það heit að manni svíður í puttana þegar maður er að nota touch-padinn..

er þetta einhvað sem hægt er að laga?

þetta er HP Pavilion dv6000.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 00:27
af KermitTheFrog
Fara og láta yfirfara hana.. Gá hvort heatsinkið er ekki í lagi og einnig hvort viftan er ekki full af ryki

Einnig er ekki mælt með að hafa fartölvur á mjúku yfirborði (á rúmi eða slíku) vegna þess hve erfitt hún á með að taka inn loft.. Ég lækkaði hitann á minni líka gífurlega með því að setja spýtukubb undir hana þegar ég var með hana á borðinu til að auka loftflæði til viftunnar

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 09:44
af Halli25
Einnig hægt að hafa þetta aðeins flottar og kaupa stand fyrir tölvuna:

http://www.tl.is/vara/10433

og aðeins nettar með að kaupa stand með USB hub:

http://www.tl.is/vara/10432

og svo eru til standar með lyklaborði þráð og þráðlaust:

http://www.tl.is/vara/10419 og http://www.tl.is/vara/10420

Lagaði helling hjá mér að blása rykið úr viftunni og nota svo stand, mjúkt yfirborð er killer fyrir fartölvur. Getur heft eðlilegt loftstreymi og jafnvel alveg lokað því, veit um atvik þar sem tölvað hreinlega bráðnaði :)

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 10:25
af KermitTheFrog
Já, en viðarkubburinn kostar ekki 10k

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 10:38
af Halli25
KermitTheFrog skrifaði:Já, en viðarkubburinn kostar ekki 10k

aha ef þú vilt hafa þetta rough.. http://www.tl.is/vara/10433 ódýrast á 5K :P

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 11:13
af vesley
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... 4399d66e7a ekki fá þér þetta plastdót á 5 k frá tl getur alveg eins fengið fartölvustand frá tölvutækni á 5 k sem er með 2 70 mm viftum sem blása undir tölvuna

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Mið 19. Nóv 2008 11:30
af KermitTheFrog
svo getur vel verið að hann sé mikið með hana á ferðinni og geti ekki alltaf verið að taka þetta dock með sér

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Sun 28. Des 2008 20:59
af orrieinarsson
Gerðist alltaf þegar ég var með mína á rúmminu og búinn að hafa kveikt á henni lengi svo fór ég að slökkva á henni á næturnar og hafa hana á borði og þá er hún í góðu lagi.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Sun 28. Des 2008 21:15
af lukkuláki
orrieinarsson skrifaði:Gerðist alltaf þegar ég var með mína á rúmminu og búinn að hafa kveikt á henni lengi svo fór ég að slökkva á henni á næturnar og hafa hana á borði og þá er hún í góðu lagi.


Ef þú ert með hana á sænginni þá er þetta nú ekkert skrítið hvar á vélin að fá loft til að kæla sig ?
Hafðu eitthvað hart undir eins og bók eða eitthvað. En það væri gott að láta rykhreinsa hana eftir að hafa legið í sæng og svona því hún sýgur í sig rykið og hitnar þá meira.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Sun 28. Des 2008 21:16
af orrieinarsson
Jájá, ég er búinn að átta mig á því.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Fös 13. Feb 2009 23:39
af Magni81
ég náði í þetta forrit og prófaði hjá mér. core 1 fór í 86gráður og core2 90gráður. er þetta of mikið? hvað er eðlilegur hiti við áreynslu? er þetta áreyðanlegt forrit.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Fös 13. Feb 2009 23:45
af lukkuláki
Magni81 skrifaði:ég náði í þetta forrit og prófaði hjá mér. core 1 fór í 86gráður og core2 90gráður. er þetta of mikið? hvað er eðlilegur hiti við áreynslu? er þetta áreyðanlegt forrit.


Allt of mikill hiti.
Séu sensorarnir í lagi hjá þér og þetta forrit að virka eins og það á að gera
þá þarftu sennilega að láta rykhreinsa vélina, skipta um kælikrem og kíkja á viftuna í henni.

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Lau 14. Feb 2009 03:01
af Carragher23
Hmm..spyr hérna gaurinn sem veit ekki neitt. Hvað telst eðlilegur hiti á svona vélum ?

Field Value
Sensor Properties
Sensor Type CPU, HDD, Asus NB ACPI
GPU Sensor Type Diode (ATI-Diode)

Temperatures
CPU 50 °C (122 °F)
CPU #1 / Core #1 47 °C (117 °F)
CPU #1 / Core #2 45 °C (113 °F)
GPU Diode 69 °C (156 °F)
WDC WD3200BEVT-22ZCT0 [ TRIAL VERSION ]

Cooling Fans
CPU 100 RPM

Voltage Values
CPU Core 0.93 V


Er þetta ekki alveg eðlilegt ? Geri mér alveg grein fyrir því að þetta er nærra lagi....en alltaf gott að vera viss :)

Re: Fartölvan mín er svo heit

Sent: Lau 14. Feb 2009 20:48
af krissi13
það var ehv tíman gefi út á netið að meirihlutinn af HP Pavilion dv6000 fartölvur væru gallaðar :S , veit um 2 sem voru með gallaðar svona tollur , 1 var með gallað móðurborð og hinn er með sama vandamál og þú.. ;/