Síða 1 af 1
Ethernet yfir raflínur
Sent: Fim 06. Nóv 2008 18:38
af dadik
Sælir vaktarar,
Ég keypti Devolo Micro Link dLAN Highspeed Ethernet Adapter 85Mbps hjá Símanum fyrir 2 árum þegar ég var að taka sjónvapið yfir adsl. Síðan skipti ég yfir í Digital Ísland og þetta hefur legið ónotað síðan.
Þangað til í gær að ég fór að prófa að stream-a myndum yfir á ps3 vélina. Það gekk skrykkjótt, þannig að ég náði í þessa gaura og nettengdi ps3 vélina yfir rafmangsvírana. Sem gekk ágætlega, en:
1 - Ég er ekki að ná nema ca. 30 Mbps með þessu dóti. Þetta er betra en þráðlausa, en samt ansi langt frá þessum uppefnu 85 Mbps.
2 - Ég er að fá í kringum 2% pakkatap:
Kóði: Velja allt
Reply from 192.168.1.36: bytes=32 time=2ms TTL=255
Ping statistics for 192.168.1.36:
Packets: Sent = 46545, Received = 45156, Lost = 1389 (2% loss),
Approximate round trip times in milli-seconds:
Minimum = 2ms, Maximum = 132ms, Average = 6ms
Control-C
Er þetta ásættanlegt? Mér finnst 2% alveg í það mesta ..
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Fim 06. Nóv 2008 21:52
af Yank
Þú færð aldrei uppgefin hraða 85Mbps, að deila í með 2 væri nær við kjöraðstæður.
Ekki tengja í fjöltengi, það gefur lakari hraða.
Meira um þessa tækni hér
http://www.tech.is/?s=1&sm=&read=3484
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Fös 07. Nóv 2008 01:20
af Harvest
Ég var að setja þetta í hjá mér. Það skipti ÖLLU máli að vera ekki með þetta í millistykkjum.
Ég fékk líka rafvirkja til að henda þessu á einhverja fasa
- ekki spurja mig hvað það er.
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Fös 07. Nóv 2008 15:46
af jonsig
Ef það er þrífasi heima hjá þér þá hefur hann einfaldlega svissað fasa á greininni heima hjá þér.
þetta tip hjá þér með fjöltengin er 50% rétt hjá þér . önnur tæki tengd í sama fasa eða kló í sama rými getur "gárað" riðstraumskúrvuna eins og þetta væri í raðtengi , þar sem þetta er jú allt hliðtengt og tenglar í rýminu hlið/gegnumtengdir stundum. en þá er ég að tala um orkufrek tæki sem mynda "högg" á rásina , ryksugur og slíkt sem er að taka til sín ójafnan straum. gætu látið errora koma upp , samt innan við 2-4%
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Mið 12. Nóv 2008 12:50
af akarnid
Mín reynsla er sú að ekki vera með þetta í fjöltengi með öðrum orkufrekum tækjum. Það geta líka verið rafmagnstæki eins og t.d. eldri magnarar/heimabíómagnarar. Sjónvörp líka, þó svo að LCDar/plasmar sleppi þar sem orkuþörf þeirra er ekki eins mikil.
Hins vegar þvottavélar/þurrkarar/ryksugur/uppþvottavélar. Allt augljóslega mekanískt - ekki hafa það á sömu grein og powerline.
Annars hefur mér fundist að þetta skipta ekki eins miklu máli þetta pakkatap þegar um er að ræða bara venjulega ethernetumferð milli tölva. Þetta verður miklu meira áberandi þegar verið er að bera TV umferð um þetta, því bara nokkrir dropped packets skila sér strax í myndtruflunum og hljóðtruflunum.
Þess vegna voru gömlu Devolo tengin (þessi bláu) óttalegt skran, eða gátu verið það. Það er komin ný týpa, sem er býður upp á allt að 200 Mbps (raunhraði samt kannski 50) og þau eru mun stabílli fyrir IPTV.
Að vísu dýrari...
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Mið 12. Nóv 2008 17:16
af OliA
akarnid skrifaði:Hins vegar þvottavélar/þurrkarar/ryksugur/uppþvottavélar. Allt augljóslega mekanískt - ekki hafa það á sömu grein og powerline.
Yfirleitt, (sem er oftast, en ekki alltaf) eru þvottavélar/þurrkarar og uppþvottavélar á sér grein, þ.e. á sér öryggi og bara einn tengill fyrir þau tæki.
Harvest skrifaði:Ég fékk líka rafvirkja til að henda þessu á einhverja fasa - ekki spurja mig hvað það er.
Ef rafkerfið heima hjá þér er þriggja fasa (230V/400V) á ertu með þrjá fasaleiðara sem bera straum, 230V er frá fasa í núll og 400V frá fasa í fasa. Í þriggja fasa kefri er möguleiki á að vera með aflmikil tæki en að þau dragi minni straum í hverjum leiðara.
dadik skrifaði:Þangað til í gær að ég fór að prófa að stream-a myndum yfir á ps3 vélina. Það gekk skrykkjótt, þannig að ég náði í þessa gaura og nettengdi ps3 vélina yfir rafmangsvírana
Ef þú getur, þá ættiru að downloada myndinni á ps3 vélina og horfa svo
(Á ekki ps3 og hef ekki hugmynd hvort það sé valmöguleik)
akarnid skrifaði:Annars hefur mér fundist að þetta skipta ekki eins miklu máli þetta pakkatap þegar um er að ræða bara venjulega ethernetumferð milli tölva. Þetta verður miklu meira áberandi þegar verið er að bera TV umferð um þetta, því bara nokkrir dropped packets skila sér strax í myndtruflunum og hljóðtruflunum.
Ef mögulegt er þá ætti sjónvarpið að vera tengt með CAT, en síminn selur/seldi þessa töfralausn sem virkar ekkert voðalega vel þegar þú þarft að vera með stöðuga umferð, en eins og þú segir þá er þetta mjög fínt í venjulega netnotkun.
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Mið 12. Nóv 2008 17:39
af ManiO
OliA skrifaði:dadik skrifaði:Þangað til í gær að ég fór að prófa að stream-a myndum yfir á ps3 vélina. Það gekk skrykkjótt, þannig að ég náði í þessa gaura og nettengdi ps3 vélina yfir rafmangsvírana
Ef þú getur, þá ættiru að downloada myndinni á ps3 vélina og horfa svo
(Á ekki ps3 og hef ekki hugmynd hvort það sé valmöguleik)
Er alveg hægt, en að streama er bara svo miklu þægilegra og tala nú ekki um fljótlegra.
Re: Ethernet yfir raflínur
Sent: Mán 17. Nóv 2008 22:50
af jonsig
Olia .. útskýrði það sem ég sagði ,, tnx Olia
Ég á erfitt með "mannamál"
Væri ekki best ef hann tæki þetta úr örygginu sem 6q vírinn fer inná straumskinnuna ,ss beint úr neonsed´inu