Unlimited Download
Unlimited Download
Ég var að horfa á The Gadget Show, sem er breskur þáttur sem testar allt sniðugt sem er í boði og þeir voru að athuga með "Unlimited Download" hjá netveitum þarna úti og þeir sögðu frá því að það væru ALLAR netveiturnar þarna með "Fair Use Policy" sem er þessi litla klausa í öllum samningunum sem segja að ef við séum að trufla umferðina fyrir öðrum, þá megi loka á okkur eða hefta. Það kom samt í ljós þarna að SKY netveitan var akkurat að breyta sínum internetpökkum og voru að byrja að bjóða einn "Premium" pakka sem var í alvöru með unlimited download. Þeir eru þar með fyrsti ISP inn í bretlandi sem er með svoleiðis. Hvað ætli verði mörg ár þangað til við fáum svoleiðis hérna ?